Tíminn - 23.12.1944, Síða 43

Tíminn - 23.12.1944, Síða 43
% T f M I N N 43 Knad Kasm nssen: Takornaoq - Mitt úti á vatni miklu stóð gömul Eski- móakona og dorgaði fyrir urriða. Þótt skammt væri liðið á veturinn,, var ísinn svo þykkur, að hún hafði orðið að beita allri orku sinni til þess að höggva sér veiði- vök. Annað veifið þreif hún stóra snjó- skóflu og mokaði brott íshrönglinu, er safnaðist í vökina. Síðan lagðist hún á grúfu á skörina, svo að hún sæi betur til við veiðibrögðin, og laut svo mjög niður í vökina, að við sáum aðeins-bogna, skinn- klædda fæturna standa upp í loftið milli snjóskaflánna. Allt í einu rauk upp lítill hvolpur, sem legið hafði mjöllu drifinn á ísnum, og tók að gelta sem óður væri. Gamla konan spratt á fætur dauðskelkuð og sá þá Báts- manninn og mig vera komna nær fast að sér. Hundar okkar höfðu fyrir löngu kom- ið auga á hana og hvolpinn og hugðust"' nú að umkringja þau. Hún rak strax hátt óp, þreif í hnakka- drambið á hvolpi sínum og flúði eins hratt og fætur toguðu. En þessi æðisgengnu til- þrif konunnar æstu aðeins hunda okkar. Auk þess hafði þefur frá mannabyggðum þegar borizt þeim að vitum. Þeir þutu því af stað með slíkum ofsa, að með naum- indum var, að ég gat kippt flóttakonunni upp á sleðann um leið og við brunuðum fram hjá, og það hefir sjálfsagt verið heldur óblítt tak, sem ég tók. Hún sat nú þarna með skelfingarsvip. Ég skellihló. En varla var ég byrjaður að hlæja, 'er augu hennar fylltust tárum. Svo skelkuð var hún — svo glöð varð hún, er hún sá, að hún var hér meðal vina. Þetta var Takornaoq gamla — Mann- fælan. Oft hlógum við að því síðar, á hve hressilegan hátt kynni okkar hófust. Hún - læsti handleggj unum utan um hvolpinn, sem skrækti í sífellu, meðan við brunuðum áfram. En þegar lát varð á skrækjunum 1 hvolpinum, heyrði ég allt í einu nýtt hljóð, sem mér hnykkti við. Ég laut að konunni og fletti loðfeldinum gætilega frá henni. Undir honum sá ég lítið barn, sem krækti smáum höndunum um nakinn háls fóstru sinnar og kveinaði af eigi minni ákefð en uppeldisbróðir þess. Brátt kom byggðin í augsýn, — þrjú snjóhús, er við ókum heim að. íbúarnir komu hlaupandi út og voru á báðum áttum um það, hvort heldur þeir ættu að þeysa fagnandi á móti okkur eða flýja. En jafn- skjótt og þeir sáu bros og umsvif Takorna- oqs, afréðu þeir að koma á móti okkur og slógu hring um okkur í undrun og fegin- leik. Mannfælan bar ekki nafn með sanni. Með orðamergð, sem virtist svala henni mjög, skýrði hún frá öllum þeim nýjungum, er komu okkar fylgdu, og heppnaðist á- gætlega að vekja forvitni sambýlisfólks síns. Við vorum venjulegir lifandi menn, sagði hún, en frá landi, sem var langt, langt burtu — hinum megin við hafið. Takornaoq, sem nú þóttist ^tanda vel að vígi, kynnti mig xpeð móðurlegri um- hyggju og sagði mér deili á hverjum ein- um. Þarna var Inernerúmassúaq — Sá alltof fljótt skapaði, — gamall' særinga- maður, sem kynjaður var úr héruðunum við Segulskautið. Hann lygndi augunum meðan á kynningunni stóð og lét ekki