Tíminn - 08.04.1993, Page 24
24 Tíminn
Fimmtudagur 8. apríl 1993
Til sölu
Honda XR 600, árg. ‘85, til sölu. Fallegt hjól í góöu standi.
Selst á kr. 190.000 staögreitt.
Uppl. í síma 91-41224 eftir kl. 18.
Póstur og sími auglýsir
lausa til umsóknar
stöðu í markaðs- og alþjóðadeild fjarskiptasviðs. Starfs-
sviöið verður samskipti við alþjóðasamtök og stofnanir,
þar á meðal innan Norðurlanda og Evrópu, sem fjalla að
öllu eða einhverju leyti um fjarskiptamál. Vegna sívax-
andi alþjóðlegrar samvinnu í fjarskiptum ásamt sam-
ræmingu við önnur lönd, sem mun aukast við inngöngu
íslands í EES, er um að ræða mjög fjölbreytt og áhuga-
vert starf.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun og
almenna þekkingu á fjarskiptamálum og alþjóðamálum.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannadeild stofnunarinn-
ar.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum sendist Póst- og
símamálastofnun fyrir 1. maí n.k.
PÓSTUR OG SfMI
Varnarliðið:
Kjötiðnaðarmaður
Varnarliðið óskar að ráða kjötiðnaðarmann með réttindi",
til starfa hjá nýlenduvöruverslun varnarliðsins.
Starfið felur í sér vinnslu og frágang á kjöti og fiski í neyt-
endaumbúðir ásamt tilheyrandi þjónustu við viðskiptavini.
Krafist er fagmenntunar ásamt hæfileikum til að vinna
sjálfstætt og eiga samskipti við aðra. Nokkur enskukunn-
átta er nauðsynleg.
Um er að ræða fast starf.
Skriflegar umsóknir berist til Varnarmálaskrifstofu, ráðn-
ingardeild, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, eigi síðaren 19.
apríl 1993.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað.
Hlutafélagaskrá
Laust er til umsóknar starf löglærðs fulltrúa hjá Hlutafé-
lagaskrá. Möguleiki er á hlutastarfi. Launakjör skv. kjara-
samningi BHMR og ríkisins. Upplýsingar um starfið gef-
ur Benedikt Þórðarson, forstöðumaður Hlutafélagaskrár.
Umsóknir sendist Viðskiptaráðuneytinu fyrir 30. þ.m.
Auglýsing
frá Bamavemdarsjóði
Hlutverk Barnaverndarsjóðs er að stuðla að forvörnum á sviði
bamavemdar og að upplýsa almenning um bamavemd.
Ákveðiö hefur verið að úthluta úr Bamavemdarsjóði til verk-
efna sem samrýmast framangreindum markmiðum sjóðsins.
[ umsókn skal tilgreina verkefni og tilgang þess og á hvaða
timabili það verði unniö ásamt upplýsingum um umsækjanda.
Umsóknum um framlög úr Bamavemdarsjóði skal skila til
skrifstofu Bamavemdarráðs að Laugavegi 36,101 Reykjavík,
fyrir 25. apríl 1993.
Stjóm Bamavemdarsjóós.
Þorsteinn Einarsson:
Leiðbeiningar og
hugleiðingar um
notkun þjóðfánans
Á miðju ári 1987 skipaði þáver-
andi forsætisráðherra, Steingrím-
ur Hermannsson, nefnd til þess að
endurskoða reglur um notkun
þjóðfánans. Fyndist henni ástæða
til, gera þá tillögur um breytingar.
Semja skyldi nefndin leiðbeining-
ar sem auðvelduðu almenningi að
tileinka sér réttan skilning á með-
ferð fánans.
Mun þessi nefndarskipun hafa
verið gerð fyrir áhrif frá forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Vafalaust mun hún sem margir
aðrir hafa séð hve notkun þjóðfán-
ans við ýmis tækifæri var ávant,
jafnvel röng. Við athugun orðið
áskynja að reglur um notkun hans
eða leiðbeiningar, sem voru 1964
gefnar út af dómsmálaráðuneyt-
inu á einblöðungi, voru ófull-
nægjandi.
Rétt hefur þótt að fá birtan út-
drátt úr lesmáli þeirrar ágætu
bókar, sem forsætisráðuneytið gaf
út í ársbyrjun 1991 um fánann og
önnur tákn þjóðarinnar. í bókinni
er einnig ágrip sögu fánans eftir
Birgi Thorlacius. Þó bókin hafi
fengist keypt hjá bóksölum og sé
ekki ýkja löng, hefur almenningur
leitað eftir leiðbeiningum í styttra
máli. Fram á síðastliðið ár fengust
í forsætisráðuneytinu leiðbeining-
ar þær, sem dómsmálaráðuneytið
gaf út 1964 og stangast í mörgum
atriðum á við efni fyrrnefndrar
bókar.
Sé almenningur í vafa um liti eða
hlutföll ísi. þjóðfánans, getur
hann fengið réttar upplýsingar við
skoðun fána, sem eiga samkvæmt
ákvæði í auglýsingu forsætisráðu-
neytisins frá 23. janúar 1991, að
vera til sýnis í Þjóðminjasafni ís-
lands og hjá lögreglustjórum (nú
sýslumönnum).
Með fánum framleiddum í fána-
saumastofu á Hofsósi fylgja notk-
unarreglur og eins með fánum
seldum í Veiðarfæraverslun El-
lingsens í Reykjavík.
