Réttur


Réttur - 01.01.1948, Side 52

Réttur - 01.01.1948, Side 52
52 RÉTTUR olíufélagið (Anglo-Iranian Oil Company). En áhrif þess á stjórnmálastefnu Englands í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafs eru alþekkt. Sú pólitík hefur enn fremur verið rekin undir eftirliti ensku flotastjórnarinnar. Og enn í dag er Tiarks einn af forstjórum þessa félagsskapar. Schröderbankinn hefur enn fremur lagt geysimikið fé í enska utanríkis- og útflutningsverzlun. Einnig ensk járn- brautarfyrirtæki í Suður-Ameríku o. fl. o. fl. Við smámuni fæst liann ekki. En bankastjórar hans hafa alls staðar hönd í bagga þar sem gerð eru stór og mikil viðskipti, er uppruna sinn eiga í London. Sclnöderættin hefur bolað sér inn í innstu hringa hins enska peningaaðals. Einn af sonum gamla Schröders og erfingi hans að bankanum á stórt höfuðból í Skotlandi eins og enskur aðalsmaður. Það virðist á engan hátt spilla fyrir honum, þótt hinn nýlátni faðir hans hafi á sínum tíma þegið aðalstign sína beint frá Vilhjálmi keisara og var auk þess riddarahöfuðsmaður að nafnbót. Þó er sú staðreynd ennþá þýðingarmeiri, að hið beina samband Schröderbankans við þýzka auðmagnið hefur aldrei slitnað. Á síðustu tímum hefur Schröderættin í London bæði gegnum fjölskyldu- og viðskiptasambönd tengzt mjög náið Steinbankanum í Köln, sem er í þjónustu stóriðnaðar- ins í Vestur-Þýzkalandi, sérstaklega stálkónganna í Ruhr. Þessi sambönd eru einmitt sérstaklega þýðingarmikil. Vitn- eskjan um þau bregður Ijósi yfir margt af því, sem þar gerist nú, og er síður en svo eingöngu bundið við svið fjármála- og viðskiptalífsins. III. Schröderbankinn tengir saman harðsvíruðustu auðhringa Englands og Þýzkalands Þegar fyrri heimsstyrjöldinni var lokið, flýttu stjórnendur Schröderbankans í London sér að endurbyggja brúna heim til föðurlandsins. Eftir skipulagðri áætlun dældu þeir bæði

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.