Réttur - 01.01.1963, Page 15
R É T T U R
15
og var það gert. Allt lögfræðilegt starf stöðvaðist. Bönkum var
lokað. Kennarar tóku þátt í verkfallinu nieð.
Almenna verklýðssambandið og félag járnbrautarverkamanna,
sem er stærsta verklýðsfélag landsins skoruðu á menn að gera verk-
fall. í þ ví tóku og þátt rafmagnsmenn, síma- og loftskeytamenn.
Krafa allra þessara aðila er um nýjar kosningar, myndun lög-
legrar, heiðarlegrar stjórnar, er komi á binum óbjákvæmilegu end-
urbótum í landbúnaðarmálum, húsnæðismálum, sjálfstæðismál-
um o. fl.
Verklýðsflokkur Guatemala studdi eftir mætti þessar aðgerðir.
Ríkisstjórnin beitti vægðarlausri kúgun. Alls voru um 50 manns
drepnir fyrir aðgerðir hennar, um 500 særðir og um 100 fangels-
aðir. Herforingjaklíka stjórnar landinu. Það hefur ekki einu sinni
verið bægt að mynda ríkisstjórn.
Hetjubarátta skæruliðanna veldur ekki úrslitum í þessari viður-
eign, þrátt fyrir allt bugrekki þeirra og fórnfýsi.
Höfuðþungi baráttunnar verður að koma frá fjöldanum í þorp-
um og bæjum. En hin vopnaða barátta er nú þegar á dagskrá sem
ein aðferðin til þess að steypa afturhaldsstjórninni og koma á þjóð-
legri byltingarstjórn.
En það eru líka möguleikar á friðsamlegri og löglegri baráttu.
Og hvortveggja þarf að bagnýta.
Hreyfingin gegn afturhaldinu og leppstjórninni eflist. Verkalýðs-
flokkur Guatemala hefur skorað á byltingaröflin að nota tímann til
að sameinast og varað við brögðum þeim, er Bandaríkjastjórn
muni beita, til þess að ræna fólkið ávöxtum baráttunnar: Koma á
nýrri leppstjórn, er fólkið fellir þá gömlu. Beitir flokkurinn sér
fyrir einingu allra lýðræðisafla um ákveðna stefnuskrá gegn barð-
stjórninni.
Það eru umbreytingar í aðsigi í Guatemala. Nýtt tímabil í bylt-
ingarbaráttu alþýðunnar er hafið. Og hvernig sem breytingarnar
verða, þá er aðalatriðið að bin nýja barátta mun leiða til fullkomins
frelsis alþýðunnar, láta vonir hennar um sjálfstæði, framfarir, lýð-
ræði, velferð og frið rætast.
Síðan fratnanskráð grein var rituð hefur frétzt, að herforingjaklíka hefur
tekið völdin í Guatemala og vikið forseta og ríkisstjórn en afnumið stjórnar-
skrána. Orsök: Herforingjarnir óttuðust að Arevalo myndi fá hreinan meiri-
liluta atkvæða við forsetakjör og treystu ekki ríkisstjórninni til að koma í
yeg fyrir kjör hans,