Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 96

Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Í dag er laugardagurinn 17. jan- úar, 17. dagur ársins. 10.49 13.38 16.27 10.54 13.22 15.52 Góð ráð falla aldrei úr gildi. Það var með það í huga sem ég gluggaði á dögunum í fyrstu tölublöð Kvennablaðs Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá því seint á þarsíðustu öld. Taldi ég líklegt að þar væri að finna ýmsan hag- nýtan fróðleik sem nýta mætti í kreppunni. Sú var líka raunin, ég hafði ekki lesið lengi þegar ég vissi allt um sláturgerð og kálbýt- inga og hafði að auki lært hvernig ráða má bót á tannpínu með því að sjúga blöndu af rommi og krít upp í nefið. AÐ öðrum tölublöðum ólöstuðum var það 9. tölublað ársins 1897 sem veitti mér mestan innblástur. Í leið- aranum „Hvaða gagn er að halda búsýslureikninga“ las ég mér til um mikilvægi heimilisbókhalds og strikaði með rauðu undir orð Bríetar þar sem hún segir: „Ef við höldum reikning, þá mun það draga okkur frá gagnslausri eyðslu.“ VISKAN jókst eftir því sem ég fletti blaðinu og smám saman fór mér að finnast sem þessi fróð- leikur hlyti að vera nýr. Hann átti bara allt of vel við. Dálkur, aftar- lega í blaðinu, þar sem fjallað er um ósæmilega framkomu stend- ur upp úr. Það þykir til dæmis ósæmileg framkoma „að tala jafn- an um peninga eða gróða. Að tala um hyggindi sín og hversu mikils- háttar maður sje,“ og „Að hæla sér af vináttu við auðmenn og mikils háttar fólk, eða það sem er enn þá verra, af auðlegðinni.“ Þótt þjóð- in hafi hvorki átt útrásarvíkinga né ráðherra á þessum tíma virðist listinn beinlínis skrifaður þeim til varúðar. Það liggur í augum uppi að efnahagsvandann má rekja til ósæmilegrar framkomu nokkurra einstaklinga. OG hvað gerir maður við svoleið- is fólk? Bríet kann svör við því. Í þessu sama átta blaðsíðna tölublaði er stutt grein af uppeldisfræði- legum toga undir fyrirsögninni „Skynsamleg refsing“. Þar er sagt frá dreng sem reynir að fá yngri og minni strák til að gefa sér helm- inginn af eplinu sínu. Þeir slást og sá stóri kemur blóðugur heim til föður síns sem húðskammar hann fyrir að hafa ráðist á minnimátt- ar. Í stað þess að löðrunga guttann segir faðirinn: „Þú átt að kaupa epli fyrir þína peninga, gefa litla drengnum það og biðja hann fyr- irgefningar.“ ÞETTA er náttúrulega myndmál en við sjáum öll hvert Bríet er að fara. Við þurfum bara að bíða eftir því að drengirnir sem höguðu sér svona ósæmilega gefi okkur aftur eplin sem þeir stálu frá okkur og noti til þess sína eigin peninga! Mig grunar samt að við þurfum að bíða lengi. Bríet kann svörin

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.