Réttur - 01.01.1948, Side 58
58
RÉTTUR
samningar eru gerðir milli einstakra einokunarhringa og
fyrirtækja, og þeir annast nauðsynlegar ráðstafanir þegar fé
er lagt í stór viðskipti. Enn fremur eru þeir einkasendi-
herrar einokunarhringanna. Þeir eru verkfæri hringanna til
áhrifa í utanríkispólitíkinni og gegn um hendur þeirra liggja
þeir þræðir, sem hringarnir leggja til annarra landa bæði í
pólitískum og viðskiptalegum efnum.
Þessir lögfræðilegu erindrekar eru því ómissandi þjónar
fyrir einokunarauðmagnið, sem hagar vinnubrögðum sínum
þannig, að miklu nær er reglum glæpamannasamsæra en
lieiðarlegum viðskiptum.
Húsbændur þeirra, sem ráðir yfir gífurlegu fjármagni, eru
að jafnaði forstjórar hringanna, sem erindrekarnir vinna
fyrir og oftast einnig meðlimir í stjórnum þeirra.
í New York er fjöldi slíkra lögfræðingafélaga. En stærst
þeirra og voldugast er félagið Sullivan og Cromwell.
Mörg merkileg blöð úr pólitískri og atvinnulegri sögu
Ameríku mætti skrá eftir skjölum, er geymd eru í skjala-
söfnum þessa félags, sem sérstaklega hefur sérhæft sig í þjóða-
rétti og hlutafélagsskap. Stofnandi þess William Nelson
Cromwell vann sér álit í lok 19. aldar á uppgangstíma amer-
ísku auðlninganna. Hann kunni þá list, að klæða starfsemi
þessara ræningjafyrirtækja í lagalegan búning á svo lævísan
hátt, að lögin stóðu máttlaus gagnvart þeim. Hann var einn
af stofnendum ameríska stálhringsins. Með hans aðstoð
tókst að ná yfirráðum Panamaskurðsins úr liöndum fransks
félags á vald Bandaríkjamanna.
Hann tók einnig þátt í stofnun ensk-ameríska nikkel-
hringsins, sem teygt hefur arma sína víða um heirn, og nú
nýlega sýndi svo Ijóslega áhuga sinn fyrir nikkelnámunum
við Petsamó.
Árið 1945 varð þessi „heiðursmaður" 91 árs að aldri. Síð-
astliðin 20 ár hefur hinn þekkti bandaríski stjórnmálamað-
ur John Forster Dulles verið raunverulegur stjórnandi fyrir-
tækisins Sullivan og Cromwell.