Tíminn - 19.12.1982, Page 30
30
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
■ Pá er komið að þeim þætti í
lófalestri, sem ýmsir munu hafa einna
mestan áhuga á en hér er átt við
hjónabönc! og önnur sambönd af tilfinn-
ingalegum toga.Þeir sem aðeins hlusta
með öðru eyranu, meðan við segjum
þeim frá skapgerðareinkennum, starfs-
ferli og hæfileikum, munu draga stólinn
nær lófalesaranum, þegar hann minnist
á horfurnar í ástamálunum.
En munum að ekki er rétt að byrja á
því að lesa urn þessi efni í lófanum, því
ekki er hægt að ráða í hverning þessi
sambönd munu æxlast, fyrr en við vitum
hver sú persóna er, sem við erum að lcsa
í lófa á.
Einhverjar undarlegar ástæður ráða
því (einginn veit hvers vegna) að sá tími
cr fólk mun vcrða ástfangið er fyrirfram
ákveðinn þegar í vöggu. Svo er að sjá
að fyrirfram séu „stimpluð" inn hjá
okkur sérstök tímabil fyrir þessar tilfinn-
ingar. En mjög oft kemur það ekki í Ijós
fyrr en síðar hvort þessi sambönd verða
löng eða skammlíf og hvort þau færa
viðkomandi gleði eða sorg.
Við byrjum á því að Kta á handarjað-
arinn sjálfan neðan við litla fingurinn, -
svæði á milli hans og hjartalínunnar. Par
má koma auga á eina til fimm lárréttar
línur. Þær eru smáar og oft er gott að
hafa hjá sér stækkunargler, þcgar þær
eru athugaðar.
Þcssar línur eru til auðkennis nefndar
„giftingarlínurnar". En þar scm margir
hafa þrjár eða fjórar svona línurjæstir
færri en tvær, mundi Ktið vera um
ókvænta menn og ógiftar konur, ef taka
ætti bókstaflega mark á þessu. Því væri
mikið réttara að kalla línur þcssar
„ástarmálalínurnar." Er það komið und-
ir öörum vísbetidingum hvort um hjóna-
band verður að ræða eður eigi.
■ Tvær giftingarlínur á handarjaðrinum. Önnur línan
er með „þverstriki“ við endann, sem merkir einhverjar
alvarlegar hindranir. Hér er strikið í vinstri hendi, sem
merkir að hindrunin kemur upp af hálfu eiganda þessarar
handar. Hann er ef til vill þegar í hjónabandi...?
■ Þarna má sjá hönd með nokkrum áhrifalínum.
Stundum eru þessar línur talsvert fleiri, - en einnig
stundum ekki nema ein eða tvær.
Þegar í vöggu er það ákveðið hve-
nær ástin ber að dyrnm á ævinni!
Giftingar og barnalínurnar í lofanum lagðar undir stækkunarglerið
■ Hér tengir hjónabandslínan giftingarlínu og eina
áhrifalínanna. í þessu tilfelli ætti að vera óhætt að spá
hjónabandi. Á kortinu má sjá ýmis fyrirbæri sem við
munum fjalla um í næsta blaði, - ferðalínurnar, hálsmen
Venusar, dulrænu Iínuna og fleira.
Hver þessara lína vísar til eins á-
kveðins ástarsambands og eftir því sem
línan er lengri og skýrari, því lengra og
nánara verður sambandið. Ætla má að
sú línan sem skýrust er gæti helst táknað
hjónaband.
En á hvaða aldursskciöi mun ástin
berja að dyrum'? Það þarf mikla kunn-
áttu og langa æfingu til þess að svara þessu
nákvæmlega. Auðveldlega getur okkur
skcikað um tvö ár til eða frá. En í stórum
dráttum lesum við Knurnar svona:
Byrjið að lesa aldurinn frá hjartalínunni
og upp í átt að litlafingri. Lína á fyrsta
fjóðungi leiðarinnar sýnir ástasamband
sem til er stofnað á aldrinum 17-24 ára.
Lína á bilinu miðju merkir samband á
aldrinum 24-30 ára, en línur þar fyrir
ofan merkja sambönd á aldrinum 30-45
ára.
Línufjöldinn er ekki alltaf sá sami í
báðum höndum. Það er vegna þess að
í nægri hendinni er að finna fólk sem
elskar þig. en fólk scm þú clskar t hinni
vinstri. Ast er oft aðeins á eina hlið,
eins og við vitum. Sé því lína í vinstri
hönd, sem ekki á sér hliðstæðu ( þeirri
hægri, ætti viðkomandi að reyna að
gleyma „hinum elskaða" og það fyrr en
seinna. Astin verður ekki endurgoldin.
Því er nú ver að ekki fá allar ástir
góðan endi. Ef við viljum sannfæra
okkur um að eitthvert samband endi með
brúðkaupi, þá lítum á „áhrifalínurnar",
en þær eru sýndar á kortinu hér með.
Þetta eru langar og mjóar línur innan
við líflínuna á Venusarfjallinu. Hver
þessara Kna merkir fólk sem hefur áhrif
á líf okkar á umtalsverðan hátt.
Já,sé um giftingu að ræða, þá ætti
einhver áhrifalínanna að tengjast ein-
hverri „giftingarlínanna með mjórri
Knu, sem liggur þvert yfir lófann. Þessi
lína kemur þó oft ekki í lófann fyrr en
fólk hefur mæst og er farið að kynnast.
Þannig er oft ekki hægt að spá
hjónabandinu með löngum fyrirvara.
