Réttur


Réttur - 01.02.1942, Page 21

Réttur - 01.02.1942, Page 21
arinnar. sem enn dýrkar skáldskap og fagrar listir ekki af fordild, heldur af þrotlausri leit eftir fegurö og imaöi þessa heims. Hvorki trúir á betri framtíð mannanna, þessa heims né annars, og grunar til- gangsleysi allra hluta. Rangindi lífsins og þjáningar mannanna eru efni, sem þetta fólk telur sér ekki viðkomandi og það hef- ur ekki einu sinni sorgir til að fylla tóm síns til- gangslausa lífs. „Svo lítil eru takmörk þess, sem tím'inn leggur á oss, hann tekur jafnvel sárustu þjáninguna frá oss“. Að síðustu er aðeins óljós þráin eftir einhverju, sem gefur lífinu gildi. Jafnvel sár, sem ekki gróa, væru síðasta og einasta lækningin, en hún veitist ekki heldur. Aöe'ins tilbúnar sorgir og uppgerð gleöi. Síðustu línmnar í Stjörnum vorsins eru sem, and- varp hins lífsþreytta manns: „Æ, hversvegna er ekkert, sem heldur fyrir oss vöku. Og hversvegna kemur enginn að draga oss á tálar“. Jóhannes úr Kötlum hefur nú gefið út níu ljóða- bækur — þar af tvær með ljóðum fyrir börn. — Þótt bækur þessar beri mörg sameiginleg einkenni, eru þær þó hver annarri mjög ólíkar um margt. Þær lýsa skáldi, sem hefur þroskast stig af stigi og jafnan staldrað nokkuð á hverjum hjalla, meöan hann safnaði kröftum til næstu uppgöngu. Sé Jóhannes borinn saman við Tómas, verða þeir að mestu leyti tvær andstæður, sem geta varpað Ijósi hvor á aöra. Jóhannes er afburöa ríansnillingur, en formið er ekki nsarri alltaf eins fágaö og hjá Tómasi. Honum hættir til að ergja lesenduma. Suma með byltinga- sinnuöum skoðunum og aðra með smávægilegum misfellum og nærri því smekkleysum í formi og efn- 23

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.