Fréttablaðið - 25.02.2009, Side 21

Fréttablaðið - 25.02.2009, Side 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 BÓKAVERÐLAUN BARNANNA verða veitt sumardag- inn fyrsta, 23. apríl. Lesendur á aldrinum 6-12 ára geta valið bestu barnabækur af þeim sem komu út árið 2008. Hver les- andi má velja allt að þrjár bækur með því að fylla út kjörseðil í bókasöfnum eða með því að senda póst á thorbjorg.karlsdottir@ reykjavik.is. Hjördís Guðmundsdóttir, nemi í samfélags- og hagþróunarfræði við Háskólann á Akureyri, er hald- in mikilli ævintýraþrá og hefur verið á faraldsfæti frá sautján ára aldri. Hún leggur land undir fót á hverju ári og dvelur að jafnaði erlendis í um hálft ár í senn. Þess á milli vinnur hún heima á Fróni og safnar fyrir næstu ferð. „Ég fór sem skiptinemi til Bras- ilíu á vegum AFS þegar ég var sautján ára en var frekar óheppin með fjölskyldu og endaði á flakki. Það varð til þess að ég fékk eins konar ævintýradellu,“ segir Hjör- dís sem er sérstaklega heilluð af Suður-Ameríku sem hún segir sjarmerandi og litríka álfu. „Ég hef ferðast um Brasilíu, Argent- ínu, Chile, Bólivíu og Perú svo dæmi séu tekin og hvergi er jafn stutt í brosið, hláturinn, sönginn og dansinn hjá fólki,“ segir Hjör- dís en á síðasta ári dvaldi hún þó í Asíu. Hún lærði að kafa á Fil- ippseyjum og í Kambódíu svaml- aði hún í sjónum umkringd kolk- röbbum, sæhestum og hákörlum. „Köfun er það merkilegasta sem ég hef upplifað hingað til. Þrátt fyrir þungan súrefniskútinn á bak- inu og klaufalegar jafnvægisæf- ingar í sjónum þá leið mér eins og litlu hafmeyjunni. Þetta er veröld án illsku og orða þar sem tíminn tifar í takt við ölduganginn,“ segir hún hugfangin. Hjördísi finnst best að ferð- ast ein með farangurinn á bak- inu. Hún er lítið fyrir að skipu- leggja ferðalögin í þaula og er því frjáls eins og fuglinn. Hún gistir á farfuglaheimilum og á heimil- um fólks sem býður ferðamönn- um gistingu í gegnum samfélag- ið „couch surfing“ á netinu. „Það hefur gefist mjög vel og þannig gefst kjörið tækifæri til að kynn- ast heimamönnum á hverjum stað fyrir sig.“ Síðastliðin tvö ár hefur Hjördís verið í samfloti með breskum vini sínum. Þau lögðu í þriggja mánaða hjólaferðalag um Víetnam síðast- liðið sumar þar sem þau fóru sínar eigin leiðir og létu hefðbundna ferðamannastaði lönd og leið. „Ég þarf varla að taka það fram að við týndumst þar eins og ann- ars staðar en rákumst loks á pínu- lítið þorp þar sem húsin stóðu á stultum. Þar höfðu íbúarnir aldrei séð hvíta menn og urðu að vonum hissa. Börnin föndruðu handa mér hjörtu og armbönd og fullorðna fólkið kleip mig og strauk mér til skiptis, hissa á hár- og hörundslit.“ vera@frettabladid.is Ævintýraþráin ræður för Hjördís Guðmundsdóttir hefur verið á faraldsfæti frá sautján ára aldri og ferðast heimshorna á milli með farangurinn á bakinu. Hún er heilluð af Suður-Ameríku og finnst ekkert betra en að kafa í Kambódíu. Hjördís hjólaði ásamt breskum ferðafélaga um lítt farna og ómerkta göngustíga í Víetnam enda vildu þau fara eigin leiðir og létu hefðbundna ferðamannastaði lönd og leið. MYND/ÚR EINKASAFNI ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.