Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 80
48 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
kl. 14.
Nýtt íslenskt leikrit eftir Hermann
Stefánsson á Rás 1: Ungur starfs-
maður í Þjóðmenningarhúsinu leitar
til geðlæknis vegna fíknar sinnar í
ofbeldisfullan tölvuleik. Hermann
hefur lagt gjörva hönd á margt en
þetta er hans fyrsta leikverk. Erla
Ruth Harðardóttir og Guðjón Karls-
son eru í aðalhlutverkum en Hall-
mar Sigurðsson leikstýrir.
Í dag opnar Bjargey Ólafs-
dóttir sýningu í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur. Sýn-
ingu sína kallar hún Tíru.
Sýningin Tíra er samansafn
táknmynda sem hafa ýmist
orðið til úr draumum lista-
mannsins eða sprottið fram
í vitund hans milli svefns
og vöku.
Bjargey hrífur áhorfandann með
sér inn í heim veggmynda þar sem
fegurð og hið andlega ræður ríkj-
um; þar sem jafn ólík atriði og
hönd guðs, fjöll, töfrakassi, álfa-
skírnarfontur, slæður og teikning-
ar af háhæluðum skóm koma við
sögu, böðuð í dularfullu ljósi og
fjölskrúðugum litum. Þrátt fyrir að
hún haldi hér áfram að kanna lend-
ur töfraraunsæis og súrrealisma
eins og í fyrri verkum sínum, þá
beinir Bjargey ekki sjónum sínum
að manneskjunni sem slíkri heldur
leitast fremur við að ljósmynda til-
finningu sem hefur fundið sér far-
veg í ofangreindum atriðum.
Bjargey hefur á undanförnum
tveimur árum dvalið í vinnustof-
um fyrir listamenn í Chile og Arg-
entínu og fékk þaðan mikinn inn-
blástur sem hún er enn að vinna
úr og er litadýrðin í nýju verkun-
um ef til vill sprottin þaðan. List-
sköpun hennar er ekki bundin við
einn listmiðil heldur velur hún
sér þann miðil sem henni finnst
henta hugmyndinni best hverju
sinni. Það má því líkja henni við
alhliða hljóðfæraleikara því Bjarg-
ey fæst við kvikmyndagerð, hljóð-
verk, gjörninga, teiknar, málar og
ljósmyndar.
Bjargey Ólafsdóttir myndlist-
armaður (f. 1972) er með MFA-
gráðu frá Academy of Fine Arts í
Helsinki, Finnlandi og nam kvik-
myndagerð við Binger Film Ins-
titute í Amsterdam, Hollandi. Verk
hennar hafa verið sýnd á sýning-
um og kvikmyndahátíðum í 26
löndum t.d. í Frakklandi á sýn-
ingunni Printemps de Septembre
sem skartaði einnig David Lynch,
en fyrir þá sýningu fékk Bjargey
frábæra dóma í hinu virta dagblaði
Le Monde. Þess má geta að stutt-
myndir Bjargeyjar verða sýndar á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg nú síðar í mánuðinum.
„Ég skal ljá þér duluna mína,
duluna mína til að dansa í. Hvað
var Bjargey að gera úti á túni með
duluna sína? Þar fangaði hún óút-
skýranlega veröld. – Í eins konar
transástandi dansaði hún í heimi
sem við þekkjum og þar tókst
henni að ná í heim sem er til en
heim sem var ekki til.“ segir Ingi-
björg Magnadóttir myndlistarmað-
ur um Bjargeyju. pbb@frettabladid.is
TÍRIR Á LJÓSUNUM
MYNDLIST Slæðufjöll, eitt ljósmyndaverka Bjargeyjar á sýningunni sem opnar í dag
MYND LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 17. janúar 2009
➜ Sýningar
18.00 Curver Thoroddsen sýnir tvö ný
myndbandsverk milli kl. 18 og 20 í Kling
& Bang Galleríi við Hverfisgötu
42. Aðeins er um þennan eina
sýningardag að ræða.
➜ Kvikmyndir
Frönsk kvikmyndahátíð stendur yfir í
Háskólabíói 16-29. jan. Nánari upplýs-
ingar á www.graenaljosid.is og www.
midi.is.
➜ Opnanir
15.00 Haustbrekkur Kristinn G.
Jóhannsson opnar sýningu á nýjum
verkum í Jónas Viðar Gallery við Kaup-
vangsstræti á Akureyri.
15.00 Hvítir skuggar Margrét Jóns-
dóttir opnar sýningu á Listasafni Akur-
eyrar við Kaupvangsstræti.
16.00 Við erum hinir / hinir eru við
Steingrímur Eyfjörð opnar sýningu í
Galleríi 100° í húsnæði Orkuveitunnar
að Bæjarháls 1 Reykjavík.
➜ Listamannsspjall
15.00 Thomas Graics tekur á móti
gestum í Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur, Grófarhúsi við Tryggvagötu
25, 6. hæð.
➜ Fyrirlestrar
10.00 Er íslensk menningarstefna
á tímamótum? Njörður Sigurjónsson,
Friðbjörg Ingimarsdóttir og Gerður
Jónsdóttir flytja erindi í húsakynnum
Reykjavíkur Akademíunnar í JL húsinu
við Hringbraut 121. Aðgangur ókeypis og
allir velkomnir.
➜ Dansleikir
Buff verða á Players við Bæjarlind 4 í
Kópavogi.
Sixties spila á 800 Bar, Eyrarvegi 35 á
Selfossi.
