Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 16
16 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 73 Velta: 114 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
331 +0,56% 6.895+0,96%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +12,21%
STRAUMUR B. +4,69%
FØROYA BANKI +2,73%
MESTA LÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ -10,35%
ATLANTIC PETR. -2,62%
MAREL -1,12%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,05 +0,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 594,00 -2,62% ...
Bakkavör 1,93 +12,21% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,30 -10,35% ... Føroya Banki 113,00 +2,73% ... Icelandair Group
13,25 +0,00% ... Marel Food Systems 70,60 -1,12% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,34 +4,69% ... Össur 97,40 +0,83%
„Lögfræðingar eru að fara yfir
pappíra svo ég á von á að samn-
ingur um fyrstu fjárfestingu
Frumtaks verði undirritaður
í næstu viku,“ segir Eggert
Claessen, framkvæmdastjóri
Frumtaks.
Frumtak er samlagssjóð-
ur sem fjárfestir í íslenskum
nýsköpunar- og sprotafyrir-
tækjum sem komin eru af svo-
kölluðu klakstigi og þykja væn-
leg til vaxtar og útrásar.
Sjóðurinn ræður yfir fjór-
um milljörðum króna og mun
að líkindum fjárfesta fyrir
átta hundruð til 1.200 milljóna
króna á ári í átta til tólf fyrir-
tækjum. Óvissa skapaðist um
framtíðarrekstur sjóðsins eftir
bankahrunið en henni var eytt
í síðustu viku fyrir áramót.
Fram kom í máli Össur-
ar Skarphéðinssonar sprota-
málaráðherra í síðustu viku að
Frumtak myndi skrifa undir
fyrsta samninginn í þessari
viku.
Að sögn Eggerts hefur verið
gengið frá viljayfirlýsingu um
kaupin en lokafrágangur á
skjölum tafist, slíkt sé alþekkt.
Á fjórða tug fyrirtækja er í
skoðun og enginn skortur er á
vænlegum fjárfestingartæki-
færum. Ljóst sé að fjárfest
verður í litlum hluta þeirra
því þau falli misvel að fjár-
festingarstefnu sjóðsins.
- jab
EGGERT CLAESSEN Fyrsti fjárfest-
ingarsamningur Frumtaks hefur
frestast um eina viku. Tugir
fyrirtækja eru í skoðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skrifa undir í næstu viku
Bank of America, umsvifamesti
banki Bandaríkjanna, fékk í fyrra-
kvöld úthlutað 138 milljörðum
dala úr neyðarsjóði bandarískra
stjórnvalda fyrir fjármálafyrir-
tæki í vanda stödd. Þetta jafngildir
tæpum 17.700 milljörðum íslenskra
króna.
Björgunaraðgerðin felur í sér að
ríkið kaupir hlut í bankanum fyrir
tuttugu milljarða dala og gengur í
ábyrgðir fyrir eignir bankans upp
á afganginn.
Ástæðan er yfirtaka Bank of
America á fjárfestingabankanum
Merrill Lynch, sem óttast var að
fylgdi Lehmans-bankanum í þrot
um miðjan september. Yfirtakan,
sem gekk í gegn um áramótin, var
banknum þyngri þraut en reiknað
var með en það leiddi meðal ann-
ars til þess að bankinn tapaði 1,8
milljörðum dala á síðasta fjórð-
ungi í fyrra. Tap sem þetta hefur
ekki sést í bókum Bank of Ameri-
ca í átján ár.
Að sögn Bloomberg-fréttaveit-
unnar hefur hitnað verulega undir
stól Kenneths D. Lewis, forstjóra
Bank of America, í kjölfar þeirra
ófara sem bankinn hefur ratað í.
Auk Merrill Lynch tók bank-
inn yfir fasteignalánaveitandann
Countrywide Financial, sem ramb-
aði á barmi gjaldþrots þegar fyrir-
tækið rann í bankann um mitt síð-
asta ár.
- jab
SVEKKTUR FORSTJÓRI Staða stærsta
banka Bandaríkjanna þykir arfaslæm
eftir kaup á fjármálarisum í vanda.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Fyrsta tap risabanka í 18 ár
„Ég ítreka að þessi ákvörðun rík-
isstjórnarinnar tryggir hagsmuni
innlánseigenda og stöðugleika
efnahagslífsins,“ sagði Brian Len-
ihan, fjármálaráðherra Íra í sam-
tali við breska ríkisútvarpið í gær-
morgun, um þá ákvörðun írskra
stjórnvalda að þjóðnýta Anglo
Irish bankann.
