Fréttablaðið - 25.02.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
25. febrúar 2009 — 49. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Pappír
499kr.pakkinn 500 A4 blöð í pakkaFyrirtækjaþjónusta
PÖNTUNARSÍMI
550 4111
Ti
lb
oð
ið
g
ild
ir
út
fe
br
úa
r 2
00
9
FÓLK Meistaranemar í íslenskum bókmenntum við
Háskóla Íslands hitta hóp eldri borgara vikulega
til þess að skeggræða skáldsögur. „Þetta víkkar
sjóndeildarhringinn. Þessar konur eru áhuga-
menn um bókmenntir og sérstaklega gaman að fá
að ræða skáldsögur við þær frekar en prófessora
uppi í skóla. Þær hafa allt aðra sýn,“ segir Þor-
steinn Árnason Surmeli, einn bókmenntafræði-
nemanna og bætir við að leshringurinn sé ekki
hluti af náminu en nýtist svo sannarlega vel.
Þorsteinn segir umræðurnar oft beinast að mál-
efnum líðandi stundar og þannig sé sagan hverju
sinni sett í samhengi við það sem er að gerast.
„Þær eru líka svo góðar í ættfræði og geta tengt
höfundinn við ýmislegt sem við höfum ekki hug-
mynd um,“ segir Þorsteinn. Hópurinn hefur að
mestu einbeitt sér að íslenskum skáldsögum eftir
höfunda á borð við Sjón, Einar Kárason og Jón
Kalman. „Sumarljós eftir Kalman er sennilega
eina bókin sem við vorum öll sátt við.“ - rat /sjá Allt
Meistaranemar í bókmenntum og eldri borgarar efna til fjörugra umræðna:
Hittast og lesa skáldsögur
HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
Synti með hákörlum
við strendur Kambódíu
• á ferðinni • fermingar • nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Hefur heiðarleika og
réttvísi að leiðarljósi
Margrét Guð-
mundsdóttir kjörin
formaður Félags
íslenskra stór-
kaupmanna fyrst
kvenna.
TÍMAMÓT 16
UMRÆÐA Eldhúsdagur, nýtt viku-
legt fylgirit Fréttablaðsins, hefur
göngu sína í dag. Þar verður lögð
áhersla á umræðu
og skoðanaskipti
um stjórnmál
og þjóðmál og
leitast við að
birta vandað-
ar og upplýs-
andi greinar um
ýmis álitamál.
Í blaðinu í
dag ritar Skúli
Magnússon lögfræð-
ingur grein þar sem hann spyr
hvort stjórnarskrá Íslands hafi
brugðist. Gunnar Karlsson, próf-
essor í sagnfræði, fjallar um
umræðuna á mótmælavettvang-
inum, sem hann telur komna á
villigötur. Össur Skarphéðinsson,
iðnaðar- og utanríkisráðherra,
fjallar um atvinnutækifærin sem
hann telur að innganga Íslands að
ESB færi landsbyggðinni. - bs
Nýtt fylgirit Fréttablaðsins:
Eldhúsdagur á
miðvikudögum
Stjórnarskrá Íslands
Vefdeild 365 miðla leitar að kraftmiklum .net forritara Helstu verkefni eru:Viðhald og þróun margvíslegra .net kerfa, ss. Vísir.is, blogcentral.is, veftv-kerfis o.fl., skjölun
kerfa, samskipti við innlenda og erlenda undirverktaka/birgja vegna verkefna
Þekking/reynsla/menntun:- háskólamenntun æskileg, verkfræði, tölvunarfræði eða samsvarandi menntun
- mikil reynsla af visual studio 2005 og 2008
- reynsla á MS SQL Server 2005 og T-SQL- þekking á HTML/DHTML, Java Script, XML, XSLTViðkomandi þarf að:Geta unnið sjálfstætt og skilað verkefnum á réttum tíma, hafa góða samskiptahæfileika og
þjónustulund, hafa gott vald á íslensku og ensku, geta unnið vel undir álagi og hafa a.m.k. þriggja
ára reynslu af .net forritun
Sótt er um á vef 365 miðla - www.365midlar.is.
