Réttur


Réttur - 01.01.1963, Page 17

Réttur - 01.01.1963, Page 17
R E T T U R 17 brúnarverkamenn á almennum taxta þurftu að vinna tæpa 11 klukku- tíma á sólarhring (2 klst. og 50 mín. eftirvinnu daglega) allt árið til aS ná því kaupi. Og ef verkamenn þessir áttu aS ná þeim meSal- tekjum, sem samkvæmt úrtakinu giltu fyrir land allt, þá þurftu þeir aS vinna 3 klst. og 19 mínútur í eftirvinnu livern dag eSa 11 klukkutíma og 19 mínútur daglega. Og staSreynd er aS á ýmsum vinnustöSvum viSgengst 72 klukkustunda vikuvinna allt áriS, eSa 12 tíma dagvinna hvern virkan dag. — Og þegar ríkisstjórnin gefur upplýsingar um aS 98 þúsund krónur sé algengt árskaup hjá miklum hluta launþega, þá samsvarar þaS 12 klukkustunda vinnu ú dag allt árið hjá verkamönnum á almennum Dagsbrúnartaxta. ÞaS er því komiS svo aS 11—12 tíma vinna á dag er orSiS mjög algengt fyrirbrigSi, en tæp 10 tíma vinna (9 klst., og 40 mín.) höfuSreglan hjá verkalýSnum. Þetta gerist í því ríka Islandi ársins 1963, áratugum eftir aS sannaS er aS lengri vinnutími en 8 tímar er hættulegur heilsu og m.enningu verkamanna og aS skynsamlega rekinn atvinnurekstur getur auSveldlega fengiS sömu afköst fyrir 8 tírna vinnu og fyrir 10, 11 eSa 12 tíma þrælkun. Það er því orðið þýðingannesta hagsmuna- og menningar- mál íslenzkrar alþýðu að stytta vinnudaginn niður í 8 tíma og að borgað sé fyrir þá það sama og nú er borgað jyrir vinnuþrœlkunardaginn. Og þessa höjuðreglu haja jajnvel full- trúar ríkisstjórnarinnar sjálfir orðið að viðurkenna. Þetta mál snertir ekki aSeins launþega. Þrældómur bænda er samsvarandi og hjá þeim þarf aS verSa samsvarandi breyting til batnaSar. Ef reiknað vœri með því að greiða verkamönnum sama kaup jyrir 48 tíma og þeir já nú fyrir 58, ÞA YRÐl AÐ HÆKKA DAGKAUPIÐ UM 33%. (MiSaS viS almennan Dagsbrúnartaxta er kaupiS fyrir 48 tíma 1250 kr. á viku og fyrir 2 eftirvinnutíma 5 daga vikunnar 416 kr., alls 1666 kr. — Myndi þaS jafngilda 86.632 kr. árskaupi). Þessi raunverulega kauphœkkun og meðjylgjandi raunveruleg stytting vinnutíma hlýtur að vera það viðfangsejni, sem verklýðs- hreyjingin einbeitir kröftum sínum að á þessu ári og nœstu árum. Andleg, menningarleg og hagsmunaleg velferS íslenzks verkalýSs er undir því komin aS þetta takmark náist strax á næstu árum: Raunverulegur 8 tíma vinnudagur með 10 tíma kaupi.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.