Réttur - 01.01.1948, Page 41
RÉTTUR
41
andi innanríkisráðherra Bandaríkjanna, byggð á ítarlegri
rannsókn. í Bandaríkjunum eru að nafninu til tveir stjórn-
málaflokkar, en allir vita að raunverulega eru þeir einn og
sami auðstéttarhringurinn, sem hefur 99,5% blaðakostsins
á valdi sínu. Stundum gefur jafnvel sami maðurinn út blöð
beggja flokkanna. Hrein glæpamannafélög stjórna þar stund.
um heilum borgum. 13 milljónir svertingja búa við látlausa
kúgun og ofsóknir og eru drepnir án dóms og laga, þegar svo
ber undir. Verkalýðssamtökin hafa raunverulega verið svift
frumréttindum sínum með hinum svokölluðu Taft-Hartley
þrælalögum. Fyrir styjöldina vörðu iðnfyrirtækin ein um 200
milljónum króna árlega í njósnir innan verkalýðshreyfing-
arinnar. Árið 1941 höfðu 64 fjölskyldur af hverju hundraði
innan við 6500 kr. i árstekjur. Auk allra blökkumannanna
voru 6 milljónir hvítra manna útilokaðir frá kosningaþátt-
töku í Suðurríkjunum árið 1946, vegna þess að þeir höfðu
ekki efni á að greiða tilskilinn kjörleyfisskatt. Við forseta-
kosningarnar 1944 greiddu 10% kjósenda atkvæði í Suður-
Karólínuríki. Síðastliðin tuttugu ár hefur yfir 100 prófess-
um í þjóðfélagsfræðum verið vikið frá embættum við banda-
ríska háskóla. Og með hinni nýju „hlutleysistilskipun“ Tru-
mans hefur verið hafin skipulögð herferð gegn öllum þeim
embættismönnum, sem bendlaðir eru við svokallaða „óamer-
íska starfsemi", en til hennar telst meðal annars það að vera
hlyntur stefnu Roosvelts heitins forseta. 11 milljónir dollara
voru veittar til framkvæmda þessari tilskipun. Um hana
skrifaði Pomerantz, fyrrverandi varaforseti Niirnbergréttar-
ins: „Vér höfum tekið hina þýzku harðstjórn uþþ i réttarfar
vort; þá harðstfórn, sem vér börðumst á móti og áfelldumst
svo harðlega."
Þarf að þylja fleiri dæmi? Af nógu er að taka. Nógar
eru sannanirnar, staðfestar af amerísku auðborgurunum
sjálfum, fyrir því, að í þessu vestræna dollararíki drottna all-
ar þær myndir kúgunar og ofbeldis, sem það er að reyna að
gera að tilefni árásarstríðs á sósíalismann. En út á slíkar