Frekari upplýsingar veitir Ágúst Valgeirsson framkvæmdastjóri tæknisviðs 365
í síma 5125540 eða agustv@365.is
Vilt þú vinna hjá skemmtilegu og líflegu fyrirtæki?
Afl landsbyggðarinnar Össur Skarphéðinsson:Íslensk fyrirtæki geta ekki keppt í klofstígvélum krónunnar í sprett-hlaupinu á mörkuðum heimsins., að mati iðnaðar- og utanríkisráð-herra. Eina færa leiðin sé Evr-ópuleiðin að upptöku evru sem framtíðar gjaldmiðli. Hann telur að með aukinni fullvinnslu sjávarfangs felist nýir tekjumöguleikar fyrir landsbyggðina í fullum og tollfrjáls-um aðgangi að markaði ESB.
Umræða á villistigumGunnar Karlsson:
Hefði beint lýðræði forðað Íslandi frá efnahagslegum óförum? Lík-lega ekki, segir Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði. Fulltrúalýð-ræði Vesturlanda er sannarlega ófullkomið segir hann en væri ekki vænlegra ef við reyndum að tala okkur í átt til lausnar innan þess, í stað þess að hafna því fyrir eitthvað sem við vitum lítið hvert kann að leiða?
Betra Ísland
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birkir Jón Jónsson og Eygló Harð-ardóttir:
Öll rök hníga að því að lækka stýri-vexti, að mati forystu Framsóknar-flokksins, sem reifar nýjar tillögur flokksins í efnahagsmálum. Þau telja forsendur fyrir Íbúðalánasjóð að fella niður 20 prósent skulda og vilja að erlendir kröfuhafar eignist hlut í bönkunum. Stjórnmál verði þó að hætta að snúast um smámuni.
EFNI BLAÐSINS MIðvikudagur 25. febrúar 2009
Í einu af grundvallarritum síðari tíma lög-fræði, The Province of Jurisprudence Determined (1832), taldi höfundurinn, John Austin, að stjórnlög væru í raun réttri ekki eiginleg lög, enda væru afleiðingar brots gegn þeim aðeins pólítískar og siðferðileg-ar. Hvað sem segja má um kenningu Austins, varpar hún ljósi á mikilvægt einkenni stjórn-laga: Þeim verður ekki framfylgt og virðing við þau tryggð með sama (einfalda hætti) og almenn lög. Ástæðan er sú að í stjórnlögum er einmitt kveðið á um stofnun og skipan þess samfélagsvalds sem stendur að baki hvers kyns lagareglum samfélagsins og tryggir framkvæmd þeirra. Í þessu felst raunar einn-ig það meginviðfangsefni stjórnlaga að beisla þetta vald og koma í veg fyrir misbeitingu þess.
Hollusta við grunngildinEn hvað koma okkur við pælingar réttar-
heimspekinga um eðli stjórnlaga? Jú, grein-
ing fræðimanna á stjórnlögum, svo og (hin
tiltölulega stutta) saga ritaðra stjórnarskráa,
hnígur öll að sömu niðurstöðu: Orð og texti
stjórnarskráa eru til lítils ef ekki er fyrir
hendi hollusta við grunngildi stjórnskipun-
arinnar, þ.e. stjórnmálasiðmenning þar sem
skilningur ríkir á því að hver stofnun þarf að
virða sín stjórnskipulegu mörk. Í ljósi glað-
beittra yfirlýsinga undanfarið um meinbugi
á íslensku stjórnarskránni og að sjálfsagt sé
að huga að grundvallarbreytingum, t.d. varð-
andi þingræði og hlutverk forsetans, á vett-
vangi stjórnlagaþings er óhjákvæmilegt að
spyrja hversu hollir Íslendingar hafa verið
núgildandi stjórnarskrá. Hugleiðum eftirfar-
andi dæmi:
Orðalag 26. gr. stjórnarskrárinnar um
málskotsrétt forsetans er skýrt og í stjórn-
skipulegu samhengi gegnir ákvæðið þýð-
ingarmiklu hlutverki við dreifingu valdsins
– forsetinn er eina stofnunin sem getur grip-
ið (lagalega) inn í lagasetningarferli þings-
ins og þannig veitt „ráðherraræðinu“ aðhald.
