Tíminn - 08.04.1993, Side 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 8. apríl 1993
Kannski eiga borgarbúar framtíðarinnar eftir að aka um brú yfir hættulegustu gatnamót landsins.
Munu framkvæmdir við ein hættulegustu gatnamót landsins kosta röskan hálfan milljarð króna?
Brúargerð á hættulegum stað?
BÆNDUR — BÆNDUR
VERÐSPRENGJA
Útvegum endurbyggða Mueller heimilismjólkur-
geyma beint frá verksmiðjunni Meko í Hollandi. Öll
mælitæki, rofar og kælikerfi fyrir Freon 22 er nýtt.
Full verksmiðjuábyrgð.
„0“-geymarnir
eru með
lokuðu
undir-
þrýstings-
kerfi.
Sjálfvirkur
4ra þátta
þvottabúnaður
tryggir
góða mjólk.
Mueller „0“ er fullkomnasti heimilisgeymirinn frá Mueller. Fyrir utan
ofanskráðan búnað er hitamælir, tímarofi fyrir gangsetningu hræri-
og kælikerfis milli mjalta og eins skömmu áður en nýmjólk bætist í
geyminn. Utvegum einnig aðrar gerðir endurbyggðra forkæla sem
draga úr rekstrarkostnaði.
Sparið og gerið hagstæð kaup.
BUIJÖFUR
KEILUFELLI47
SÍMI 75160
FAX 870290
Verður Miklabraut lögð í 250
metra brú yflr gatnamótin við
Kringlumýrarbraut, sem kosta
mun röskan hálfan milljarð
króna? Þetta er ein af þremur til-
lögum, sem koma fram í skýrslu
sem iyrirtækið Hönnun hf. hefur
unnið fyrir gatnamálastjóra og
eru til umræðu og skoðunar f
borgarkerfínu. Samkvæmt svo-
nefndu svartblettamati eru þessi
gatnamót þau hættulegustu á
landinu, hvað varðar slys og
árekstra.
Að sögn Sigurðar I. Skarphéðins-
sonar gatnamálastjóra eru þetta
einungis tillögur sem eru til skoð-
unar, og má jafnvel búast við að
þær verði fleiri. Hann á von á að í
lok þessa mánaðar eða byrjun þess
næsta verði málið tekið fyrir í
borgarráði.
Tillögur þær, sem merktar eru
eitt og tvö, eru nokkuð keimlíkar.
Sú fyrri heitir „Miklabraut á há-
brú“ og gerir ráð fyrir vegbrú, sem
leiðir umferðina um Miklubraut
yfir gatnamótin. Aðkoma Kringlu-
mýrarbrautar er á sama stað og í
sömu hæð og nú er. Gert er ráð
fyrir að brúnin sé um 250 metra
löng og framkvæmdir muni kosta
560 millj. kr.
Tillaga númer tvö gerir einnig
ráð fyrir vegbrú á sama stað, en
heldur styttri eða um 190 metra.
Þá eru gatnamót Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar jafnframt
lækkuð um tæpa 5 m. Þessi tillaga
nefnist „Miklabraut á lágbrú" og er
hún dýrust tillagnanna þriggja og
hljóðar kostnaðaráætlun upp á
650 millj. kr.
Miklabraut undir“ er heitið á til-
lögu númer þrjú. Eins og nafnið
ber með sér er gert ráð fyrir að
Miklabraut sé grafin niður í gjá, en
gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar liggi um brú
yfir gjána, og er gert ráð fyrir 500
millj. kr. framkvæmdakostnaði.
í skýrslunni er talað um að þarna
sé um forathuganir að ræða, sem
gefi aðeins lauslega hugmynd um
heildarkostnað. Þá kemur fram að
ítarlegri könnun þyrfti að fara
fram áður en nákvæm kostnaðar-
áætlun lægi fyrir. -HÞ
Aukin fiskvinnsla talin fljótvirkasta aðferðin til að
bæta atvinnuástandið í Keflavík:
Viðvarandi
atvinnuleysi
frá hausti ’91
Aukin flskvinnsla er álitin fljótvirk-
asta aðferðin til að bæta atvinnu-
ástandið í Keflavík, þar sem viðvar-
andi atvinnuleysi hefur verið frá
hausti 1991. Það er mikil breyting
frá því sem áður var, þegar í fjóra
áratugi þar á undan hafði einatt
skort vinnuafl í bænum, þótt árs-
tíöabundins atvinnuleysis hafl þar
gætt á stundum.
Atvinnuleysið ágerðist, þrátt fyrir
auknar aðgeröir bæjaryfirvalda á ár-
unum 1986-1990 til að efla atvinnu-
lífið og greiða fyrir atvinnurekstri,
m.a. með eignaraðild að tveimur
sjávarútvegsfyrirtækjum og bæjar-
ábyrgðum í auknum mæli vegna
lántöku fyrirtækja. Allt kom þó fyrir
ekki og áhrifa samdráttar í öllum
helstu greinum atvinnulífsins varð
ekki umflúinn, með þeim afleiðing-
um að atvinnuleysi kvenna hefur
verið um 10% og karla um og yfir
5%.
Þetta kemur m.a. fram í greinar-
gerð með viðamikilli skýrslu at-
vinnumálanefndar Keflavíkur um
hvert stefna beri í atvinnumálum
bæjarins. Þar kemur einnig fram að
helstu auðlindir Suðurnesja eru
fiskimiðin, auðlindir sjávar og sjáv-
arbotns, gufuorka og heitur jarðsjór,
Bláa lónið og önnur affallslón, að
ógleymdum heimamönnum á Suð-
urnesjum, sem hafa almenna og
staðgóða þekkingu á atvinnulífinu
og vilja til samskipta, samstarfs og
viðskipta við annað fólk og aðrar
þjóðir.
Að mati nefndarinnar er aukin fisk-
vinnsla þó háð því að flestir hinna
atvinnulausu komi úr fiskvinnslu-
störfum eða hafi vilja og hæfni til að
ganga í þau störf, sem ekki er sjálf-
gefið í ljósi reynslunnar. Nefndin tel-
ur að hægt sé að auka fiskvinnslu í
bænum með kaupum á aflaheimild-
um, en þó helst með því að kaupa
það erlendis frá, því ella sé verið að
bæta atvinnuástandið á kostnað
annarra með kvótakaupum úr öðr-
um landshlutum. -grh