Fréttablaðið - 25.02.2009, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 25. febrúar 2009 7
Auðvitað á fólk að láta í ljós óánægju sína með mótmælum,
síst hef ég á móti því. En mér finnst
að umræðan á mótmælavettvang-
inum hafi lent átakanlega á villi-
stigum og farið að snúast í sífelldri
endurtekningu um allt annað en
kjarna málsins. Þessi grein er til-
raun til að beina umræðunni inn á
brautir sem eru vænlegri til árang-
urs.
Lýðræðiskrafan
Mikið hefur borið á kröfum um
meira og beinna lýðræði, og marg-
ir hafa látið eins og efnahagsleg-
ar ófarir okkar Íslendinga stafi af
því að almenningur hafi ekki feng-
ið að ráða. Því miður er þetta ekki
rétt. Hugsum okkur að á árið 2007
hefði verið efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu um útrásina, hvort ætti að
halda henni áfram eða leggja bönd
á hana: „Vilt þú að frelsi íslensku
bankanna til að stofna innláns-
reikninga í útlöndum verði tak-
markað?“ „Vilt þú að lántökur og
fasteignakaup íslenskra fyrirtækja
erlendis verði stöðvuð?“ „Vilt þú
að ríkisvaldið leggi meiri hömlur
á starf íslenskra fjármálafyrir-
tækja?“ Við vitum, bara af því að
við munum hvernig fólk talaði, að
yfirgnæfandi hluti kjósenda hefði
svarað öllum þessum spurning-
um neitandi. Útrásin hefði feng-
ið ótvíræða traustsyfirlýsingu hjá
þjóðinni. Beint lýðræði hefði engu
bjargað.
Talsvert ber líka á því að
óánægða fólkið sé tilbúið að ganga
nokkuð á lýðræðið í von um að
finna „rétta“ leið út úr vandanum
eða hefna sín á þeim sem er kennt
um ófarirnar. Í haust hlustaði ég
í útvarpi á hóp af gáfuðu fólki af
báðum kynjum vera sammála um
að nú ætti að fela konum einum að
stjórna landinu. Það virtist ekki
þvælast neitt fyrir þessu fólki að
svipta helminginn af þjóðinni rétt-
inum til að taka þátt í stjórnmálum
og varpa ábyrgðinni af sérdrægni
og óstjórn nokkurra tuga eða
hundraða karlmanna á alla kyn-
bræður þeirra. Líka hefur heyrst
að lausnin væri að gera embætt-
ismenn og sérfræðinga óháðari
pólitískum valdhöfum. Sem gæti
vel orðið til góðs, en yki vissulega
ekki lýðræði. Nokkurra hundruða
manna samkomur hér í Reykjavík
hafa krafist þess að vera teknar
gildar sem fulltrúar allrar þjóðar-
inanr. Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir benti kurteislega á að einstakl-
ingur á fundi gæti ekki talað fyrir
þjóðina alla, jafnvel þótt hann virt-
ist hafa þúsund manna fund á bak
við sig, og hefur henni verið legið
ótrúlega mikið á hálsi fyrir að
nefna þessa augljósu staðreynd.
Fulltrúalýðræðið er lýðræði
okkar Vesturlandabúa, þróað hæg-
fara síðan á miðöldum. Það er langt
frá því að vera fullkomið og getur
gert reginskyssur eins og þá sem
við súpum nú af seyðið. En ég held
að við ættum að minnsta kosti að
prófa að tala okkur í átt til lausnar
innan þess í stað þess að einblína á
að hafna því fyrir eitthvað sem við
vitum lítið hvert kann að leiða.
Stjórnarskrárvillan
Eitt afbrigðið af villigötu leitar-
innar að betra lýðræði er kraf-
an um nýja stjórnarskrá. Þar ber
mest á kröfu um þrískiptingu rík-
isvaldsins, einkum að löggjafar-
valdið verði óháðara framkvæmd-
arvaldinu, ráðherravaldið minna.
Allt er þetta reist á furðumiklum
misskilningi. Kenningin um að
ríkisvaldið eigi að skiptast á þrjá
aðila sem séu óháðir hver öðrum
er sprottin upp í konungsríkjum
þar sem framkvæmdarvaldið var
ólýðræðislegt, í höndum konungs
og ráðgjafa hans. Þar var það lýð-
ræðiskrafa að löggjafarvaldið yrði
sem óháðast þessu arfgenga valdi.
(Um þriðja þátt ríkisvaldsins,
dómsvaldið, þurfum við ekki að
ræða hér. Flestir munu sammála
um að það eigi að vera sem óháð-
ast.) Bandaríki Norður-Ameríku
urðu til sem lýðveldi meðan kon-
ungar voru enn einvaldir í Evr-
ópu. Þau tóku upp kenninguna um
skiptingu ríkisvaldsins og fengu
þannig tvö (sæmilega) lýðræðis-
leg stjórnkerfi hlið við hlið, annars
vegar forseta með ráðherra sína,
hins vegar löggjafarþing. Þetta
hefur alltaf verið hálfgert klúð-
ur; nú fyrir skemmstu höfum við
heyrt í fréttum hvernig Obama for-
seti hefur þurft að semja við þing-
ið um að koma í gegn tillögum um
brýnar úrbætur í efnahagsmálum
Bandaríkjanna.
