Réttur - 01.01.1948, Qupperneq 24
24
RÉTTUR
Þetta eru skilyrðin, sem íelast í lögunum um Marshall-
hjálpina. En svo er enn eitt skilyrði, sem ekki verður frá
vikið samkvæmt yfirlýsingum forustumanna Bandaríkjanna.
Lönd þau, sem „aðstoðarinnar“ njóta, mega ekki hafa
kommúnista, en það útleggst raunverulega sósíalista, í
stjórn.
Ef land eins og ísland gengst undir skilyrði Marshall-
áætlunarinnar, er það orðið fjárhagslega og pólitískt ómynd-
ugt með öllu.
Nú fer að skiljast betur, hvað fyrir valdhöfunum vakir,
þegar þeir vinna að því að spilla viðskiptasamböndum okkar
við Austur-Evrópu og leggja slíka megináherzlu á að sætta
íslenzku þjóðina við „nauðsyn" þess, að kjör hennar verði
rýrð og afkomu hennar hljóti mjög að hraka. Það væri fjör-
ráð við íslenzkt atvinnulíf að rígbinda viðskipti okkar við
Ameríku eða amerískt umráðasvæði, eins og tilgangurinn
er með Marshalláætluninni. Afurðir okkar yrðum við að
láta af hendi fyrir sílækkandi verð, og það sem við fengjum
í staðinn, yrðum við að kaupa með okurverði. Þess vegna
hlýtur stórfelld skerðing á kjörum íslenzkrar alþýðu að vera
þungamiðjan í Marshalláætluninni, að því er til íslands
tekur.
Það er því mál til komið, að þeir, sem eiga hendur sínar
að verja, spyrni við fæti, taki höndum saman og skipi sér í
eina fylkingu.
16. apríl 1948.