Sömuleiðis fer tilefni ákvæðisins ekki á milli
mála (þ.e. afnám konungsveldis og stofnun
lýðveldis) og tiltæk lögskýringagögn (athuga-
semdir við frumvarp og umræður) styðja
ótvírætt orðalagið. Allt þetta kom þó ekki
í veg fyrir, þegar reyndi á ákvæðið fyrir
alvöru, í svokölluðu fjölmiðlamáli árið 2004,
að lá við stjórnskipulegri kreppu vegna rétt-
aróvissu um raunveruleg völd forsetans. Þótt
þeim, sem vildu valdreifingu og hlut forseta
lýðveldisins í stjórnskipuninni sem minnst-
an, hafi ekki tekist ætlunarverk sitt, höfðu
þeir þó það upp úr krafsinu að flestir telja nú
að vafi ríki um túlkun 26. gr. stjórnarskrár,
skýra þurfi hlutverk forsetans að þessu leyti
eða þá fella það niður. Sú rödd heyrist hins
vegar hvergi að sýna mætti ákvæðinu og
rökum þess hollustu, m.a. með þeim hætti að
setja almenn lög því til skýringar og fram-
kvæmdar.
Stjórnskipuleg óvissuferðEr það sanngjörn niðurstaða að stjórnarskrá-
in hafi brugðist íslensku samfélagi í megin-
atriðum og það hljóti að vera óhjákvæmileg-
ur þáttur í viðreisn Íslands að byrja hér upp
á nýtt? Eða hefur okkur hugsanlega mistek-
ist að sýna núgildandi stjórnarskrá nægi-
lega hollustu og ræktarsemi? Hér verður því
haldið fram að án skilnings og trúnaðar við
grunngildi stjórnskipunarinnar sé hætt við
að ný stjórnarskrá fögur ásýndar verði létt á
metunum og þegar frá líði geti sótt í gamalt
far. Yfirvegaðar breytingar á afmörkuðum
atriðum stjórnarskrárinnar eru af hinu góða
og það eru vissulega atriði í íslenskri stjórn-
skipun sem þarf að koma til betri vegar. Öðru
máli gegnir um stjórnskipulega óvissuferð
á umbrotatímum sem kann að lykta með því
að stjórnarskránni verði í heild sinni varpað
fyrir róða með ófyrirséðum afleiðingum.
Hefur stjórnarskráin brugðist? SKÚLI MAGNÚSSONLögfræðingur
NÝJA ÍSLAND - HVENÆR KEMUR ÞÚ? Hálfköruð háhýsi og átök milli lögreglu og mótmælenda hafa sett svip
sinn á Ísland eftir bankahrunið síðasta haust. Á þingi er boðið í nefið.
Ökukennsla og ökuskóliEkill ehf • Holtateig 19 • IS 600 Akureyri • Sími: 461-7800 / 894-5985 • ekill@ekill.is
Eldhúsdagur er nýtt vikulegt fylgirit Fréttablaðsins sem leggur áherslu á umræðu og skoðanaskipti um stjórnmál og þjóðmál . Leitast verð-ur við að birta vandaðar og upp-lýsandi greinar um ýmis álitamál. Leitað verður eftir sjónarmiðum valinkunnra einstaklinga auk þess sem senda má gagnorðar greinar á netfangið greinar@frettabladid.is.
Góðhjartaðir
Valsmenn
Knattspyrnu-
lið karla hjá
Val safnar fé
fyrir bágstadda
þessa dagana.
ÍÞRÓTTIR 22
BALTASAR KORMÁKUR
Fær búningahönnuð
Drottningarinnar
Var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir The Queen
FÓLK 26
Brýtur blað
Þór Stiefel opinberar líf
sitt sem klæðskipt-
ingur á netinu.