„Bankinn heldur áfram starf-
semi sinni og sparifjáreigendur og
kröfuhafar geta átt viðskipti eins
og venulega,“ sagði Lenihan.
Bankinn hefur verið í miklum
vandræðum. Þau skýrast að miklu
leyti af lækk-
andi húsnæðis-
verði og verð-
lækkun tengdra
eigna, en einn-
ig alþjóðlegu
lausafjárkrís-
unni. Þá hefur
traust á bank-
anum dvínað
vegna hneyksl-
ismála sem tengjast æðstu stjórn-
endum hans.
Írska ríkisstjórnin hugðist í
fyrrakvöld kaupa 75 prósenta
hlut í bankanum og leggja honum
þannig til 1,5 milljarða evra, en
síðan kom á daginn að það dygði
ekki til.
Anglo Irish er einn þriggja
banka sem til stóð að fengju 5,5
milljarða evru innspýtingu, sem
lið í neyðaraðgerðum. Lenihan
sagði þörf á því vegna „óábyrgra
lána til eignakaupa.“
Írsk stjórnvöld tilkynntu í haust
að þau myndu ábyrgjast öll innlán
írskra banka. Þeir taka sumir við
innlánum í Bretlandi, og var Anglo
Irish þeirra stærstur. - ikh
Anglo Irish þjóðnýttur eftir vandræði
BRIAN LENIHAN
Verðbólguspá IFS greiningar fyrir
janúarmánuð hljóðar upp á 0,6 pró-
senta hækkun vísitölu neysluverðs.
Gangi spáin eftir verður 12 mán-
aða verðbólga 18,6 prósent. Síð-
asta mæling hljóðaði upp á 18,1
prósent.
„Ef spá okkar gengur eftir er um
að ræða lægstu mánaðarhækkun
sem mælst hefur í heilt ár. Áhrif
vegna gengislækkunar krónunnar
virðast að mestu vera komin fram
og reiknar IFS greining með að
töluvert muni draga úr verðbólgu-
hraðanum á komandi mánuðum,“
segir í spánni, en áréttað um leið
að í spánni sé ekki gert ráð fyrir
fleiri dýfum krónunnar á næst-
unni. - óká
Spá verðbólgu
í 18,6 prósent
Viðræður eru á lokastigi um kaup
Íbúðalánasjóðs á hluta innlendra
íbúðabréfa Spron og Sparisjóðs
Keflavíkur (SpKef) fyrir hátt í 35
milljarða króna.
Tveir sparisjóðir til viðbót-
ar hafa leitað eftir sambærileg-
um viðræðum við Íbúðalánasjóð.
Hvorki bankarnir þrír né önnur
fjármálafyrirtæki hafa ekki leit-
að til Íbúðalánasjóðs.
„Fjármálafyrirtækin þurfa sjálf
að eiga frumkvæði að viðræðum
sem þessum,“ segir Guðmundur
Bjarnason, forstjóri Íbúðalána-
sjóðs.
Hann bendir á að SpKef hafi enn
fremur óskað eftir því að Íbúða-
lánasjóður kaupi íbúðalán hans í
erlendri mynt. Málið sé í skoðun
en niðurstaða liggi ekki fyrir.
Verðmæti bréfa Spron nemur
tuttugu milljörðum króna og er
það um tíu prósent af heildarút-
lánum sparisjóðsins samkvæmt
níu mánaða uppgjöri. Endanlegt
mat liggur ekki fyrir á verðmæti
íbúðabréfa SpKef en hleypur vænt-
anlega á tíu til fimmtán milljörð-
um, að sögn Guðmundar.
Íbúðalánasjóður kaupir bréf
Spron á bókfærðu verði og fær
sparisjóðurinn áttatíu prósent
andvirðis þeirra strax en afgang
síðar.
Sparisjóðirnir fá greitt með
íbúðabréfum, sem þeir geta ráð-
stafað að vild.
Sala íbúðalánanna hefur hvorki
áhrif á lántakendur né á eiginfjár-
stöðu sparisjóðanna heldur rennir
traustari stoðum undir þá, líkt og
segir í tilkynningu Spron.
jonab@markadurinn.is
Kaupa íbúðabréf
tveggja sparisjóða
Íbúðalánasjóður kaupir íbúðabréf SPRON og SpKef fyrir allt að 35 milljarða
króna. Tveir aðrir sparisjóðir vilja selja bréf sín. Bankarnir sýna ekki áhuga.
GUÐMUNDUR BJARNASON Íbúðalánasjóður mun væntanlega kaupa hluta íbúðalána
Spron og SpKef á næstunni. Tveir aðrir sparisjóðir hafa óskað eftir viðræðum við
sjóðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Costa del Sol