Réttur - 01.01.1963, Síða 24
24
R E T T U R
beiting lánakerfis, skatta, gjaldeyris- og tollapólitík o. s. frv. Með
þessum aðferðum leitast ríkið við að ákvarða: a) dreifingu þjóðar-
teknanna, b) fjárfestingarpólitík, c) efnahagsleg tengsl við útlönd.
a) Hvað snertir dreifingu þjóðarteknanna, svipar efnahagspólitík
júgóslavneska ríkisins auðvitað í mörgu til þeirrar, sem rekin er í
öðrum sósíalískum löndum. Umfangsmikil fjárfesting á sér stað, og
er varið til hennar að meðaltali um 30% af þjóðartekjunum á hverju
ári.
Meðulin, sem beitt er við þessa endurdreifingu (redistrihulion)
þjóðarteknanna, eru sumpart hin sömu, sumpart ólík þeim, sem
beitt er í öðrum sósíalískum löndum. Skattar miðaðir við veltu
fyrirtækjanna eiga sér hliðstæðu í Sovétríkjunum; þeir eru einkum
lagðir á neyzluvöruiðnaðinn og eru mikilvægur þáttur í myndun.
A nettótekjur fyrirtækjanna er síðan lagður að meðaltali 15%
skattur; þeim tekjum, sem þannig aflast, er síðan varið til fullnæg-
ingar ýmissa félagslegra þarfa.
Frumlegasti þátturinn í þessu kerfi er þó fólginn í gjöldunum,
sem hvert einstakt fyrirtæki greiðir þjóðbankanum sem rentur af
því bundna og hreyfanlega fjármagni, sem það hefur yfir að ráða.
Það er eitt af helztu sérkennum júgóslavnesks þjóðarbúskapar, að
þessi kapítalrenta er einn af þáttum verðsins, og mun hér vera um
það að ræða, sem í sósialísku efnahagslífi kemst einna næst 'fram-
leiðsluverði. Kapítalrentan gegnir því margþætlu hlutverki: auk
þess að afla ríkinu tekna, örvar hún fyrirtækin til sem beztrar nýt-
ingar á vélum, hráefnum o. s. frv., til að lækka hlutfallið milli
kapítals og framleiðslu.
b) Fjárfestingarpólitíkin í Júgóslavíu er að mörgu leyti mjög ólík
þeirri, sem rekin er í öðrum sósíalískum löndum. Bein þáttlaka
ríkisvaldsins er mjög takmörkuð (stórfyrirtæki á sviði bygginga-
iðnaðar, samgangna o. s. frv.) og langmestum liluta fjárfestingar-
innar er ráðstafað af fyrirtækjunum sjálfum, sem eru ekki háð
ríkisfjárveilingum, eins og t. d. í Sovétríkjunum, heldur fá þau
bankalán og verða að greiða af þeim rentur. Lán þessi eru þar að
auki hundin þvi skilyrði, að lántakandi verji ákveðnu kapítalmagni
til fjárfestingar.
Fjármagnsins til þessara lána, er eins og áður er sagt aflað með
rentum, sköttum o. fl. Akvörðunarvald ríkisins yfir lánveitingum
hefur nokkuð aukizt síðustu árin og í áætluninni eru innifalin fyrir-
mæli um upphaf þeirra og skiptingu; þó eru þar ekki ákveðnar