FÓLK 26
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BÓKAVERÐLAUN BARNANNA verða veitt sumardag-
inn fyrsta, 23. apríl. Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið
bestu barnabækur af þeim sem komu út árið 2008. Hver les-
andi má velja allt að þrjár bækur með því að fylla út kjörseðil í
bókasöfnum eða með því að senda póst á thorbjorg.karlsdottir@
reykjavik.is.
Hjördís Guðmundsdóttir, nemi í samfélags- og hagþróunarfræði við Háskólann á Akureyri, er hald-in mikilli ævintýraþrá og hefur verið á faraldsfæti frá sautján ára aldri. Hún leggur land undir fót á hverju ári og dvelur að jafnaði erlendis í um hálft ár í senn. Þess á milli vinnur hún heima á Fróni og safnar fyrir næstu ferð.„Ég fór sem ski i
og dansinn hjá fólki,“ segir Hjör-dís en á síðasta ári dvaldi hún þó í Asíu. Hún lærði að kafa á Fil-ippseyjum og í Kambódíu svaml-aði hún í sjónum umkringd kolk-röbbum, sæhestum og hákörlum. „Köfun er það merkilegasta sem ég hef upplifað hingað til. Þrátt fyrir þungan súrefniskútii
ið „couch surfing“ á netinu. „Það hefur gefist mjög vel og þannig gefst kjörið tækifæri til að kynn-ast heimamönnum á hverjum stað fyrir sig.“
Síðastliðin tvö ár hefur Hjördís verið í samfloti með breskum i isínum Þ l
Ævintýraþráin ræður för
Hjördís Guðmundsdóttir hefur verið á faraldsfæti frá sautján ára aldri og ferðast heimshorna á milli með
farangurinn á bakinu. Hún er heilluð af Suður-Ameríku og finnst ekkert betra en að kafa í Kambódíu.
Hjördís hjólaði ásamt breskum ferðafélaga um lítt farna og ómerkta göngustíga í Víetnam enda vildu þau fara eigin leiðir og létu
hefðbundna ferðamannastaði lönd og leið.
MYND/ÚR EINKASAFNI
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
EFNAHAGSMÁL Deila er uppi milli
skilanefnda gömlu bankanna og
fyrirtækja um hvort og hvernig
gera skuli upp framvirka gjald-
eyrissamninga sem fyrirtæki, svo
sem sjávarútvegsfyrirtæki og líf-
eyrissjóðir, tóku fyrir gengishrun.
„Að óbreyttu stefnir í að dómstól-
ar skeri úr um þetta,“ segir Gylfi
Magnússon viðskiptaráðherra.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir sjávar-
útveginn vilja finna sanngjarna
lausn fyrir alla.
Forsendur séu fyrir því að
samningarnir verði allir felldir
úr gildi.
Dómstólaleiðin sé seinfarin og
óuppgerðir samningar hafi áhrif
á fyrirtækin á meðan.
„En ef skilanefndirnar vilja
ekki semja þá eru menn sammála
um að krefjast þess að þetta verði
fellt niður á grundvelli riftunar
eða ógildingar á grundvelli samn-
ingalaga,“ segir hann.
Framvirkir gjaldeyrissamning-
ar voru gerðir til að tryggja fyr-
irtæki fyrir gengisflökti, eða í
gróðaskyni. Fyrirtæki tók þá lán
í erlendri mynt og átti að greiða
það síðar á ákveðnu gengi. Fyrir-
tækið hagnaðist svo eða tap-
aði eftir því hvort krónan hafði
styrkst eða veikst síðan samning-
urinn var gerður. Í janúar sagði
þáverandi sjávarútvegsráðherra,
Einar K. Guðfinnsson, að öll rök
væru fyrir því að gera upp samn-
ingana á öðru gengi en því sem þá
var. Aðstæður væru breyttar og
erfiðar fyrirtækjunum.
Gunnar Tómasson hagfræð-
ingur benti þá á að slíkt „tvöfalt
gengi“ bryti í bága við samkomu-
lag stjórnvalda við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn, og gæti þýtt að lán
frá honum yrðu fryst.
