Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 34

Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 34
2 matur SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: Grænmetis BOLOGNESE Ebba Guðný Guðmundsdóttir, áhugamanneskja um mat, gefur lesendum uppskrift að ljúffengu grænmetis-bolognese með speltspagettíi. Ekki láta langa inni-haldslýsingu plata ykkur, þetta er sára- einföld og fljótleg handa- vinna,“ segir Ebba Guðný um uppskrift að ljúffengu grænmetisbolognese með speltspagettíi, sem hún eldar reglulega fyrir fjölskyld- una. „Þessi réttur er alltaf vinsæll hér á heimilinu. Uppskriftina fékk ég hjá tengdamömmu og mömmu og nota linsu- baunir í staðinn fyrir nautahakk. Réttinn er líka auðvelt að mauka fyir smáfólkið.“ Tilraunir Ebbu í eldhúsinu að hollum mat er að finna í bókinni Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? Ebba kennir einn- ig að búa til hollan barnamat á námskeið- um í Heilsuhúsinu, Yggdrasli og Manni lif- andi, sem hefjast nú febrúar. - rat FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N 1-2 msk. olía/ smjör eða kókosolía 1-2 laukar 3 hvítlauksrif 2 tsk. oregano 2 tsk. basil ¼ tsk. hvítur pipar 2 lárviðarlauf 3 gulrætur eða 1/2 sæt kartafla 100 g grænar linsur 1 dós niðursoðnir tómatar 1 dós kókosmjólk ½ dl vatn 1 tsk. hrásykur 1 ger- og msg- laus grænmetis- teningur 4 msk. tómat- kraftur Steikið lauk og hvítlauk í olíu með kryddi við lágan hita í tíu mínútur, eða meðan gulrætur eru þvegnar og skornar í bita. Bætið gulrótum svo jafnóðum út í pottinn. Skolið linsur í sigti og skellið út í pott. Bætið svo öllu hinu út í. Látið malla í um 40 til 60 mínútur. Berið fram með spelt-spagettíi og salati. GRÆNMETISSPAGETTÍ BOLOGNESE matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Emilía Örlygsdóttir og Roald Eyvindsson Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Nordic Photos/Getty Pennar: Agnes Ósk Valdimarsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdótt- ir, Hrefna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Sólveig Gísladóttir, Vera Einarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is VERSLUN SÆLKERANS Fiskbúðin Hafrún hefur opnað að nýju en þar er hægt að fá íslenskt sjávarfang eins og það gerist best. „Hafrún var hér í Skipholti 70 í yfir þrjátíu ár, þar til Fiskisaga tók við fyrir um tveimur árum. Þeirri verslun var lokað í sumar og hófu nýir eigendur rekstur fyrir jól. Verslunin fékk sitt gamla nafn og er rekin með sömu formerkjum og áður,“ segir Jón Ingi Jóhannesson verslunarstjóri. Í búðinni, sem Atli Björnsson á, fást meðal annars gellur, hákarl, hrogn, steinbítur, lax og reyktur fiskur. Eins tilbúnir réttir eins og plokkfiskur, sem er vinsæll. Jón segir viðskiptavini ánægða með að búðin skuli hafa opnað að nýju enda hafi hún verið mjög vinsæl. Fiskbúðin Hafrún FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Hollt og gott! Það getur verið þrautin þyngri að glíma við blessaðan viljastyrk-inn og bremsa sig af á nýárinu eftir vellystingar hátíðanna. Þótt fyrirheit séu staðföst og fögur um áramót er freistandi að teygja sælkeralopann fram yfir þrettándann, og taka svo rólega á því að keyra sykurstuðulinn niður í makindum fram eftir janúarmánuði. Í svartasta skammdeginu er enda freistandi að vera inni við í hlýlegu hreiðrinu heima og njóta þess undursamlega ilms og andrár sem hlýst af heimabökuðu góðgæti, og gleður munn og maga, ekki síður en sálartetrið og gerir fjölskyldulíf allt heimilislegra. Það er nefnilega hægara sagt en gert að sussa á æpandi raddir magans. Gefur þá góða raun að vita fyrir víst að fyrirskipanir langana og þráa eru sprottnar í höfði manns og oft hægt að gera vel lukkaðar málamiðlanir með hollari kosti en magamálið æpir á og krefst. Það er kannski pínulítið ótrúlegt eftir allt munúðarlífið sem á undan er gengið að hollustumatur geti líka verið hreinasta sælgæti, en það er satt. Hvarvetna beinlínis úir og grúir af lystaukandi uppskriftum sem flestir geta fellt sig við og eftir alúð við elda- mennsku gætt sér á, hvort sem í eldhúsinu malla frískandi súpur, heilnæmir forréttir, saðsamir aðalréttir, dísætir eftirréttir og himneskar kökur, sem og konfekt og annað slikkerí, sem allt miðar að hollustu hjartans, örvar heilasellurnar, lengir lífið, passar upp á æðakerfið, veitir sælutilfinningu við bragðupplifun og vellíðan við saðningu. Ekki sakar hvað heilnæmt fæðuval gerir útlitinu gott og löngu sannreynt að margt úr skrautlegu gnægtabúri náttúrunnar er eina raunverulega dugandi yngingarmeðalið sem mannfólkinu býðst í leit sinni að eilífum æskuljóma, hreysti og langlífi. Gerum því vel við okkur í upphafi nýrra tíma. Stöppum í okkur stálinu með heilsufæði og hollum lífsháttum. Ekki veitir af þegar Íslandinu okkar blæðir. SUSSAÐ Á RÖDD MAGANS Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar Rétturinn er vinsæll hjá fjölskyldunni enda notar Ebba í hann úrval af fersku og góðu grænmeti. Ebba Guðný Guðmundsdóttir segir réttinn einfaldan í framkvæmd, hollan og góðan. A Aðal-réttur E Eftir- réttur Hvunndags/til hátíðabrigða Fuglakjöt Fiskur Hvunn- dags Grænmeti M Með-læti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.