Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 32

Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 32
32 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR Kreppuannáll – hundrað dagar Hundrað dagar voru liðnir á miðvikudaginn síðan Geir H. Haarde bað guð að blessa íslensku þjóðina í sjónvarpsávarpi. Síðan hefur margt drifið á daga þjóðarinnar, þó að óvíst sé um viðbrögð himnaföðurins. Fréttirnar snerust fyrst um að ná utan um ástandið, hve slæmt það væri en síðan magnaðist reiði almennings og hefur fengið ýmiskonar útrás. Kolbeinn Óttarsson Proppé 29. sept ■ Glitnir þjóðnýttur. Íslenska ríkið eignast 75 prósenta hlut í Glitni. 30. sept. ■ Eignarhaldsfélagið Stoðir sækir um og fær heimild til greiðslu- stöðvunar í Héraðsdómi Reykjavík- ur og gildir hún í þrjár vikur. ■ Geir H. Haarde segist hafa viðrað hugmyndir um sameiningu banka sex vikum fyrr. SEPTEMBER 1. nóv. ■ Undirbúningi nýs álvers á Bakka frestað í ljósi efna- hagsaðstæðna. 4. nóv. ■ Upplýst að stjórn Kaupþings hafi fellt persónulegar ábyrgðir starfs- manna af lánum til hlutabréfa- kaupa í bankanum niður. ■ Árni Mathiesen fjármálaráðherra situr samráðsfund með evrópsk- um kollegum sínum í Brussel. Samþykkt að stofna fimm manna gerðardóm til lausnar Icesave-deil- unni. Tveimur dögum síðar segir Ísland sig frá gerðardómnum. 6. nóv. ■ Upplýst að samkomulag vegna innstæðna í íslensku bönkunum í Bretlandi er, í hugum sumra ríkja, forsenda þess að Íslending- ar fái lán frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og Neyðarsjóði Evrópusambandsins. Embættismenn Evrópusambands- ins gerðu þingmönnum í Íslands- deild þingmannanefndar EFTA þetta ljóst á fundum í Brussel í byrjun vikunnar. 7. nóv. ■ AGS frestar því að taka erindi Íslands til umfjöllunar í stjórn sjóðsins í annað sinn. ■ Ný bankaráð Glitnis, Landsbankans og Kaupþings tilkynnt. 8. nóv. ■ Fjögur til sex þúsund manns mæta á Austurvöll til mótmæla. Fjórðu og fjölmennustu laugardagsmót- mælin. Athygli vekur að ungur maður dregur Bónusfána að húni á Alþingishúsinu. Víðar hefur verið mótmælt. 11. nóv. ■ Utanríkisráðherra segir Íslendinga ekki tilbúna til að greiða 25 millj- ónir vegna komu breskra herþota til landsins. 12. nóv. ■ Lánsumsókn Íslands hjá AGS frestað um óákveðinn tíma. Jose Manuel Barruso, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, tengir alþjóð- lega lánafyrirgreiðslu niðurstöðu um Icesave. 14. nóv. ■ Ríkisstjórnin tilkynnir um aðgerðir fyrir heimili í vanda í tíu liðum. Greiðslubyrði verðtryggðra lána minnkar, barnabætur mánaðarlega. Boðuð lækkun á dráttarvöxtum og mildari innheimta opinberra aðila. 15. nóv. ■ Samstöðutónleikar í Laugardalshöll, Bubbi, Stuðmenn, Baggalútur, Lay Low og Ham. Um 5.000 gestir. 16. nóv. ■ Samkomulag næst á milli íslenskra stjórnvalda og Evrópusambands- ins um innstæðutryggingar vegna Icesave. Fjörutíu dagar liðnir síðan milliríkjadeilan við Breta hófst. Íslendingar ábyrgjast innistæður að upphæð 20.877 evra. NÓVEMBER OKTÓBER FRAMHALD Á SÍÐU 34 5. okt. ■ Ekkert kemur út úr stífum fundar- höldum í Ráðherrabústaðnum um helgina. „Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum,“ segir Geir H. Haarde. 6. okt. ■ Neyðarlög sett á Alþingi um víðtækar heimildir Fjármálaeft- irlitsins til inngripa í íslenskt fjármálakerfi. Innistæður tryggðar. Lögin veita ríkissjóði og Fjármálaeftirlitinu nánast ótakmarkaðar heimildir til inngripa í rekstur og starf- semi fjármálafyrirtækja og víkja til hliðar fjölda annarra laga og reglna. ■ Kaupþing fær stórt lán frá Seðlabanka. Staðfest að sendi- nefnd Alþjóða- gjaldeyrissjóðs- ins er komin til landsins. ■ Sjón- varpsávarp Geirs H. Haarde forsæt- isráð- herra laust eftir klukkan fjög- ur vegna þeirra miklu erfiðleika sem steðja að þjóðinni. ■ Seðlabanki Íslands festir gengið við 175. 