Fréttablaðið - 25.02.2009, Page 29

Fréttablaðið - 25.02.2009, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 2009 7 Auðvitað á fólk að láta í ljós óánægju sína með mótmælum, síst hef ég á móti því. En mér finnst að umræðan á mótmælavettvang- inum hafi lent átakanlega á villi- stigum og farið að snúast í sífelldri endurtekningu um allt annað en kjarna málsins. Þessi grein er til- raun til að beina umræðunni inn á brautir sem eru vænlegri til árang- urs. Lýðræðiskrafan Mikið hefur borið á kröfum um meira og beinna lýðræði, og marg- ir hafa látið eins og efnahagsleg- ar ófarir okkar Íslendinga stafi af því að almenningur hafi ekki feng- ið að ráða. Því miður er þetta ekki rétt. Hugsum okkur að á árið 2007 hefði verið efnt til þjóðaratkvæða- greiðslu um útrásina, hvort ætti að halda henni áfram eða leggja bönd á hana: „Vilt þú að frelsi íslensku bankanna til að stofna innláns- reikninga í útlöndum verði tak- markað?“ „Vilt þú að lántökur og fasteignakaup íslenskra fyrirtækja erlendis verði stöðvuð?“ „Vilt þú að ríkisvaldið leggi meiri hömlur á starf íslenskra fjármálafyrir- tækja?“ Við vitum, bara af því að við munum hvernig fólk talaði, að yfirgnæfandi hluti kjósenda hefði svarað öllum þessum spurning- um neitandi. Útrásin hefði feng- ið ótvíræða traustsyfirlýsingu hjá þjóðinni. Beint lýðræði hefði engu bjargað. Talsvert ber líka á því að óánægða fólkið sé tilbúið að ganga nokkuð á lýðræðið í von um að finna „rétta“ leið út úr vandanum eða hefna sín á þeim sem er kennt um ófarirnar. Í haust hlustaði ég í útvarpi á hóp af gáfuðu fólki af báðum kynjum vera sammála um að nú ætti að fela konum einum að stjórna landinu. Það virtist ekki þvælast neitt fyrir þessu fólki að svipta helminginn af þjóðinni rétt- inum til að taka þátt í stjórnmálum og varpa ábyrgðinni af sérdrægni og óstjórn nokkurra tuga eða hundraða karlmanna á alla kyn- bræður þeirra. Líka hefur heyrst að lausnin væri að gera embætt- ismenn og sérfræðinga óháðari pólitískum valdhöfum. Sem gæti vel orðið til góðs, en yki vissulega ekki lýðræði. Nokkurra hundruða manna samkomur hér í Reykjavík hafa krafist þess að vera teknar gildar sem fulltrúar allrar þjóðar- inanr. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir benti kurteislega á að einstakl- ingur á fundi gæti ekki talað fyrir þjóðina alla, jafnvel þótt hann virt- ist hafa þúsund manna fund á bak við sig, og hefur henni verið legið ótrúlega mikið á hálsi fyrir að nefna þessa augljósu staðreynd. Fulltrúalýðræðið er lýðræði okkar Vesturlandabúa, þróað hæg- fara síðan á miðöldum. Það er langt frá því að vera fullkomið og getur gert reginskyssur eins og þá sem við súpum nú af seyðið. En ég held að við ættum að minnsta kosti að prófa að tala okkur í átt til lausnar innan þess í stað þess að einblína á að hafna því fyrir eitthvað sem við vitum lítið hvert kann að leiða. Stjórnarskrárvillan Eitt afbrigðið af villigötu leitar- innar að betra lýðræði er kraf- an um nýja stjórnarskrá. Þar ber mest á kröfu um þrískiptingu rík- isvaldsins, einkum að löggjafar- valdið verði óháðara framkvæmd- arvaldinu, ráðherravaldið minna. Allt er þetta reist á furðumiklum misskilningi. Kenningin um að ríkisvaldið eigi að skiptast á þrjá aðila sem séu óháðir hver öðrum er sprottin upp í konungsríkjum þar sem framkvæmdarvaldið var ólýðræðislegt, í höndum konungs og ráðgjafa hans. Þar var það lýð- ræðiskrafa að löggjafarvaldið yrði sem óháðast þessu arfgenga valdi. (Um þriðja þátt ríkisvaldsins, dómsvaldið, þurfum við ekki að ræða hér. Flestir munu sammála um að það eigi að vera sem óháð- ast.) Bandaríki Norður-Ameríku urðu til sem lýðveldi meðan kon- ungar voru enn einvaldir í Evr- ópu. Þau tóku upp kenninguna um skiptingu ríkisvaldsins og fengu þannig tvö (sæmilega) lýðræðis- leg stjórnkerfi hlið við hlið, annars vegar forseta með ráðherra sína, hins vegar löggjafarþing. Þetta hefur alltaf verið hálfgert klúð- ur; nú fyrir skemmstu höfum við heyrt í fréttum hvernig Obama for- seti hefur þurft að semja við þing- ið