Viðskiptaráðherra segir að um
tvöfalt gengi væri að ræða, ef
sett hefði verið almenn regla með
pólitískri ákvörðun um að sumir
samningar væru gerðir upp á
einu gengi en hliðstæðar kröfur í
öðrum samningum á öðru gengi.
„En ef það verður niðurstaða
dómstóla að einhver samningur
eigi að vera gerður upp á tilteknu
gengi, þá gengur það fyrir alla
sambærilega samninga. Það kall-
ast því ekki tvöfalt gengi.“
Þannig skeri dómstólar úr um
kjörin án atbeina ríkisins: „Nema
menn semji sig frá þessu fyrst.“
Lífeyrissjóðir telja samningana
einnig ógilda en eru tilbúnir til að
gera þá upp á ákveðnu gengi.
- kóþ / sjá síðu 8
Stefnir í málaferli milli
skilanefnda og sjávarútvegs
Líkur eru á að deila um framvirka gjaldeyrissamninga lífeyrissjóða og sjávarútvegs endi fyrir dómstólum. Pól-
itísk ákvörðun um uppgjör hefði þýtt tvöfalt gengi, gegn samningi við AGS. Framkvæmdastjóri LÍÚ vill semja.
6
2
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 25. febrúar 2009 – 8. tölublað – 5. árgangur
Vísbendingar um h k
Vistvænaprentsmiðjan!
Skilanefnd Kaupþings hefur skrif-að þýskum stjórnvöldum bréf og farið fram á að fá að gera strax upp við eigendur EDGE-innláns-reikninga. Ólafur Garðarsson, að-stoðarmaður bankans á greiðslu-stöðvunartímabilinu, segir búið að gera upp innlán í öðrum lönd-um.
Ferlið ytra segir Ólafur allt hafa verið hið þunglamalegasta þótt skilanefndin væri öll af vilja gerð. „Við getum greitt 80 pró-sent í gegnum útibú Kaupþings í Þýskalandi þar sem við erum með starfsfólk og buðum þýska fjármálaeftirlitinu að mæta með sitt fólk og hafa umsjón með ferl-inu,“ segir hann. 20 prósentin sem upp á vantar, 55 milljónir evra, eru fryst á reikningi í DZ Ba k íÞýskal d
Vilja borga í Þýskalandi
SENDIRÁÐ NORÐURLANDA Í BERLÍN
Þýskir kröfuhafar hafa sumir á orði að með
töfum vilji þýsk yfirvöld kenna þeim lexíu
fyrir að hafa ekki valið þýskan banka.
Jón Aðalsteinn Bergsveinssonskrifar
Alvarlegur efnahagssamdráttur er í Bandaríkjunum
og mun bandaríski seðlabankinn leita allra mögu-
legra leiða til að spyrna við því að þrengingarnar
verði langvinnar. Þetta sagði Ben Bernanke, seðlabankastjóri Banda-
ríkjanna, fyrir fjármálanefnd bandaríska öldunga-
deildarþingsins í gær. Hann taldi sýnt að mesti sárs-
aukinn verði tekinn út á fyrri hluta ársins. Efna-
hagslífið lagi sig að breyttum aðstæðum þegar líði
á seinni hluta árs og megi vænta betri tíðar á nýju
ári. Þó megi ekki útiloka að áhrifa kreppunnar nú
muni gæta á næsta ári takist ekki að koma á stöð-
ugleika á fjármálamörkuðum. Bandarísk stjórnvöld hafa gert flest sem í valdi
þeirra stendur til að draga úr áhrifum kreppunnar,
sem á að stórum hluta ættir að rekja til hruns á fast-
eignalánamarkaði vestan hafs. Hrunið, sem hefur nú staðið yfir frá um miðju ári
2007, hefur komið harkalega niður á helstu hluta-
bréfamörkuðum. Verulegur skellur var á hlutabréfa-
mörkuðum víða um heim í vikunni og fóru helstu
hlutabréfavísitölur vestra neðar en eftir netbóluna
og hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september
2001. Þá fóru bæði gamla og nýja Úrvalsvísitölurnar
í lægstu gildi í íslenskri Kauphallarsögu í gær.