undir höfuð leggjast, að vekja athygli Tlaniificlan mína á verndarbelti sínu, sem hann hafði utan yfir kápunni og alsett var alls konar dularfullum dýraleggjum, sem glamraði í. Kona hans var „Gælan“, feit og auðsveip, eins og hver sú kona, sem tengir örlög sín við kunnáttumann í dularfræðum, skal vera. Þau áttu hjörð barna, sem flyktust áð okkur; ekkert þeirra var komið á þann aldur, að því hefði verið nafn gefið. Þegar foreldrarnir höstuðu á þau, urðu þau að benda á þau. Þarna var líka Talerortabik, Hreifamað- urinn, sem kvæntúr var Úvtúkitsóq — -Kröppu skrjálunni — dóttur særinga- mannsins. Þau voru ekki mikil fyrir mann að sjá. En síðar komst ég þó að raun um, að það voru þau, sem héldu lífinu í spek- ingnum og hyski hans. Og loks var þarna Peqingassóq, — Sá bogni. Hann var kryppl- ingur, og Takornaoq sagði mér, að hann sækti urriðaveiðar svo fast, að stakkur hans væri ævinlega brynjaður að framan af legum hans við veiðivakirnar. Þegar hún sagði þetta, leit hann á mig þessu gáfulega, skyggna augnaráði, sem ein- kennir alla krypplinga. Fleiri voru byggðamenn. En þeir voru aðeins nefndir af mestu skyndingu, því- að nú vildi Mannfælan, að ég færi inn í hús hennar. Það var þokkalegt snjóhús, en fremur var kalt þar inni áður en kveikt var á lýsiskolunni. Undir eins og við Bátsmaðurinn höfðum hreiðrað um okkur í hlýjum hreindýrafeld- um í setinu og kjöt til matar hafði verið- sett yfir eld, hjúfraði húsfreyjan sig á milli okkar og rak okkur í rogastanz, með þeirri tilkynningu, að nú væri hún okkar beggja kona, þar eð maður sinn, er hún ynni þó hugástum, væri á ferðalagi. Síðan dró hún krakkann upp úr bakpoka sín- um og lagði hann með móðurlegu stæri- læti í belg úr héraskinnum. Hann hét Qasitsóq, Háröddin, sagði hún, í höfuðið á fjallaanda. Barnið var upphaflega tví- burasonur einhvers Nagsúks, Hornsins, og hafði kostað einn hund og steikarpönnu. Það var raunar alltof rifleg borgun fyrir þennan skinhoraða, litla anga, og hún gat ekki annað en barmað sér yfir því, Kolbeinn Högnason: Jafn og rór jólasnjór jörðu klœðir. Himins skin, helgilín, hryggð ei mœðir. Björt og hlý hátíð ný — hvergi nœðir — brosi með blíðkar geð, bölið grœðir. Hníg í sál helgimál hljóðra tíða. Grœddu sár, gefðu að tár gleymist lýða. Sendu frið, sem þarf við sjálfsagt víða. Glæddu trú, gefðu nú gæfu blíða. Viknar hjarn. Viðkvæmt barn verður, þegar kólnuð lund kyrra stund kœrleik tregar. Sœrður þegn sorgum gegn sér til vegar. Einn og hver álfur sér yndislegar. Barnið frítt brosir hlýtt. Birtan Ijómar. Logar blítt Ijósið nýtt. Loftið ómar. Hvíslar þrá. Hverfa þá hvassir dómar. Kallast á kirkjum frá klukknahljómar. að Hornið hafði leikið á hana og sjálfur haldið eftir feitari tvíburanum. Mannfælan talaði látlaust, og það leið ekki á löngu, unz við vissum talsverð skil á henni. Hún var hreykin af ætt sinni, Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár, þökk fyrir liðna árið. Vesturgotu 12 — Sími: 3570 — liaugaveg 18

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.