Réttur


Réttur - 01.01.1948, Side 33

Réttur - 01.01.1948, Side 33
RÉTTUR 33 um. Tortryggni hans, óttinn við að svikja og verða svikinn gægist fram, þegar minnst varir. Þó var sem mannúð hans hefði að fullu sigrað þennan þungbæra eiginleika, þegar hann gerði för sína til Ráð- stjórnarríkjanna árið 1927 og gaf síðan út ljóðasafnið „Hið rauða fylkingarbrjóst“ (Den röde front). Hrifning hans virð- ist þá takmarkalaus. Þessi einþykki efunarmaður eys bein- línis út hjarta sínu af fögnuði yfir hinu hreinsaða Rússlandi, leystu undan oki keisara, aðals, klerka og annarra arðræn- ingja. Og hvílíkar áætlanir! Sem sprengjuheldur múr skal þetta nýja ríki rísa umhverfis fólk sitt, til þess að það geti þroskað hina auðugu hæfileika sína í einingu og friði! Hann heyrir landbúnaðarverkamann einn spyrja, ekki í neinum ásökunartón, heldur eins og undrandi: Heyrðu, félagi, þið segið stundum, að við höfum barizt fyrir sam- eiginlegri hugsjón. Nú höfum við haldið upp á tíu ára afmælið. Þið sögðuð, að þegar við liefðum sigrað, myndu öreigar allra landa sameinast, rísa upp og slást í förina. Hvenær ætlið þið að koma, félagar? Og Arnulf Överland kvað brennandi hvatningarljóð til þjóðar sinnar, þar sem hann skoraði á hana að fara að dæmi rússnesku alþýðunnar: varpa af sér okinu og taka land sitt úr klóm arðræningjanna — með ofbeldi. IV Nú hefst glæsilegasti kaflinn í ævi Arnulfs Överlands. Ekki svo að skilja, að ljóð hans séu alltaf betur ort en áður, að minnsta kosti ekki frá borgaralegu sjónarmiði. En þau eru hituð af eldi trúarinnar á sigur mannsins og lífsins, tendruðum við arin sósíalismans í Ráðstjórnarríkjunum. Það eru mestmegnis áróðursljóð, kveðin af þeirri sannfær- ingu, að þegar um líf eða dauða er að tefla, verði einnig listin að lúta nauðsyninni. Hann vegur að hræsni og rotnun auðvaldsþjóðfélagsins, ekki aðeins í ljóði, heldur og skörpum, hnittnum ádeilurit- 3

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.