Réttur - 01.01.1948, Síða 72
72
RÉTTUR
vinna að sameiningu Evrópu (British United Europe
Committee.) En John Dulles er nú eftir lát Roosevelts orð-
inn einn áhrifamesti maður í bandarískri utanríkispólitík.
í ræðunni komst hann m. a. þannig að orði:
„Rínarhéruðin með kolum sínum iðnaði og vinnuafli eru
frá náttúrunnar hendi hjartað í framleiðslu- og hagkerfi
Vestur-Evrópu. Frá þessu svæði á að koma það afl, sem þarf
til viðhalds lífinu, ekki aðeins í Þýzkalandi sjálfu, heldur
einnig í nágrannalöndum þess í vestri. Ef svo verður mun
a. m. k. Vestui'-Evrópa með sínum 200 milljónum íbúa geta
þróast til að verða enn þá auðugra, friðsamt land með blóm-
legu atvinnulífi.“ Dulles undirstrikaði þetta enn fremur með
því að benda á Bandaríki Ameríku, sem eðlilega fyrirmynd
er höfð væri við uppbyggingu Evrópu.
Hvað er þetta svo, annað en hinar gömlu viðskipta- og
fjármálaáætlanir Schröderbankans, þessa kolkrabba við-
skipta og atvinnulífsins, sem er skilgetið afkvæmi þýzku
heimsvaldastefnunnar og kynslóð eftir kynslóð hefur haldið
nánum tengslum við þessa sömu heimsvaldastefnu, þótt
höfuðstöðvar hans væru löngu fluttar til Bretlands og Banda-
ríkjanna? Hann tengdi þannig örlög sín við þýzku stóriðj-
una jafnframt því sem liann varð fulltrúi fyrir City og litli
bróðir í félagi milljarðaeigendanna í Wall Street. Það er
þessi staðreynd, hve risavaxið og samanþjappað alþjóðlegt
auðmagn hefur staðið bak við Schröderættina, sem fyllilega
skýrir það, hvernig þessi hringur, sem vinnur bak við leik-
tjöld brezkra og bandarískra utanríkismála, hefur náð þeim
geysiáhrifum, sem raun ber vitni. Kol, stál, olía, peninga-
vald, allt þetta sameinast í hinum þétta frumskógi einokun-
arauðvaldsins, þar sem orðin: landamæri, ríki og þjóðir eru
einskis metin hugtök. Þegar Dulles talar og þegar Churchill
talar, þá eru það Rockefeller og Schröder, sem tala. í þessari
blökk finnast auðvitað fleiri öfl, sem beita áhrifum sínum
á pólitíska forustumenn hennar. En þetta eina dæmi sannar
fyllilega þá ályktun, að sú stjórnmálabarátta, sem nú er háð