Hljómsveitin MONO stendur fyrir ljótu-
fataballi á Café Aroma, Fjarðagötu 13-15
í Hafnarfirði. Verðlaun verða veitt fyrir
ljótustu fötin.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 18. janúar 2009
➜ Kvikmyndir
15.00 Rakarinn í Sevilla, rússnesk
kvikmynd frá árinu 1999 í leikstjórn
Nikita Mikhalkovs, verður sýnd í MÍR-
salnum, Hverfisgötu 105. Aðgangur
ókeypis.
➜ Opnanir
15.00 Í Gerðubergi verður opnuð
sýning á myndskreytingum úr íslensk-
um barnabókum auk þess sem veitt
verða verðlaun fyrir bestu myndskreyttu
barnabókina 2008. Auk þess mun Hugi
Jóhannesson opna sýningu á vatnlita-
myndum í boganum. Gerðuberg, Gerðu-
bergi 3-5.
➜ Leiklist
20.00 GRAL Grindvíska atvinnuleik-
húsið sýnir leikverkið 21 manns saknað
í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grinda-
vík. Nánari upplýsingar á www.gral.
blog.is.
20.00 Aukasýning verður á leikverkinu
Steinar í djúpinu hjá Hafnarfjarðarleik-
húsinu, Strandgötu 50. Nánari upplýs-
ingar www.hhh.is.
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir
Ódauðlegt verk kl. 15 og 16 í Nýlista-
safninu, Laugavegi 26. Aðgangur ókeyp-
is. Nánari upplýsingar www.nylo.is.
➜ Tónleikar
14.00 Íslenski saxófónkvartettinn
verður með tónleika í Norræna húsinu
við Sturlugötu. Á efn-
isskránni eru verk eftir
Pierre-Max Dubois, Jean-
Baptiste Singelée og
Alfred Desenclos.
➜ Síðustu Forvöð
15.00 Listamaðurinn
Ingibjörg Jónsdóttir segir frá sýningu
sinni Samsíða heimar í Listasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu. Sýningu
lýkur á sunnudag. Safnið er opið frá kl.
10-17.
➜ Listamannsspjall
15.00 Kristján Steingrímur verður
með listamannaspjall á Listasafni ASÍ,
Freyjugötu 41 þar sem nú stendur yfir
sýning á verkum hans. Sýningin er opin
alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Í dag opnar Davíð Örn Halldórsson sýn-
ingu á verkum sem unnin eru með bland-
aðri tækni í 101 Projects á Hverfisgötu.
Davíð fæst við málaralistina og hefur
gert síðan hann útskrifaðist frá myndlist-
ardeild Listaháskóla Íslands árið 2002. Á
þessum tíma hefur Davíð gengið frjáls-
lega um hefðarsali málverksins. Hann
málar ekki með hefðbundnum litum held-
ur vinnur hann með fundið efni; málar
með skipalakki, úðar með úðabrúsalakki
og teiknar með tússi á fundnar tréplötur,
pappa eða beint á veggi, auk þess að nota
litrík límbönd á veggi.
Verk Davíðs Arnar eru gjarnan unnin
út frá ákveðnum atburði eða fyrirbæri
frá fyrri tíð, s.s. miðaldakastölum í sýn-
ingu hans Absalút gamall kastali í Gall-
erí Ágúst 2008 og Valþjófsstaðahurðinni
á sýningu hans nú í 101 Projects. Verk-
in eru þó ekki frásagnarkennd, þau eru
margræð og opin. Davíð útfærir persónu-
lega umhverfisskynjun sína í formi mynd-
máls, sem á sér grunn í og vísar til teikni-
myndagerðar, veggjalistar (graffiti),
pop-listar, op-listar, til vestrænnar lista-
sögu og listar frumbyggja Afríku og Ástr-
alíu. Bakgrunnur Davíðs úr námi í graf-
íkdeild við Listaháskóla Íslands leynir
sér ekki í verkum hans; það er sá efnis-
legi grunnur sem listamaðurinn byggir
á og nýtir í uppbyggingu mynda sinna. Í
101 Projects sýnir Davíð Örn staðbundin
veggverk og málverk, sem unnin eru með
blandaðri tækni á fundnar tréplötur sem
eru unnin á árunum 2007-2008.
Í fyrra hlaut Davíð Örn hæsta styrk úr
hinum virta Listasjóði Dungal.
Sýningin er opin til 22. febrúar 2009.
pbb@frettabladid.is
Valþjófsstaðahurð snýr aftur
MYNDLIST Davíð vinnur með málverkið með
óhefðbundnum efnum.
Myndskreytingar í íslenskum barnabókum 2008
Verið velkomin í Gerðuberg
á morgun sunnudag kl. 15
„Heyrðist eins og harpan væri að gráta“
Sýning á brúðum Leikbrúðulands úr Völsungasögu
Í Boganum: Úr högum og heimahögum
Málverkasýning Huga Jóhannessonar
Gerðubergi 3-5 111 Reykjavík Sími 575 7700 www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700
Dimmalimm - Íslensku myndskreytiverðlaunin
afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2008
www.leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Hrífandi verk sem snertir okkur öll. EB, FBL
sun. 18/1 uppselt
Klókur ertu, Einar Áskell
Bernd Ogrodnik
Krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin
sun. 18/1 síðustu sýningar
Sumarljós
Jón Kalman Stefánsson
leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson
Hrífandi, einlæg og æsandi sýning
lau. 17/1 örfá sæti laus
Heiður
Joanna Murray-Smith
Magnað meistaraverk
Frumsýning í Kassanum 24. janúar
Kardemommubærinn
Thorbjörn Egner
Frumsýning 21. febrúar
Miðasala í fullum gangi!