Réttur


Réttur - 01.01.1948, Page 5

Réttur - 01.01.1948, Page 5
RÉTTUR 5 hafði í rauninni rofið skipti vor við allar aðrar þjóðir en þau tvö engilsaxnesku stórveldi, sem höfðu oss í hers liöndum. Bretar keyptu framleiðslu vora, Bandaríkjamenn seldu oss nauðsynjar vorar. Þessi viðskipti, auk setuliðsvinnunnar í sjálfu landinu, færðu oss meiri tekjur í bú en oss hafði nokkru sinni dreymt um. Stríðsgróðinn, öllum öðrum sið- ferðissýklum skæðari, lagðist á hvers manns brjóst. En sér- staklega gekk hann þó þeim til hjarta, sem lögðu stund á verzlunarviðskipti vestan um haf. En þegar um þær mundir sem lýðveldið var stofnað, voru áhrif slíkra manna á ríkis- valdið orðin mjög sterk. Sumir þeirra sátu þá jafnvel í sjálfri ríkisstjórninni. Það er engum efa bundið, að í öll þrjú skiptin, sem full- trúa Islenzku þjóðarinnar skorti manndóm til að mæta hinu ameríska stórveldi á hreinum og ófölsuðum jafnréttisgrund- velli, var það ekki umhyggjan fyrir sjálfstæði íslands, sem úrslitum réð, heldur umhyggjan fyrir frelsi vissra þjóðfélags- afla til að tryggja sér viðskiptalegan hagnað í skjóli undan- látsseminnar. Þegar íslenzk stjórnarvöld neituðu þýzka flugfélaginu Lufthansa um sérréttindi hér á landi, höguðu þau sér eins og dyggum fulltrúum þjóðarinnar sæmdi, enda þótt það hafi kunnað að hindra einhverja viðskiptalega ívilnun. Sama máli gegndi, þegar brezka hernáminu var mótmælt. Enda þótt þau mótmæli væru að engu höfð, gerðum vér það eina, sem vér gátum og oss bar skylda til: að mótmæla hinu hern- aðarlega ofbeldi. í bæði skiptin var bjargað vorum siðferði- lega heiðri. En strax vorið 1941 var Adam horfinn úr Paradís. Þá lætur umboðslaust Alþingi íslendinga erlent herveldi kúga sig til að biðjast herverndar. Og biðjast þess raunverulega um leið að verða aðili í styrjöldinni. Hvað hafði gerzt á þessu eina herrans ári frá því hernáminu var mótmælt? Ekkert annað en það, að stríðsgróðasýklinum hafði unnizt tími til að yfirbuga siðferðilegt viðnámsþrek hinna borgara-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.