Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er laugardagurinn 17. jan-
úar, 17. dagur ársins.
10.49 13.38 16.27
10.54 13.22 15.52
Góð ráð falla aldrei úr gildi. Það var með það í huga sem
ég gluggaði á dögunum í fyrstu
tölublöð Kvennablaðs Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur frá því seint
á þarsíðustu öld. Taldi ég líklegt
að þar væri að finna ýmsan hag-
nýtan fróðleik sem nýta mætti
í kreppunni. Sú var líka raunin,
ég hafði ekki lesið lengi þegar ég
vissi allt um sláturgerð og kálbýt-
inga og hafði að auki lært hvernig
ráða má bót á tannpínu með því að
sjúga blöndu af rommi og krít upp
í nefið.
AÐ öðrum tölublöðum ólöstuðum
var það 9. tölublað ársins 1897 sem
veitti mér mestan innblástur. Í leið-
aranum „Hvaða gagn er að halda
búsýslureikninga“ las ég mér til
um mikilvægi heimilisbókhalds
og strikaði með rauðu undir orð
Bríetar þar sem hún segir: „Ef við
höldum reikning, þá mun það draga
okkur frá gagnslausri eyðslu.“
VISKAN jókst eftir því sem ég
fletti blaðinu og smám saman fór
mér að finnast sem þessi fróð-
leikur hlyti að vera nýr. Hann átti
bara allt of vel við. Dálkur, aftar-
lega í blaðinu, þar sem fjallað er
um ósæmilega framkomu stend-
ur upp úr. Það þykir til dæmis
ósæmileg framkoma „að tala jafn-
an um peninga eða gróða. Að tala
um hyggindi sín og hversu mikils-
háttar maður sje,“ og „Að hæla sér
af vináttu við auðmenn og mikils
háttar fólk, eða það sem er enn þá
verra, af auðlegðinni.“ Þótt þjóð-
in hafi hvorki átt útrásarvíkinga
né ráðherra á þessum tíma virðist
listinn beinlínis skrifaður þeim til
varúðar. Það liggur í augum uppi
að efnahagsvandann má rekja til
ósæmilegrar framkomu nokkurra
einstaklinga.
OG hvað gerir maður við svoleið-
is fólk? Bríet kann svör við því. Í
þessu sama átta blaðsíðna tölublaði
er stutt grein af uppeldisfræði-
legum toga undir fyrirsögninni
„Skynsamleg refsing“. Þar er sagt
frá dreng sem reynir að fá yngri
og minni strák til að gefa sér helm-
inginn af eplinu sínu. Þeir slást og
sá stóri kemur blóðugur heim til
föður síns sem húðskammar hann
fyrir að hafa ráðist á minnimátt-
ar. Í stað þess að löðrunga guttann
segir faðirinn: „Þú átt að kaupa
epli fyrir þína peninga, gefa litla
drengnum það og biðja hann fyr-
irgefningar.“
ÞETTA er náttúrulega myndmál en
við sjáum öll hvert Bríet er að fara.
Við þurfum bara að bíða eftir því
að drengirnir sem höguðu sér svona
ósæmilega gefi okkur aftur eplin
sem þeir stálu frá okkur og noti til
þess sína eigin peninga! Mig grunar
samt að við þurfum að bíða lengi.
Bríet kann svörin