Réttur - 01.01.1948, Blaðsíða 36
36
RÉTTUR
skilur ekki, hvernig hin gífurlega aflraun hefur mulið alla
skapgerð þeirra í dust. Það er alkunnugt, hvað gáfaðir menn
geta reiðst, þegar þá þrýtur skilninginn. En hafi Överland
ekki skilið andlegt ástand liðhlaupans þá, ætti hann að vera
farinn að kannast við það nú.
Maður hefði vissulega getað vænst þess, að hin sameigin-
lega barátta gegn nazismanum hefði sannfært Överland um
gildi þeirrar pólitísku einingar, sem hreinsanirnar skópu, og
reyndist frumskilyrði sigursins í styrjöldinni. En það er ein-
mitt þveröfugt. Þegar takmarkinu er náð og nazisminn er að
velli lagður, snýst hann eins og óður gegn höfuðsigurveg-
aranum, hrækir framan í hann og æpir: Nú ert þú óvinurinn!
Þannig er tónninn í ritgerðarsafninu „Norðurlönd milli
austurs og vesturs", sem kom út á síðastliðnu ári.
Þar er svo komið, að hinn efagjarni sannleiksleitandi Arn-
ulf Överland gleypir hverja heimild ómelta, ef hún má verða
þessu fyrsta verklýðsríki veraldarinnar til dómsáfellis eða sví-
virðingar. í því falli verða allir sannsögulir og heiðarlegir,
eins og verið sé að segja Þórbergi draugasögu. Heil halarófa
svikara, allt ofan frá höfuðpaurnum Trotskí niður í vesa-
linginn Krafstjenko, verður honum eins konar fylking ó-
skeikulla guðspjallamanna. Jafnvel ein helzta rússaníðs-
heimild Morgunblaðsins, ameríska auðvaldstímaritið
„Time“, er honum fullnægjandi sönnunargagn.
Það þarf ekki að tilfæra ákærur Överlands eins og þær nú
hljóða. Þær eru nákvæmlega eins og þær væru soðnar saman
af þeim Valtý Stefánssyni og Stefáni Péturssyni í samein-
ingu: Ógnarstefna kommúnismans hefur tekið við af ógnar-
stefnu nazismans. Stalin er sams konar einræðisherra og
Hitler. Allir þeir ráðstjórnarþegnar, sem dirfast að láta í
ljós persónulegar skoðanir, eru „látnir hverfa“. Allar kosn-
ingar eru valdboðinn skrípaleikur. Leynilögregla vakir yfir
hverju fótmáli þessara 170 milljóna. Ánauð og átthagahönd
eru um öll ríkin. Verkamenn verða að vinna yfirvinnu til
þess að geta borðað sig sadda einu sinni í viku. Skólarnir