Meginatriði notkunarreglna fána
eru sett fram í hinni fýrrnefndu
fánabók, en lausnir ýmissa sér-
stakra vandamála verða þar ekki
fundnar, til að mynda á hvaða
stöng skal draga ísl. þjóðfánann,
ef fánastöngum er raðað þvert á
byggingu í einni röð eða tvöfaldri,
sinn hvoru megin inngöngu og
jafnvel á þríhyrningslagaðan flöt á
hátíðasvæði eða á sporöskjulagaða
veggi íþróttavalla. Staðsetning
einnar stangar við lítið íbúðarhús
eða stórhýsi getur orðið vanda-
mál. Öll slík vandamál verða leyst
af hverjum og einum, með því að
afla sér rétts skilnings á megin-
reglum um meðferð þjóðfánans og
beita honum. í fánabókinni eru
ekki birtar töflur til glöggvunar á
hæðum stanga og stærðum fána
við hæfi þeirra. Þetta er gert í eft-
irfarandi leiðbeiningum. í sam-
bandi við hæðir stanga er rétt að
taka fram, að framleiðendur eða
innflytjendur hafa á boðstólum
fánastengur, sem að lengdum til
standa á heilum eða hálfum metr-
um og falla tölulega ekki fullkom-
lega að stærðum þeirra fána sem á
markaðnum eru. Hér verður hver
og einn, sem þekkir hlutaðeigandi
reglur, að fara þann meðalveg sem
leiðir til þess sem best hæfir hin-
um ísl. fána.
í erlendum alfræðibókum og
tímaritum má lesa upplýsingar
um gerðir og notkun fána, sem
ekki eru í samræmi við ísl. fána-
reglur og þvf skal varað við að fara
eftir þeim.
Fræðsla um gerð íslenska
fánans og leiðbeiningar um
notkun fána
Gerð fánans:
1. Almennur þjóðfáni, almenn-
ingi heimilt að nota.
2. Ríkisfána-tjúgufána noti Al-
þingi, ríkisstjórn, Hæstiréttur,
ráðuneyti og aðrar stofnanir ríkis-
ins innanlands og erlendis.
3. Fáni forseta íslands.
4. Fáni pósts og síma.
5. Fáni tollgæslu.
6. Fáni hafnsögumanns.
Hlutfall milli breiddar og lengdar
fánans: 18:25
Algengustu lengdir fánastanga
eru 6,30 m, 7,20 m og 8 m. Fánar
þeim við hæfi: 126x175 cm,
144x200 cm og 160x222 cm.
Stöng sem er 12 m hæfir 240x333
cm fáni.
Burðarstengur eru venjulega 270
cm, 300 cm, og lengst 450 cm.
Burðarfáni er 108x150 cm,
120x167 cm, 135x187 cm og
150x208 cm.
(Ath.: Stórfánar til burðar eða
flöggunar á mjög háum stöngum
eru ekki undanþegnir lögum um
hlutföll eða gerð hins íslenska
fána).
Stærð fána sem yfirleitt eru til
sölu. í svigum lengdir stanga við
hæfi.
90x125 cm (4 1/2 m)
110x150 cm (5 1/2 m)
125x175 cm (6 1/4 m)
135x187 cm (6 3/4 m)
150x208 cm (7 1/2 m)
162x225 xm (8 m)
198x275 cm (10 m)
216x300 cm (11 m)
Innbyrðis afstaða litarreita og
stærðir
Bláu stangarreitirnir eru fern-
ingar, þ.e. allar hliðar þeirra jafn-
langar. Ytri reitirnir eru jafnbreið-
ir ferningunum tveimur, en tvö-
falt lengri. Rauði krossinn á að
vera í miðjum hvíta krossinum, en
við það myndast jafnbreiðar hvítar
rendur meðfram honum. Breidd
rauða krossins á að vera 1/9 af
breidd fánans, en breidd hvítu
randanna helmingi minni, þ.e.
1/18 af breidd fánans.
Til að taka af vafa að því er snert-
ir litina er miðað við alþjóðlega
litastaðla eins og fram kemur í
auglýsingu forsætisráðunevtisins,
sem nú fer með fánamál. Ákveðið
hefur verið að framvegis verði
gögn varðandi fánalitina hjá ráðu-
neytinu og erlendis hjá sendiráð-
um íslands og fáni í réttum hlut-
föllum og litum skal vera til sýnis
í Þjóðminjasafni íslands og hjá
lögreglustjórum.
Fánastöng og fánastærð
a. Fánastöng getur verið annað-
hvort upp af húsi eða út frá hlið
þess. Skal stönginni komið fyrir á
smekklegan hátt. Einnig má reisa
fánastöng á jörðu.
Á efri enda fánastangar er æski-
legt að sé hnúður með skoruhjóli,
sem fánalínan leikur liðlega f.
Neðarlega á stönginni eða í beinu
framhaldi af henni sé snerill til að
festa fánasnúruna.
Hentugt er að fánastöng sé þann-
ig komið fyrir að auðvelt sé að losa
hana eða fella.
Fánastöng skal vera einlit.
b. Þegar fánastöng er reist á
jörðu skal leitast við að hafa hlut-
fall milli stærðar fána og lengdar
fánastangar við hæfi. Æskilegt er
að miða við að breidd fánans sé 1/5
af lengd fánastangar. Ef stöng er
upp af húsþaki, sé hún þrisvar