Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 48
● heimili&hönnun
hönnun
Karl og Svanhildur fengu húsið í
mars 2008 og tóku það allt í gegn að
innanverðu. Lagnir voru endurnýj-
aðar, innréttingar smíðaðar, veggir
brotnir, aðrir byggðir, sparslað og
málað. Lokaspretturinn var harður,
hátíðir voru á næsta leyti. „Síðasti
iðnaðarmaðurinn labbaði út kortér
yfir fimm á Þorláksmessu. Þá var
hlaupið út að kaupa jólagjafirnar,“
lýsir Svanhildur hlæjandi og viður-
kennir að lítið hafi verið sofið nótt-
ina fyrir aðfangadag.
Nú er heimilið eins og sniðið fyrir
hjónakornin. Á neðri hæðinni eru
eldhús og stofa og uppi sjónvarps-
krókur, snyrting, vinnuherbergi,
svefnherbergi og fataherbergi. „Við
fengum Guðbjörgu Magnúsdóttur
arkitekt hingað áður en við hófumst
handa og hún rissaði upp hugmyndir
sem komu að góðum notum,“ segir
Karl. „Svo er nú Svana dálítill arki-
tekt í sér,“ bætir hann við og lítur
hlýlega á konu sína.
Karl keypti húsið óséð en Svana
kveðst hafa komið þar inn áður en
það fór á sölu. „Ég fann strax að
þetta væri það sem ég vildi,“ segir
hún. Stuttu síðar frétti hún að húsið
væri falt. Þá var hún á Sardiníu en
Karl á Kirkjubæjarklaustri og kaup-
in voru ákveðin símleiðis.
Gunnar Björgvin, bróðir Karls,
á heiðurinn að smíði koksgráu eld-
hússinnréttingarinnar. Á gólfum er
líflegt eikarparkett og lýsingin frá
Lumex er innfelld. Flæðandi birta í
stiganum er sérlega flott.
Íslensk málverk prýða híbýlin,
meðal annars eftir föður Karls og
annað eftir Tolla. Það síðarnefnda er
áheit. Karl lenti í því að gleraugun
fuku af honum í myrkri og vitlausu
veðri við Hótel Loftleiðir. Eftir ár-
angurslausa leit með vasaljós að
vopni ók hann heim en þrjóskan
rak hann aftur af stað og á leiðinni
hét hann því að gefa frúnni mynd
eftir Tolla ef leitin bæri árangur.
Klukkutíma pauf skilaði engu og
hann var búinn að missa vonina.
Þá hringdi Svana og til að heyra í
henni fór hann í var. Akkúrat þar
lágu gleraugun. - gun
Nýtt og betra hús
● Raðhúsin milli Laugalækjar, Sundlaugarvegar og Otrateigs mynda lítið þorp. Í einu þeirra
hafa hótelhaldararnir Karl Rafnsson og Svanhildur Davíðsdóttir komið sér vel fyrir.
Karl Rafnsson og Svanhildur Davíðs -
dóttir. Karl keypti húsið óséð en Svan-
hildur var búin að koma þar inn og fá
góða tilfinningu fyrir því.
Veggirnir í eldhúsinu eru fínpússaðir og
lakkaðir.
Hái hamarinn hans Tolla vakir yfir borð -
króknum. Takið eftir ljósrifunni milli
stof unnar og eldhússins.
● BLÚNDUDÚKURINN FÆR UPPREISN
ÆRU Blúndan hefur fengið nýtt hlutverki í hönd-
um hönnuða síðustu misserin.
Sænski hönnuðurinn Louise Hed-
erström útfærði blúnduna í lampa
og ljós.
Í ljósakrónum Grace er hvítt
blúndumunstur prentað á gegnsætt
plast en áður hafði Louise hannað
lampalínuna Gladys þar sem blúndumunst-
ur var skorið út í stál. Hún segist iðulega láta efnið ráða framvindu
verksins og að lokaniðurstaða byggist á þeim möguleikum sem efnið
býður upp á. Hönnun hennar einkennist af einföldum formum og
gæði eru hennar kjörorð. Nánar má forvitnast um hönnun Louise
Hederström á vefsíðunni www.louisehederstrom.com.
„Háfurinn er útgangspunkturinn í eld-
húsinu,“ segir Kalli sposkur. „Kaupin á
honum voru þó skyndiákvörðun eins
og fleira í sambandi við þetta hús.“
Stofan er hlýleg og úr henni
er gengið út í snotran garð.
Fataherbergið er eitt af því
sem kom út úr breytingunum.
● MAGNEAT Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM Segullinn
Magneat, sem heldur snúrunum á heyrnartólunum í skefjum, er ís-
lensk uppfinning starfsmanna Preggioni. Segullinn fæst bæði einlit-
ur og með prenti en ný regnbogalína lítur dagsins ljós um mánaða-
mótin.
Segullinn hefur fengið góðar viðtökur og seldist upp fyrir jólin.
Honum er komið fyrir á hvaða fatnaði sem er og er snúrunni síðan
vafið utan um hann. Þannig haldast heyrnatólin á sínum stað jafnvel
þó eigandinn hreyfi sig á alla kanta en auk þess er hægt að láta tólin
lafa á seglinum þegar þau eru ekki í notkun.
Segullinn hentar því einkar vel þeim sem hlusta á iPod við íþrótta-
iðkun eða nota handfrjálsan farsímabúnað og kemur í veg fyrir það að
snúrurnar flækist fyrir. Hann kemur sér þó víðar vel. Nánari upplýsing-
ar má finna á www.magneat.com.
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/A
N
T
O
N
Vorum að taka upp
nýjar vörur!
Smáratorgi 3 / 201 Kópavogi / s ími: 522 7860
Korputorgi / 112 Reykjavík / s ími: 522 7870
LUKT lítil
nú 690.-
LUKT stór
nú 990.-
17. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR4