Fréttablaðið - 25.02.2009, Síða 36
16 25. febrúar 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Anna Sigurðardóttir
frá Brekku Norðurárdal,
sem andaðist að morgni mánudagsins 23. febrúar,
verður jarðsungin frá Reykholtskirkju laugardaginn
28. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á dvalarheimili aldraðra Borgarnesi.
Þorsteinn Þórðarson
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir Árni Þór Sigurðsson
Þórður Þorsteinsson Agnes Agnarsdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson Guðbjörg Sólveig Sigurðardóttir
Gunnar Þór Þorsteinsson Íris Inga Grönfeldt
Þórhildur Þorsteinsdóttir Elvar Ólson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Vilborg Kristín
Stefánsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Eir,
lést 19. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13.00.
Guðrún Ingólfsdóttir Haraldur Jónsson
Gissur Ingólfsson Lovísa Þorleifsdóttir
Sæmundur Ingólfsson Sigþrúður Hilmarsdóttir
Auður Ingólfsdóttir Ólafur Sigurgeirsson
Helga Ingólfsdóttir Pétur Valtýsson
Arna Ingólfsdóttir Páll Hreinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Jóhannsdóttir,
áður til heimilis Álfaskeiði 64,
lést á Sólvangi 23. febrúar. Útförin auglýst síðar.
Ingi J. Marinósson
Erla Eiríksdóttir Sigurður Hallgrímsson
Eiríkur Sigurðsson Elva Guðmundsdóttir
Guðríður S. Weiss Manfred Weiss
Ólöf Sigurðardóttir Már Sigurðsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpi,
tengdafaðir og afi,
Garðar Hlíðar
Guðmundsson
Ástúni 10, Kópavogi,
lést föstudaginn 13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Digraneskirkju fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast
hans er bent á styrktarreikning barnanna 1135-05-
411713 kt. 210164 -3759.
Kristín Ákadóttir
Sigmundur Bjarki Garðarsson Magdalena Sylvia Magiera
Rósa Kristín Garðarsdóttir Pétur Rúnar Guðmundsson
Hilmir Örn Garðarsson
Sylvía Tara Garðarsdóttir
Sigurlín Ellý Sigvaldadóttir Björgvin Þorsteinsson
Guðmundur Hlíðar Pétursson.
80 ára afmæli
Sigfús Svavarsson
Þúfubarði 8, Hafnarfi rði,
er 80 ára í dag 25. febrúar
Hann tekur á móti vinum og
vandamönnum milli kl. 17 og 20
á heimili sínu.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Garðar Steindórsson
Vesturtúni 5, Álftanesi,
sem andaðist að heimili sínu þriðjudaginn 17. febrúar,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju Í Hafnarfirði
föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00.
Jóhanna Guðrún Halldórsdóttir
Kristín Garðarsdóttir Björn Þórisson
Bryndís Garðarsdóttir Gísli Vagn Jónsson
Áslaug Garðarsdóttir Páll Hafnfjörð Hafsteinsson
afabörn, langafabarn
Sverrir Steindórsson
Útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
Önnu Fríðu Winther
Ottósdóttur,
fer fram frá Seltjarnarneskirkju, fimmtudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Ottó V. Winther Ellen H. Haraldsdóttir
Valdís Vilhjálmsdóttir Þórir M. Sigurðsson
Ingvar Vilhjálmsson Helga María Garðarsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Björn Guðmundsson
Lóni,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 12. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Stefanía, Margrét, Guðlaug, Ingunn, Einar og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ástu Ágústsdóttur
Miðleiti 4.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun og hlý-
hug.
Eggert Óskar Þórhallsson
Hafdís Eggertsdóttir Sveinn Eyþórsson
Ólafur Eggertsson Heiða Vernharðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Torfi Kristinn Jónsson
Mosabarði 6, Hafnarfirði,
lést á Vífilsstöðum 19. febrúar. Útför hans verður gerð
frá Jósepskirkju í Hafnarfirði föstudaginn 27. febrúar
kl 13.00.
Þórdís Hansen
Ólafur Árni Torfason Helena Högnadóttir
Jón Marías Torfason Viktoría Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, var kjörin
formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, FÍS, á aðalfundi
félagsins á dögunum en hún er fyrsta konan til að gegna því
embætti í 81 árs sögu félagsins. FÍS eru hagsmunasamtök
stórra sem smárra fyrirtækja í inn- og útflutningi, heildsölu
og smásölu. Margs konar innlend starfsemi er háð því að við-
skipti fyrirtækjanna gangi áfallalaust fyrir sig en fyrirtæki
innan vébanda félagsins flytja inn tækjakost fyrir virkjanir,
landbúnað og heilbrigðisstofnanir svo dæmi séu tekin.
