Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 76
44 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
DAVÍÐ ODDSSON Á 61 ÁRS
AFMÆLI Í DAG.
„Vindhanar verða aldrei
áttavitar, hvorki til sjós né
lands.“
Davíð er fyrrverandi borgar-
stjóri, alþingismaður og for-
sætisráðherra og núverandi
seðlabankastjóri.
MERKISATBURÐIR
1850 Skólasveinar Lærða skól-
ans gera hróp að rektor
skólans, Sveinbirni Egils-
syni.
1912 Robert Falcon Scott kemst
á Suðurpólinn, mánuði
á eftir keppinauti sínum
Roald Amundsen.
1914 Eimskipafélag Íslands,
sem kallað er „óskabarn
þjóðarinnar“, er stofnað í
Reykjavík.
1945 Nasistar byrja að tæma
Auschwitz-útrýmingar-
búðirnar.
1995 Um 5500 manns farast
og yfir 300 þúsund missa
heimili sín í öflugum jarð-
skjálfta í Kobe í Japan.
1998 Paula Jones sakar Bill
Clinton, forseta Bandaríkj-
anna, um kynferðislega
áreitni.
Elva Björk Jónatansdóttir
Sérfræðingur
í útfararskreytingum
Hagkaup Smáralind
Sími 578-5075 | www.bjarkarblom.is
Kransar | Krossar | Kistuskreytingar
Okkar ástkæra,
Jenný Haraldsdóttir
frá Seyðisfirði, Holtagerði 30, Kóp.,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 13. janúar á líknardeild
Landspítalans Landakoti. Jarðarförin fer fram frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 22. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arndís B. Sigurgeirsdóttir Bára K. Kristinsdóttir.
Elskulegur faðir okkar
Andrés Kolbeinsson,
hljóðfæraleikari og ljósmyndari,
andaðist að Vífilsstöðum 15. janúar sl. Útförin verður
auglýst síðar.
Kolbeinn Andrésson
Helga Andrésdóttir
Hildur Kolbrún Andrésdóttir
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og
systir,
Hulda Lilja Ívarsdóttir
Jörfagrund 20, Kjalarnesi,
lést á kvennadeild Landspítalans 14. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Guðmundsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Vigfús Tómasson
Árskógum 6, Reykjavík,
áður Rauðagerði 18, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þann 14. janúar 2009. Útförin
fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 22. janúar kl.
15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra.
Kristín Valgerður Ellertsdóttir
Ellert Vigfússon Jóhanna Sigríður Njálsdóttir
Elín Vigfúsdóttir Hinrik Morthens
afabörn og langafabörn.
SMÁRI GEIRSSON,
FV. BÆJARSTJÓRI,
ER FIMMTÍU OG
ÁTTA ÁRA Í DAG.
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
HAGFRÆÐINGUR
ER FJÖRUTÍU OG
SEX ÁRA Í DAG.
SIGURJÓN M.
EGILSSON, FV. RIT-
STJÓRI, ER FIMMTÍU
OG FIMM ÁRA Í
DAG.
Haraldur krónprins í Noregi tók við kon-
ungsembættinu í landinu þennan dag árið
1991 þegar faðir hans, Ólafur konungur V
andaðist. Hann varð Haraldur konungur V.
Haraldur hafði áður, sem krónprins Nor-
egs, gegnt þýðingarmiklum störfum fyrir
föður sinn eftir að Ólafur konungur veiktist
vorið 1990 og var undir embættistökuna
búinn. Hann var ásamt Sonju, drottningu
sinni, signaður í Niðarósdómkirkju sunnu-
daginn 23. júní 1991 og fylgdi þar í fótspor
föður síns frá 1958. Þær athafnir eru ein-
stakar fyrir Noreg og tíðkast ekki í öðrum
löndum Vestur-Evrópu.
Haraldur V gerði einkunnarorð föður síns
og afa: „Allt fyrir Noreg“ strax að sínum.
Haraldur er fæddur 21. febrúar 1937.
Hann kvæntist Sonju Haraldsen árið 1968.
