Réttur - 01.01.1948, Page 35
RÉTTUR
35
safn hans frá þessu tímabili beri heitið: „Allt lifum vér af“
(Vi overlever alt).
Eitt er víst: það er ekki ljúf nauðsyn gömlum samherja og
aðdáanda skáldsins Arnulfs Överlands að hverfa fxá þeirri
hetjusögu, senx hér hefur að nokkru verið rakin, til þeirrar
harmsögu, sem nú tekur við. En tímarnir breytast og menn-
irnir með.
V
Upp úr styrjöldinni taka hin nýju hamskipti Arnulfs
Överlands von bráðar að koma í ljós. Áður en varir er hann
orðinn eldheitur stríðsmaður gegn sinni fyrri von: Ráð-
stjórnarríkjunum — og sósíalismanum um leið. Hann telur
sig að vísu sósíalista eftir sem áður. En hann virðist staur-
blindur fyrir þeirri staðreynd, að eins og nú er málum háttað
í heiminum, er það mannlegum mætti gersamlega ofvaxið
að hefja grundvallarárásir á ráðstjórnarskipulagið án þess að
sogast jafnharðan inn i innsta hring þess afturhalds, sem
vill það feigt. Með hversu miklum rétti sem einstök atriði
stjórnarháttanna þar eystia mætti gagnrýna, er liitt óliaggan-
leg staðreynd, að þetta þrx'tuga sameignarríki er nú höfuð-
vígið í baráttu sósíalismans gegn kapítalismanum. Hin ó-
fagra saga hægri sósíaldemókrata í Vestur-Evrópu um þessar
mundir sannar svo áþreifanlega sem verða má, hvar þeir
lenda, sem snúið hafa sósíalismanum upp í fjandskap við
Ráðstjórnarríkin.
Tortryggni Arnulfs Överlands gagnvart ráðstjórninni er að
vísu ekki ný. Það voru Moskvumálaferlin frægu, sem vöktu
hana fyrst. í ritgerðarsafni hans „Það er búið að hringja í
annað sinn“ (Det har ringt for annen gang), sem út kom
1946, getur að líta ræðu, sem hann flutti á umræðufundi
kommúnista í Osló vorið 1937, þar sem hann gagnrýnir
réttarhöldin mjög harðlega. Rök hans eru hin sömu og al-
kunn eru frá þeim tímum: hann skilur ekki fyrirbrigðið.
Hann skilur ekki játningar þessara uppgefnu manna. Hann