Tíminn - 23.12.1944, Síða 25
T f I I N N
25 '
„Ef börriin sakna mín of mikið í nótt, þá
sendið eftir mér. Ég ætla að Jara heim til
. mín, — þér vitið, hvar það er.“
„Ég þakka þér fyrir,“ sagði Hanna og
brosti. En tmeð sjálfri sér ákvað hún að
senda ekki eftir Yunú, hvernig sem krakk-
arnir grétu.
Hún útbjó morgunverðinn og annaðist,
um börnin. Hvorugt hjónanna minntist
einu orði á þjónustufólkið, nema þá stað-
reynd, áð það væri farið. En þegar Hanna
hafði fært fanganum morgunverð, kom
hún til Sadós og sagði:
„Hvernig stendur á því, gð við getum
ekki verið ákveðin í því, hvað við eigum
að gera? Jafnvel þjónustufólkið sér strax
, í hendi sinni, hvað ber að aðhafast. Hvers
vegna erum við frábrugðin öðrum sönnum
Japönum?“
Sadó anzaði engu. En stuttu seinna
. gekk hann inn í stofuna, þar sem fang-
inn var og sagði fruntalega:
',í dag máttu fara á fætur. Ég ráðlegg
þér að vera á fótum aðeins í fimm mín-
útur í einu. Á morgun máttu fara tvisvar
á fætur, jafnlengi í hvort skiptið. Það væri
gott, að þú g'ætir orðið heilbrigður aftur
eins fljótt og hægt er.“
Hann sá hræðslusviprium bregða fyrir
á andliti unga mannsins.
„Allt í lagi,“ sagði pilturinn í hálfum
hljóðum. Auðsjáanlega ætl'þði hann að
segja eitthvað meira. „Mér finnst ég standa
í þakklætisskuld við yður, læknir, fyrir
það, að hafa bjargað lífi mínu.“
„Þakkaðu mér ekki of fljótt,“ sagði Sadó
hryssingsl,ega. Aftur ísiá hann öttanum
bregða fyrir í augum piltsins, — ótta, jafri
augljósum og hjá hræddu dýri. Örin á
hálsi hans urðu fagurrauð eitt andartak.
Þessi líka ör! Af hverju skyldu þau stafa?
— En Sadó spurði einkis.
Er leið á daginn, kom annað atvik fyrir.
Hanna, sem önnum kafin var að vinna
störf, sem hún var óvön, sá, hvar einkenn-
isklæddur sendiboði kom að dyrunum. —
Þjónarnir höfðu þá eftir allt kjaftað irá!
Hún hljóp inn til Sadós með öndina í háls-
inum og gat engu orði upp komið. En
sendiboðinn hafði fylgzt með henni, og
þarna stóð hann. Hún benti á hann og
fann til óstyrks.
Sadó leit upp úr bók sinni. Hann sat
inni í skrifstofu.
„Hvað er það?“ spurði hann sendiboð-
ann, leit á einkennisbúning hans og reis
á fætur.
„Þér verðið að koma til hallarinnar,“
sagði maðurinn. „Gamli her'Shöfðingínn
er aftur orðinn þjáður.“
„Ó!“ hrópaði Hanna, er þetta allt
og sumt?“
„Allt og sumt?“ hváði sendiboðinn. „Er
það ekki nóg?“
„Vissulega,“ svaraði hún. „Ég bið af-
sökunar.“
Þegar Sadó kom til að kveðja hana,
stóð hún í eldhúsinu, án þess að hafa
nokkurn hlut fyrir stafni. Börnin sváfu,
og hún hafði sezt niður til þess að hvíla
sig og var fremur uppgefin af hræðslu,
heldur en áreynslu.
„Ég hélt að þeir væru að taka þig fastan,“
sagði hún.
Hann leit í óttaslegin augu hennar.
„Ég ver'ð að losa mig við þennan mann,
þín vegna,“ sagði hann vandræðalegur.
„Einhvern veginn verð ég að losa mig við.
hann.“
„Auðvitað," sagði hershöfðinginn dauf-
lega. „Ég skil fyllilega. En það er vegna
þess að ég hefi tekið háskólapróf í Prince-
ton. Það hafa fáir Japanir gert.“
„Mér er alveg sama um manninn, yðar
hágöfgi,“ mælti Sadó, „en eftir að ég hefi
skorið hann upp, með þessum árangri.... “
„Já, já,“ svaraði hershöfðinginn. „Það
gerir það eitt að verkum, að mér finnst
þér vera enn meira ómissandi fyrir mig.
Það er augljóst, að þér getið bjargað
hverjum sem er, þér eruð svo færir í starfi
yðar. — Þér segið, að ég geti þolað einu
sinni enn sams konar kast og ég hefi haft
í dag?“
„ En ekki oftar en einu sinni,“ mælti
Sadó.
„Þá get ég vissulega ekki átt það á
hættu, að neitt komi fyrir yður,“ mælti
hershöfðinginn með kvíða í röddinni. Lang-
leitt og fölt andlit hans varð sviplaust
og gaf til kynna ,að hann væri í djúpum
hugleiðingum. „Það má ekki taka yður
fastan,“ sagði hann og lokaði augunum.
„Segjum sem svo, að þér yrðuð dæmdir til
dauða, en næsta dag þyrfti að skera mig
upp? —“
„Það eru nú til aðrir skurðlæknar en
ég, yðar hágöfgi,“ sagði Sadó.
„Enginn, sem ég treysti,“ svaráði hers-
höfðinginn. „Þeir beztu hafa verið í skóla
hjá Þjóðverjum. — Þeir myndu telja upp-
skurðinn hafa heppnast, enda þótt ég
dæi af honum. Ég gef ekkert fyrir skoð-
anir þeirra.“ Hann andvarpaði. „Það virð-
ist vera aumt, að við skulum ekki geta
sameinað betur vægðarleysi Þjóðverjans
og næmleika Ameríkumannsins, — þá ætt-
uð þér að geta líflátið þennan fanga yðar,
án þess ég þyrfti að halda, að þér færuð
svo að lífláta mig, meðvitundarlausan í
höndum yðar. —“ Hershöföingýnn hlló.
l V
♦♦ f
1
| Kaupfélag Berufjarðar, Qjúpavogi
|
I 5tofnað 1920
i ■ *
I.
| Seíjum
♦♦
H
allar algengnstu erlendar og innlendar íiauösynjavörur.
Tökum í umboðssölu
allar innlendar afuröir.
Félat/smönnum vorum or/ öðrum viðsUlptamönnum óshm vér
GLEÐILEGRA JÓLA OG HEILLARÍKS KOMANDI ÁRS.
♦♦♦♦">'♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'
ŒMKWJæ)