Þau eiga tvö börn, Mörtu Lovísu sem er
fædd 1971 og Hákon Magnús sem fædd-
ur er 1973.
ÞETTA GERÐIST: 17. JANÚAR 1991
Haraldur Noregskonungur krýndur
„Tónskóli Sigursveins er búinn að
vera mitt annað heimili frá því ég var
barn,“ segir Arndís Hulda Auðuns-
dóttir fiðluleikari sem heldur burt-
farartónleika frá þeim skóla í dag,
í Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan
17. Hún hóf fiðlunám í Suzukideild
skólans rétt fyrir fimm ára afmæl-
ið og kveðst þó ekki eiga til tónlist-
arfólks að telja. „Ég átti hugmyndina
sjálf. Það kom fiðluleikari í leikskól-
ann og kveikti í mér,“ segir hún bros-
andi. „Það stóð samt aldrei til að taka
einleikarapróf,“ bætir hún við og er
beðin að útskýra hugarfarsbreyting-
una. „Ég lauk námi í MR vorið 2007
og ákvað að einbeita mér að fiðlunni
meðan ég væri að hugsa um hvað ég
vildi verða. Samt er ég ekki enn búin
að ákveða það.“
Arndís Hulda hefur verið virkur
þátttakandi í hljómsveitar-og kamm-
ermúsíkstarfi. Auk hljómsveita Tón-
skólans hefur hún leikið með Sin-
fóníuhljómsveit tónlistarskólanna,
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Óp-
erustúdíói Íslensku óperunnar og Or-
kester Norden sem er hljómsveit nor-
rænna hljóðfæraleikara og hljóðfæra-
leikara frá Eystrasaltslöndunum, sem
fær til sín góða stjórnendur og góða
einleikara. „Þar fær maður svolítið að
smakka á alvörunni,“ segir hún bros-
andi. „Ég fór með Orkester Norden til
Króatíu og Slóvaníu og það var mikil
upplifun.“
Eitt af ævintýrum Arndísar Huldu
er að vera í liði með Ólafi Arnalds og
hefur hún spilað með honum síðustu
tvö ár á tónleikaferðum víða um Evr-
ópu og Bandaríkin. „Þá hef ég reynd-
ar verið með víólu,“ segir hún og bætir
við afsakandi að hún hafi aldrei lært
að spila á hana. Samt á hún bæði víólu
og fiðlu. Þær eru báðar gerðar af Jóni
Marinó Jónssyni, fiðlusmið í Kópa-
vogi. „Það var gaman að fá að fylgjast
með smíðinni hjá honum og sjá þær
breytast úr nokkrum trébútum í full-
sköpuð hljóðfæri,“ segir hún.
Kennarar Arndísar Huldu voru Að-
alheiður Matthíasdóttir við Suzuki-
deildina, María Weiss og nú síðast
Greta Guðnadóttir. Hún ber lof á þær
allar. „Ég var leidd vel áfram af Að-
alheiði og Maríu og Greta hefur gefið
mér nýja sýn á fiðluna,“ segir hún.
Á tónleikunum í dag ætlar Arndís
Hulda að flytja verk eftir Wieniawski,
Bach, Kreisler og Katsjatúrian. Píanó-
leikari er Þóra Fríða Sæmundsdóttir
og auk þess leika með henni í tríói þau
Ásta Pétursdóttir á klarinett og Björn
Pálmi Pálmason á píanó. „Við spiluð-
um saman í vor þegar þau voru í próf-
um og fundum nýtt verk til að spila
núna,“ segir hún. En hvernig heldur
hún upp á daginn? „Ég ætla að bjóða
fólki í kaffi og kökur í safnaðarheim-
ili Fríkirkjunnar,“ svarar hún og segir
alla velkomna á tónleikana.
gun@frettabladid.is
ARNDÍS HULDA AUÐUNSDÓTTIR: HELDUR BURTFARARTÓNLEIKA Í DAG
Fiðluleikarinn kveikti áhugann
FIÐLULEIKARINN Arndís Hulda hefur nóg af viðfangsefnum í tónlistinni að minnsta kosti næstu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA