Réttur - 01.02.1942, Síða 55
þriggja alda baráttu er rómverska ríkiö orðið svo
gegnsýrt af kenningu kristindómsins, hin skipulags-
bundna kristna kirkja var orðin slíkt máttarvald,
að rómverska ríkið varð að flýja á náöir heimar
til þess að bjarga því sem bjargaö varö í því mikla
flóði, sem nú dundi yfir ríkið og engir rómverskir
múrar gátu hamið.
Þjóðflutningar Germana voru síðasta aldan, sem
skall yfir Suðurlönd. Rómverska ríkið brotnaði í
tvennt, í austurhlutanum hékk það á horriminnl
enn í 1000 ár. En pólitísk eining Miðjarðarhafsins
og Suðurlanda var nú rofin, og hún hefur aldrei
komizt á aftur. ÞaÖ er þó ekki svo að skilja, að ekki
hafi verið reynt að endurreisa hiö rómverska ríki í
sinni fornu dýrð á Miðjarðarhafi. I byrjun 5. aldar
e. Kr. réðst germanskur þjóöflokkur, sem illræmd-
ur er oröinn, Vandalarnir, inn í Norðurafríku. Gen-
serek konungur þeirra lagði undir sig alla strand-
lengjuna austur aö Karþagó, byggði mikinn flota,
hertók allar eyjar í vesturhluta Miðjarðarhafs. Ætl-
un hans var aö leggja undir sig austurhluta róm-
verska ríkisins og hann kallaöi sig „konung jarð-
anna og hafanna“. Honum tókst aö vísu ekki aö ná
markmiði sínu, en hinsvegar tókst honum aö ganga
af verzlun og viöskiptum hafsins dauðum. Hinn
mikla keisara Austurrómaveldis, Jústinianus, dreymdi
mikla drauma um endurreisn fornrar rómverskrar
dýrðar á MiÖjarðarhafi og skamma stund virtist
draumur hans ætla að rætast. En þaö fór á annan
veg. Austur í Arabíu reis upp einhver stórkostlegasta
trúar- og landvinningahreyfing sögunnar, og hrifs-
aði mikinn hluta Miðjaröarhafs og landa þess und-
an yfirráðum kristinna og rómverskra yfirráða.
Múhameð, spámaður Allahs, skar upp herör gegn
hinum vantrúuöu. Þaö var einhver örlagaríkasti viö-
55