Evrópuríki fóru flest aðra leið
og tóku upp þingræði að fyrirmynd
Breta. Þeir sem áður voru ráðgjaf-
ar konunga urðu nú ráðherrar í
ríkisstjórnum, í raun valdir af lög-
gjafarþinginu og sífellt háðir því
að njóta trausts þess. Þingið getur
því haft gersamlega öll völd sem
það vill gagnvart framkvæmdar-
valdinu. Það getur rekið ráðherr-
ana og valið sér nýja. Það getur
breytt lagafrumvörpum stjórn-
arinnar eins og því sýnist, einn-
ig fjárlögum sem ráða mestu um
framkvæmdir ríkisins. Ef ráðherr-
arnir ráða er það af því að meiri-
hluti þingsins vill hafa það þannig
og kann engin betri ráð. Kenning-
in um þrískiptingu ríkisvaldsins er
því úrelt hjá okkur, og ég sé engar
líkur til að það mundi leiða til góðs
að taka hana upp.
Flokkavillan
Að hluta til snýst krafan um nýja
stjórnskipun um það að afnema
vald stjórnmálaflokkanna, og þá er
oft talað um flokkana eins og þeir
eigi allir jafna sök. Aðeins einn
mann (Árna Bergmann í Víðsjá 30.
janúar) hef ég heyrt benda á að það
er langt frá því að flokkaveldið hafi
leitt okkur út í þær ógöngur sem
við erum í núna. Þvert á móti leiddi
þær af því að stjórnmálaflokkarn-
ir afsöluðu sér valdi yfir stofnun-
um eins og ríkisbönkunum, seldu
þá og létu markaðsöflum eftir að
stýra þeim út í skuldafenið.
En voru það ekki flokkarnir
sem gerðu þetta? Ekki allir. Það
var umfram allt Sjálfstæðisflokk-
urinn með hjálp hagsmunaklíku
sem kallaði sig Framsóknarflokk.
Vissulega gekk Samfylkingin af
furðumikilli einfeldni inn í þetta
þrotabú nýfrjálshyggjunnar árið
2007, þegar Framsókn þótti ekki
nothæfur lengur. En kjarni máls-
ins er samt sá að það var Sjálfstæð-
isflokkurinn og stefna hans sem
stýrði út í ófæruna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki
aðeins farið með stjórn Íslands í
18 ár heldur í rúm 64, síðan hann
myndaði Nýsköpunarstjórnina
haustið 1944. Þótt stundum hafi
starfað án þátttöku hans svokall-
aðar vinstristjórnir í allt að þrjú ár
í senn komu þær sjaldnast nokkru
til leiðar og hugsuðu oft mest um
hvernig Sjálfstæðisflokkurinn
mundi bregðast við því sem þær
gerðu og nota sér það í áróðri. Við
höfum lifað nokkurn veginn við
einsflokkskerfi Sjálfstæðismanna
í mannsaldur. Lengi framan af
stjórnaði flokkurinn ekki mjög
ólíkt því sem sósíaldemókrata-
flokkar gerðu í nágrannalöndun-
um, með góðu velferðarkerfi og
miklum ríkisafskiptum af efna-
hagsmálum. (Með nokkrum klíku-
skap vissulega, en miklir smámun-
ir voru það sem flokksgæðingarnir
stungu af með í samanburði við
það sem hinir nýju ólígarkar okkar
hafa gert.) Á tíunda áratug síð-
ustu aldar skipti flokkurinn síðan
um stefnu og fór að haga sér eins
og réttnefndur hægri- nýfrjáls-
hyggjuflokkur að fyrirmynd Mar-
grétar Thatcher. Afleiðinguna af
því reynum við þessa mánuðina.
Það sannast hér sem sósíaldemó-
kratar grannlandanna hafa lengi
sagt: Markaðshagkerfi, kapítal-
ismi, er því aðeins til farsældar
að ríkisvaldið sé ekki í höndum
kapítalistanna. Skipting valdsins
á milli auðvalds og ríkisvalds er
mikilvægasta valdskiptingin, ekki
skipting milli ólíkra þátta ríkis-
valdsins.
Úrræðið
Nú þarf umfram allt að taka rík-
isvaldið varanlega af Sjálfstæðis-
flokknum, ekki í hefnd fyrir mistök
hans heldur af því að stefna hans
og hagsmunatengsl eru óheppileg.
Við þurfum að færa hann niður á
fylgisstig skandinavískra hægri-
flokka og útiloka hann frá ríkis-
stjórn um hríð, kannski í 12, 16
eða 20 ár samfellt, hvað sem síðan
kann að gerast. Við þurfum að fá til
forystu í íslenskum stjórnmálum
aðgætinn sósíaldemókrataflokk.
Það á eftir að koma í ljós hvort
Samfylkingin eða Vinstrihreyfing-
in - grænt framboð bjóða sig betur
fram í það hlutverk. Kannski er
það þó ekki aðalatriðið í bili, því
að næsta skref upp á við hlýtur að
verða stjórnarsamstarf Samfylk-
ingar og Vinstrigrænna.
Umræða á villistigum
GUNNAR KARLSSON
prófessor í sagnfræði
Þjóðfélagsumræða