En þegar sKk lína er til staðar getum við
verið viss í okkar sök og spáð veisluborð-
um og klukknahljómi.
En víkjum nánar að „áhrifalínunum."
Við megurn ekki ætla að þær sýni þann
fjölda clskhuga og ástmeyja sem á vegi
okkar verða. Þær merkja einnig góða
vini eða tengdir, sem skipta okkur
miklu. Áhrifalína sem ekki er áföst
líflínunni, en liggur meðfram henni frá
byrjun táknar nær árciðanlega einhverja
eldri persónu (Kklcga annað foreldra, en
stundum barnfóstru, eldri bróður eða
systur) sem skipt hefur miklu máli á
barnsaldri.
En eins og áður segir, - einhver sem
við bindum við varanlegt tilfinningasam-
band í ástum er oft merktur með
„áhrifalínu". Tengilína sú sem áður er
getið við giftingarlínu, þarf þó vissulega
ekki að tákna löghclgað samband, -
varanleg sambúð fólks án hjónvígslu
kemur eins fram í lófanum.
( sumum lófum má sjá aðra tegund
„áhrifallna" sem staðsettar eru við
handarjaðarinn á Mánafjallinu. Tengj-
ast þær iðulega örlagalínunni og merkja
vini af gagnstæöu kyni. sem eru mönnum
hjálplcgir í Kfsbaráttunni. Þarna getur
auðvitað verið urn eiginkonu eða eigin-
mann að ræða, en svo þarf samt alls ekki
endilega að vera.
En til þess að ganga úr skugga um
hver endalok ástarsambanda okkar
verða, þá gefum enn nánari gætur að
litlu Knunum undir litlafingri. Sveigi
línan niður á við í endann þá merkir það
harm eða ekkju-(ekkils)-stand, en klofni
Knan í endann, þá er þá vísbending um
aðskilnað vegna fjarlægðar eða annars
aðskilnaðar. Þetta þarf ekki að vera
varanlegt. Slík merki hefur mátt sjá í
höndum karla og kvenna sem lengi hafa
verið skilin að skiptum á stríðstímum,-
ef til vill tvö eða þrjú ár.
Sé einhver Knanna jöfn og óslitin, þá
er þar merki um hamingjusamt samband
eða hjónaband. Þegar línan endar á
„þverstriki" er annar aðili vanalega í
hjónabandi fyrir. eða þá að trúarlegar
hindranir og þvíumlíkt eru til fyrirstöðu.
Haldi línan hins vegar áfram ýfir
þverstrikið, mun leið finnast til þess að
ryðja öllum fyrirstöðum úr vegi. Sé
„þverstrikið" aðeins í vinstri lófanum er
tálmanna að leita hjá eiganda handarinn-
ar, en sé strikið í þeim hægri, tengist það
hinum.
Lesa beráhrifalínurnar ÍVenusarfjall-
inu á sama hátt. Taki lína sem byrjar
nærri Kflínunni að fjarlægjast hana æ
meir mun viðkomandi persóna skipta æ
minna máli í lífi okkar. Slitin áhrifaKna
sýnir deilur og aðskilnað, eða þá einhver
vandræði, til dæmis sjúkdóma, sem
viðkomandi vinur okkar mun þjást af.
Miða má upphaf áhrifalínana við
aldurinn á Kflínunni. Viðkomandi pers-
óna fer að hafa áhrif á þeim aldri æfi
okkar, þegar áhrifalína hans hefst í
lófanum.
Línan sent tengir giningurlmu og
áhrifalínu, ætti að vera skýr og vel
mörkuð, ef við eigum að geta spáð
hamingjusömu hjónabandi. Tengist
grein frá henni Velgengnilínunni, verður
eiginmaðurinn eða eiginkonan vel cfn-
um búin og hinn ágætasti kostur
Börnin sem við eignumst
Flestir vilja fá að vita hvort og þá hve
mörg börn þeir munu eignast. Nú errétt
að taka fram stækkunarglerið, því börn
eru merkt í lófann sem örlitlar lóðréttar
Knur sem ganga upp frá þeirri af
„giftingalínunum" sem helst viðist benda
til að um hjónaband sé að ræða. Látum
ckki leiðast til þess að telja örmjóar
lóðréttar línur, sem ganga yfir allar
giftingarlínurnar á Merkúrfjallinu barna
línur. Raunverulegar barnalínur koma
upp frá aðcins einni giftinarlínanna og
snerta engar hinna. Hver glöggt mörkuð
lína er merki um heilbrigt barn.
Mjóar og, krókóttar línur sýna barn
sem er ef til vill ekki lífs auðið cða er á
einhvern hátt veikbyggt. Eyja á barna-
Knu er merki um veikindi þess.
Sagt er að sterkar og skýrar barnalínur
merki drengi, en óskýrari línur stúlkur.
En hér er úr vöndu að ráða, þegar um
svo veigalitlar Knur cr að ræða og
menn verða að hafa arnarsjón, ætli þeir
aðlesa margt út úr barnalínunum.
Fjarlægðin á milli bamalínanna ætti
að segja okkur hve langt verður á milli
þess að börnin fæðast, - lesist fyrst fjarst
lófanum og þá nær miðju hans.
Rétt er að bera alla spádóma um
barneignir saman við það sem armbönd-
in á úlfnliðnum segja, en um þau fjöllum
við í næsta blaði og snúum við okkar þá
að ýmsum ntinni merkjum í lófanum,
sem iðulcga vantar.
Sitthvað um lófalestur
Tíunda grein