Réttur - 01.07.1927, Qupperneq 26
124
FRA ÓBYGÐUM
[Rjettur
Austan í stallanum er brött hlíð niður að Kili. Hún
er bein, en nokkuð svo vatnsgrafin, og nær óslitið frá
Þjófadölum norður á heiðar austanvert við Stórasand.
Norðurhluti þessarar hlíðar heitir Búrfjöll alt suður
að Hvannavallagili. Þaðan að Þröshiddi heita Tjnrna-
dalafjöll, en Þjófdalafjöll sunnan við þau, milli Þjófa-
daki:
Austur af Heiðingjaskarði standa tvö fell* á brúnum
Búrfjalla, en litlu vestar er þriðja fellið, og er það
Lyklafell. Norðan við þessi fell tekur Búrfjallahlíðin að
lækka og nefnist Búrfjallahali. Sunnan við fellin er
Neöra-Hundavatn austast á ömrum, en suðvestur það-
an, uppi við jökulrönd, en Sauðafell, eins og áður er
sagt. Skamt fyrir sunnan Hvannavallagil stendur dá-
lítill kollóttur hnjúkur á brúnum Tjarnadalafjalla.
Er hannn kallaður Litlikollur.
Frá Búrfjöllum og Tjarnadalafjöllum gengur öldótt
slétta upp að jökli. Slétta þessi er áframhald af ömr-
um, og er hún venjulega kölluð »bakvið fjöllin«. Hún
er nokkru lægri en brúnir fjallanna. Um sléttu þessa
vita menn annars næsta lítið. Norðantil kvað hún vera
hrauni hulin, og fram á hana gengur mikill skriðjök-
ull, er nær frá Sauðafelli suður að Þjófadölum.
Sunnan við Tjarnadalafjöll taka við Þjófadalir og
Þjófadalafjöll. Þjófadalirnir eru tveir, og ganga þeir
til norðurs og vesturs. Hefir vatn og jökull grafið þá
inn í stalla Langjökuls. Eystri dalurinn er fagur fjall-
dalur og furðu grösugur. Þennan dal nefnir Þorv.
Thoroddsen Miðdali, en oftast mun hann vera kallaður
Þjófadakir. Austan við þennan dal er fell eitt miðlungi
hátt, og heitir það Þjófafell. Lágur háls tengir það við
Tjarnadalafjöll. Hann heitir Þröskiddur. Þorvaldur
nefnir Þjófafellið Þröskuld, en það er rangt.
* Af fellum þessum mun nafn Búrfjallanna vera dregið, því að
Búrfell eru há og brött fell, sem líkjast fornum búrum.