Margrét tekur við formannsembættinu nú þegar rekstrar-
skilyrði stórkaupmanna og annarra sem stunda verslun eru
erfiðari en oft áður og á hún því vandasamt verk fyrir hönd-
um. „Við viljum reyna að tryggja að heiðarleiki og réttvísi
verði höfð að leiðarljósi við það uppbyggingarstarf sem er
fram undan. Aukin ríkisvæðing má ekki skerða samkeppn-
isstöðu fyrirtækja og við þurfum að fylgjast með því að ný
ríkisfyrirtæki fylgi sömu reglum og önnur fyrirtæki í land-
inu,“ sagði hún meðal annars í ræðu sinni eftir formanns-
kjörið. „Eins verður að tryggja að jafnræði og gagnsæi sé
í hávegum haft þegar ríkisbankar eru að leysa fyrirtæki í
samkeppnisrekstri til sín. Þá verður að gæta að því að pól-
itískir sérhagsmunir og spilling ráði ekki för þegar fyrir-
tækin verða seld.“
Margét segir orðspor íslensks atvinnulífs skipta félags-
menn miklu máli. „Í því sambandi geta stjórnvöld lagt sitt
af mörkum. Þau þurfa að sýna fram á heiðarleg vinnubrögð
og vilja til að vinna með öðrum löndum,“ segir Margrét og
nefnir að þó nokkur fyrirtæki hafi lent í því að erlend trygg-
ingarfyrirtæki sem hafa hingað til ábyrgst greiðslur frá Ís-
landi séu ekki tilbúin til þess lengur. Margrét segir íslensk
fyrirtæki hafa átt undir högg að sækja og að þau eigi nú í
vök að verjast. „Lánsfé hér á landi hefur verið mjög dýrt og
þar af leiðandi hafa mörg fyrirtæki sótt það út fyrir land-
steinana. Þau standa nú eftir með mjög dýrar skuldbinding-
ar og hefur gengi krónunnar og almennt viðskiptaumhverfi
veruleg áhrif á rekstur þeirra og hvernig þeim reiðir af.“
Margrét verður þó líka vör við jákvæða þróun. „Í starfi
mínu sem forstjóri Icepharma hef ég til að mynda fundið
fyrir góðum stuðningi erlendra aðila sem við erum í sam-
starfi við. Þeir hafa margir valið Ísland sem vettvang fyrir
sumarfundi og ráðstefnur sem lið í stuðningi við land og
þjóð.“ vera@frettabladid.is
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR:
Formaður FÍS
fyrst kvenna
ORÐSPORIÐ MIKILVÆGT Margrét segir orðspor íslensks atvinnulífs
skipta félagsmenn miklu máli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þennan dag árið 1964 birtist
fyrsta skopmynd Sigmunds Jó-
hannssonar frá Vestmannaeyj-
um í Morgunblaðinu en hún
sýndi landgöngu í Surtsey.
Fyrstu teikningar hans í blöðum
eru þó frá því upp úr 1960 en
þá gerði hann forsíður fyrir Vik-
una og Fálkann.
Skopmyndateikningar voru
í fyrstu aukavinna Sigmunds
með starfi við verkstjórn í frysti-
húsum í Vestmannaeyjum en
í Heimaeyjargosinu árið 1973
varð Sigmund fastráðinn við
Morgunblaðið. Upp frá því varð
skopmyndateiknun hans aðal-
starf. Sigmund, sem er vél-
stjóri að mennt, hefur auk þess
hannað fiskvinnsluvélar og fann
upp sjálfvirkan sleppibúnað
gúmbjörgunarbáta.
ÞETTA GERÐIST: 25. FEBRÚAR 1964
Fyrsta mynd Sigmunds
í Morgunblaðinu
GEORGE HARRISON FÆDDIST 1943.
„Hvað mig varðar þá munu
Bítlarnir ekki koma aftur
saman svo lengi sem John
Lennon heldur áfram að vera
látinn.“
George Harrison, tónlistarmað-
ur og Bítill með meiru, hefði
orðið 66 ára í dag. Hann lést
árið 2001.