Tíminn - 23.12.1944, Síða 8

Tíminn - 23.12.1944, Síða 8
8 T í M I N N v Bjartuv er enn um Bægisá bjarminn af séra Jóni. Hús voru pröng og pökin lág. ' — Þaö var svo títi á Fróni. Kynlega dýrð úr kytru sá klerkurinn heimagróni. Málið á tungu litríkt lá, listin var gerð að pjóni, i - / Tungunnar bar hann blóm og stál, ijlíður peim helgu dómum. Alpýðumanns og Eddu sál ómuðu í sömu hljómum. Honum var Klopstocks kviða pjál kveðin með Ijúflingsómum. Fléttaði hann í MiLtons mál mikið af íslands blómum. Hvarvetna dró hann efnin að. íslandi vann hans máttur. Selárdalsbarni í brjósti kvað bárunnar andardráttur. Fljótshlíðar átti hann blóm og blað, blíður var hennar páttur. Öxnadals gamni og griðastað gefinn var margur háttur Blés hanrm. eld, en ekki í kaun, andhverfis margt pótt gengi. Legðist á herðar lífsins'raun, lék hann á skœra strengi. Þáði hann að lokum pjóðskálds laun, pó að um seinan fengi. Óðurinn fagri upp um Hraun ómaði vel og lengi. Drengurinn heima z Hrauni pá hlustaði sæll og feginn. Fegurðin, sem í Ijóði lá, lék um hann öllum megin. Sproti pess máls, er ísland á, opnaði honum veginn. Titrandi var í von og prá vaknandi strengur sleginn. ■# Enn skulu slíkar auðnuspár íslandi möttul skera. Enn er í bjarma Bœgisár barni pess gott að vera. Þar er sinn harm og hjartasár hlœjandi létt að bera. Ylhýra málsins mennt og prár mannshjartað auðugt gera. 0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.