Ein aðgerða nýrrar ríkisstjórnar Baracks Obama,
forseta landsins, eru kaup á hlutafé banka og fjár-
málafyrirtækja. Í vikunni sagði Timothy Geithner,
fjármálaráðherra landsins, viðræður hafnar við
bandaríska bankann Citigroup og tryggingarisann
AIG, sem búist er við að þurfi frekara fjármagn eigi
fyrirtækin að standa í lappirnar. Þetta er í takti við
ráðleggingar hagfræðiprófessorsins Nouriel Roubin-
is, sem sagði reyndar í samtali við CNBC-sjónvarps-
fréttastöðina í gær, vanda stjórnvalda gríðarlegan
þar sem fjármálafyrirtæki sem séu í vanda stödd
bæði orðin of stór og of mikilvæg til að fara á hlið-
ina á sama tíma og björgun þeirra geti orðið ærið
kostnaðarsöm. Ráðlagði hann bandarískum stjórn-
völdum að fara svipaða leið og Svíar í bankakrepp-
unni við upphaf tíunda áratugar síðustu aldar en þá
var fjármagni dælt inn í lífvænleg fyrirtæki sem
glímdu við tímabundna erfiðleika á meðan þau sem
voru verr stödd fóru í þrot.
Horfir í djúpa lægðSeðlabankastjóri Bandaríkjanna óttast djúpa kreppu fram á næsta ár. Doktor Dómsdagur mælir með sænsku leiðinni.
Skattasvikarar | UBS-bankinn í Sviss hefur samþykkt að greiða bandarískum stjórnvöldum um 780 milljónir dollara, jafnvirði um 90 milljarða króna, í bætur fyrir að hjálpa bandarískum fjár-magnseigendum að svíkja undan skatti í skjóli bankaleyndar.
Innrás í Bandaríkin | Breski milljarðamæringurinn Sir Philip Green hefur svipt hulunni af opnun Topshop í New York. Top-shop-keðjan er flaggskip auð-jöfursins en hann ætlar að opna fimmtán slíkar verslanir í Banda-ríkjunum á næstunni.
Nýtt líf | Breski bankinn Nort-hern Rock, sem þjóðnýttur var fyrir ári, hefur gengið í endur-nýjun lífdaga en stefnt er að þvíað hann hefji fljótl
Ósáttir stofnendur EnexVilja ekkert skúffufyrirtæki Jeffrey D. SachsAlþjóðlegt efnahagsátak
Verðmat gömlu bankannaEignastaðan næsta marklaus
4-5
KULDALEGT Í dag verður fremur
stíf norðlæg átt, 8-15 m/s hægastur
um mitt Suðurland. Þurrt suðvestan
til, slydda suðaustanlands um tíma
í dag annars snjókoma og síðar él.
Frost 0-8 stig en frostlaust syðst.
VEÐUR 4
-1
-5 -5
-3
2
KAUPÞING VILL BORGA ÞJÓÐVERJUM
Kvarta undan
seinagangi yfirvalda
Markaðurinn
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Fastan og kreppan
Fasta þekkist í öllum trúar-
brögðum um allan heim. Og
samtíminn þekkir föstu í tengslum
við heilsuátök til líkamlegrar og
andlegrar heilsubótar, segir Karl
Sigurbjörnsson biskup.
Í DAG 14
GERÐUR KLÁR TIL VEIÐA Hvalur 8 var tekinn í slipp síðdegis í gær en þetta ríflega 60 ára gamla hvalveiðiskip hefur legið við
bryggju í tvo áratugi. Skipið kvað vera í fínu standi en áformað er að Hvalur 8 og Hvalur 9 verði notaðir til langreyðarveiða í
sumar. Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, fylgdist vel með öllu ásamt áhugamanni um hvalveiðar. FRÉTTABLAÐIÐ STEFÁN