Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 14

Réttur - 01.02.1942, Page 14
að sökum frelsisbaráttu alþýöunnar hefur ráðandi stéttunum ekki tekizt að sníða sérréttindum sínum svo rúmgóðan lagastakk, að hún þykist mega við una, að þau lög gangi jafnt yfir alla, heldur séu þau teygð og þeim rangað til, eftir því sem hagsmunix yfirstéttarinnar krefjast í það og þaö sinn. Það er þá hlutverk dómstólanna að drauja til hlutunum, eftir því sem hægt er, án þess að það liggi þó í aug- um uppi, að þessi lög séu að litlu eða engu höfð, eöa dómar séu felldir án allra heimilda í lögum. En að ganga beint í berhögg við gildandi lög og réttar- venjur og réttarvitund fjöldans, það leyfa borgaraleg þjóðfélög sér yfirleitt ekki, fyrri en kom'ið er á hið fasiska stig þeirra og þau verða að sprengja af sér ramma hefðbundins réttarfars. Þróun íslenzks þjóð- félags er enn of fjarri hinu fasiska stigi, til þess að hægt sé að skýra þetta fyrirbæri meö því einu. Enda er refsingin alltof væg, til þess að nokkurt vit sé í að setja dóminn í samband við fasiskar ofsóknir. Það gæfi alrangar hugmyndir um grimmd og glæpa- mennsku fasismans. Þá hef ég heyrt þá skýringu á þessu dómsfari, að til grundvallar liggi krafa frá brezkum aðilum, og verði íslenzka ríkið að beygja sig fyrir þeim kröfum sem minnimáttar aðili. Til stuðnings þeirri skoðun hafa menn fært þá staðreynd, að jafnframt því sem dómur er látinn ganga yfir um landráð o" látinn hljóða upp á varðhald, þá er refsing höfð svo lítil sem framast má verða. Það mætti einnig vera til að styðja þá tilgátu, að dómarar hefðu í mótmælaskyni við þvingunina hent frá sér dómunum, ekki aöeins órökstuddum, heldur rökstuddum með hreinum og beinum öfugmælum. En þrátt fyrir þessi rök, lít ég á tilgátu þessa sem hreina og beina fjarstæðu. Mér dettur ekki í hug aö ætla Bretum slíkan yfirgang 14

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.