7. okt. ■ Fjármálaeftirlitið tekur yfir Glitni og Landsbankann. Ný félög stofnuð um innlenda starfsemi og bankarnir áfram opnir. Ekkert verður af þjóð- nýtingu Glitnis, rætt um að Kaupþing taki yfir innlenda hluta Glitnis. ■ Árni Mathiesen fjármálaráðherra ræðir við kollega sinn Alistair Darling í síma. Darling fullyrðir að ríkisstjórn Íslands hefði sagt sér „í gær að þau ætluðu ekki að standa við skuldbindingar sínar hér“. ■ Davíð Oddsson kemur fram í Kastljósi Rúv um kvöldið. Segir að erlendir kröfuhafar fái ekki nema „þetta fimm, tíu, fimmt- án prósent upp í sínar kröfur“. ■ Bresk stjórnvöld yfir- taka útibú Lands- bankans í Bretlandi og dótturfélagið Heritable Bank. Gert í krafti löggjafar gegn hryðjuverkum. ■ Seðlabankinn tilkynnir um 4.000 milljóna evra lán frá Rússlandi, dregur í land síðar um daginn og segir lánið ekki í hendi. 8. okt. ■ Bretar beita hryðjuverkalögum gegn Íslendingum vegna Icesave- reikninga Landsbankans í Bretlandi. ■ Dótturfélag Kaupþings í Lundún- um, Singer & Friedlander, sett í greiðslustöðvun af breska fjármála- eftirlitinu. Eignir Landsbankans í Bretlandi frystar og innlánsreikning- ar Kaupþings seldir. ■ Seðlabankinn hættir við fast gengi. „Þetta er hagfræðilegur barnaskap- ur,“ segir Þórólfur Matthíasson um tilraunina. 9. okt. ■ Kaupþing leitar til Fjármálaeftirlits- ins síðla dags. ■ Fulltrúi Samfylkingarinnar í banka- ráði Seðlabankans segir af sér. 10. okt. ■ Fjármálaeftirlitið tekur Kaupþing yfir. 14. okt. ■ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra segir skynsamlegt að stjórn Seðlabankans víki. ■ Sendinefnd undir forystu alþjóða- sviðs Seðlabankans flýgur til Rússlands. Viðræður um 4.000 milljóna evra lán hefjast í Moskvu. 15. okt. ■ Geir H. Haarde boðar að unnin verði hvítbók um ástandið og sérstök rann- sóknarnefnd skipuð. ■ Seðlabank- inn lækkar stýrivexti um 3,5 prósent sem verða þá 12 prósent. ■ Seðlabanki Íslands dregur 400 milljónir evra á lánalínur frá seðla- bönkum Danmerkur og Noregs. ■ Tryggvi Þór Herbertsson, efnahags- ráðgjafi forsætisráðherra, lætur af störfum. ■ Ríkisstjórnin felur breskri lög- mannsstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum fyrir aðgerðir þeirra gegn íslenskum fyrirtækjum. 16. okt. ■ Upplýst að Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu, seldi hlutabréf sem hann átti í Landsbankanum um mánuði áður en Fjármálaeftirlitið yfirtók rekstur bankans. 17.okt. ■ Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- ráðherra og starfandi utanríkisráð- herra, segir að það myndi misbjóða íslensku þjóðinni, ef breskar flugsveitir yrðu fengnar til að gæta lofthelgi Íslands í desember. 24. okt. ■ Ríkisstjórnin óskar formlega eftir samstarfi við AGS um að koma á efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. ■ Poul Thomsen, yfirmaður Evrópu- deildar AGS, segir AGS gera ráð fyrir tíu prósenta samdrætti í innan- landsframleiðslu sem þýðir að þjóðin er að ganga í gegnum „áfall án fordæmis,“ eins og Thomsen orðaði það. 27. okt. ■ Íslensk stjórnvöld óska formlega eftir láni frá hinum Norðurlanda- þjóðunum. 28. okt. ■ Seðlabankinn hækkar stýrivexti í 18 prósent. ■ Færeyska landstjórnin samþykkir að veita Íslendingum sex milljarða króna lán. 31. okt. ■ Hundruð uppsagnarbréfa streyma til landsmanna á síðustu dögum októbermánaðar. ■ Ráðherrar Samfylkingarinnar ítreka í ríkisstjórn að Davíð Oddsson starfi alfarið í umboði Sjálfstæðisflokks- ins. Þessi helgi hefur skilað því að við teljum núna ekki lengur nauð- synlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum Geir H. Haarde 5. október

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.