um að koma í gegn tillögum um brýnar úrbætur í efnahagsmálum Bandaríkjanna. Evrópuríki fóru flest aðra leið og tóku upp þingræði að fyrirmynd Breta. Þeir sem áður voru ráðgjaf- ar konunga urðu nú ráðherrar í ríkisstjórnum, í raun valdir af lög- gjafarþinginu og sífellt háðir því að njóta trausts þess. Þingið getur því haft gersamlega öll völd sem það vill gagnvart framkvæmdar- valdinu. Það getur rekið ráðherr- ana og valið sér nýja. Það getur breytt lagafrumvörpum stjórn- arinnar eins og því sýnist, einn- ig fjárlögum sem ráða mestu um framkvæmdir ríkisins. Ef ráðherr- arnir ráða er það af því að meiri- hluti þingsins vill hafa það þannig og kann engin betri ráð. Kenning- in um þrískiptingu ríkisvaldsins er því úrelt hjá okkur, og ég sé engar líkur til að það mundi leiða til góðs að taka hana upp. Flokkavillan Að hluta til snýst krafan um nýja stjórnskipun um það að afnema vald stjórnmálaflokkanna, og þá er oft talað um flokkana eins og þeir eigi allir jafna sök. Aðeins einn mann (Árna Bergmann í Víðsjá 30. janúar) hef ég heyrt benda á að það er langt frá því að flokkaveldið hafi leitt okkur út í þær ógöngur sem við erum í núna. Þvert á móti leiddi þær af því að stjórnmálaflokkarn- ir afsöluðu sér valdi yfir stofnun- um eins og ríkisbönkunum, seldu þá og létu markaðsöflum eftir að stýra þeim út í skuldafenið. En voru það ekki flokkarnir sem gerðu þetta? Ekki allir. Það var umfram allt Sjálfstæðisflokk- urinn með hjálp hagsmunaklíku sem kallaði sig Framsóknarflokk. Vissulega gekk Samfylkingin af furðumikilli einfeldni inn í þetta þrotabú nýfrjálshyggjunnar árið 2007, þegar Framsókn þótti ekki nothæfur lengur. En kjarni máls- ins er samt sá að það var Sjálfstæð- isflokkurinn og stefna hans sem stýrði út í ófæruna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki aðeins farið með stjórn Íslands í 18 ár heldur í rúm 64, síðan hann myndaði Nýsköpunarstjórnina haustið 1944. Þótt stundum hafi starfað án þátttöku hans svokall- aðar vinstristjórnir í allt að þrjú ár í senn komu þær sjaldnast nokkru til leiðar og hugsuðu oft mest um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn mundi bregðast við því sem þær gerðu og nota sér það í áróðri. Við höfum lifað nokkurn veginn við einsflokkskerfi Sjálfstæðismanna í mannsaldur. Lengi framan af stjórnaði flokkurinn ekki mjög ólíkt því sem sósíaldemókrata- flokkar gerðu í nágrannalöndun- um, með góðu velferðarkerfi og miklum ríkisafskiptum af efna- hagsmálum. (Með nokkrum klíku- skap vissulega, en miklir smámun- ir voru það sem flokksgæðingarnir stungu af með í samanburði við það sem hinir nýju ólígarkar okkar hafa gert.) Á tíunda áratug síð- ustu aldar skipti flokkurinn síðan um stefnu og fór að haga sér eins og réttnefndur hægri- nýfrjáls- hyggjuflokkur að fyrirmynd Mar- grétar Thatcher. Afleiðinguna af því reynum við þessa mánuðina. Það sannast hér sem sósíaldemó- kratar grannlandanna hafa lengi sagt: Markaðshagkerfi, kapítal- ismi, er því aðeins til farsældar að ríkisvaldið sé ekki í höndum kapítalistanna. Skipting valdsins á milli auðvalds og ríkisvalds er mikilvægasta valdskiptingin, ekki skipting milli ólíkra þátta ríkis- valdsins. Úrræðið Nú þarf umfram allt að taka rík- isvaldið varanlega af Sjálfstæðis- flokknum, ekki í hefnd fyrir mistök hans heldur af því að stefna hans og hagsmunatengsl eru óheppileg. Við þurfum að færa hann niður á fylgisstig skandinavískra hægri- flokka og útiloka hann frá ríkis- stjórn um hríð, kannski í 12, 16 eða 20 ár samfellt, hvað sem síðan kann að gerast. Við þurfum að fá til forystu í íslenskum stjórnmálum aðgætinn sósíaldemókrataflokk. Það á eftir að koma í ljós hvort Samfylkingin eða Vinstrihreyfing- in - grænt framboð bjóða sig betur fram í það hlutverk. Kannski er það þó ekki aðalatriðið í bili, því að næsta skref upp á við hlýtur að verða stjórnarsamstarf Samfylk- ingar og Vinstrigrænna. Umræða á villistigum GUNNAR KARLSSON prófessor í sagnfræði Þjóðfélagsumræða

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.