Réttur


Réttur - 01.01.1948, Side 19

Réttur - 01.01.1948, Side 19
RÉTTUR 19 ærið hlálegur. Ef gert er ráð fyrir að i erlendri höfn kosti vörurnar að meðaltali tvöfalt til 2i/2-falt meira en fyrir stríð, getum við allt að þrefaldað neyzluna fyxir þann gjaldeyri, sem við höfum yfir að ráða. Látum við okkur nægja að tvö- falda hina venjulegu neyzlu, borið saman við árin fyrir stríð, myndurn við geta notað mjög stórar fjárupphæðir eða ekki minna en 25% gjaldeyrisins til nýsköpunar. Hér er þó að- eins reiknað með þeim gjaldeyri, sem aflast hefur þrátt fyrir óstjórnina, sem nú er veista böl þjóðarinnar. Lánsfjárskortinn eru bankarnir látnir búa til. Enda þótt fiamleiðslan hafi aukizt svo stórlega sem öllum er kunnugt, og þar af leiðandi nauðsyn fyrir miklu meiri peningaveltu, hefur seðlaveltan verið minnkuð um ca. 60 miljónir frá því að hún var mest s.l. ár. I áætlunum sínum fyrir árið 1948 hefur fjárhagsráð verið trútt stefnu sinni. Og við þessar áætlanir voru fjárlögin miðuð. Framlög til verklegra framkvæmda voru skorin nið- ur, aftur á móti var þenslan á ríkisbákninu svo að undrum sætir. Fjárhagsráð og stofnanir þær, sem standa í sambandi við það, kosta fast að 4 miljónum króna. Útgjöld til lög- reglustjórnar, toll- og skattheimtu, dómgæzlu og opinbers eftirlits hækka um allt að 3 miljónum króna frá fyrra ári. Samtímis afgreiðslu fjárlaganna var hafizt handa um að brjóta niður framfaralöggjöf síðustu ára. Var byrjað á lög- unum um opinbera aðstoð við byggingu íbúðarhúsa og lög- unum um landnám og nýbyggðir. Lögboðin framlög til hvors tveggja þessara mála voru látin niður falla fyrst um sinn. ViSskiptasamningar Allvíðtækur samningur hefur verið gerður við Tékka. En í nóvember var hægt að gera miklu stærri og hagstæðari samning við þetta land, en þá neitaði íslenzka ríkisstjórnin fulltrúum sínum um umboð til að undirskrifa hann. — Horfur eru á, að samningur þessi verði mjög rýrður í fram-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.