Réttur


Réttur - 01.01.1963, Page 30

Réttur - 01.01.1963, Page 30
30 R É T T U R ólýsanlegar þjáningar. Hinn blakki vísindamaður, William Dubois, hefur skrifað: „Þetta var rán heils meginlands, sem hvorki forn né ný saga þekkja önnur dæmi til.“ Dubois gerir ráð fyrir að fyrir hvern einn þræl, sem fluttur var tii Vesturheims hafi fimm verið drepnir í Afríku eða dáið á leið- inni og fullyrðir á þessuin forsendum að þrælasalan hafi kostað Afríku 60 milljónir manna. Davidson segir i bók sinni að 50 mill- jónum þræla hafi verið skilað lifandi yfir Atlanzhaf. Ef útreikingar Dubois eru réttir þá verður útkoman sú að á 400 árum þrælahalds liafi Afríka misst 400 milljónir manna. Þrælaverzlunin var sannarlega ábatasöm fyrir hinn evrópska kapítalisma. Einkum fyrir England. Það hefur verið rannsakað, að á enskum skipum hafi verið fluttir frá Afríku fjórum sinnum fleiri þrælar en á skipum allra annarra landa, er fengust við þrælaverzlun samanlagt. Sú auðsöfnun, se:n þessi verzlun hafði í för með sér, undirhjó jarðveginn fyrir þróun hins kapítalistíska iðnaðar. Skipa- smíðar til þrælaflutninga hi'aðaði mjög þróun Liverpool, en fram- leiðsla baðrnullarvarnings, sem nauðsynlegur var sem gjaldmiðill í Jsrælakaupum, var mikill Jráttur i Jrróun Manchester. „Án joræla- haldsins", skrifar Marx, „hefði haðmull ekki verið; án haðmullar var iðnaður nútímans óhugsandi. Þrælahaldið gerði nýlendurnar verðmætar, nýlendurnar skcpuðu heimsverzlunina, heimsverzlunin er óhjákvæmileg forsenda stóriðju.“ Nú, þegar vestrænir áróðursmenn halda enn áfram að þusa um ]>ann „ávinning“, sem „boðberar menningarinnar“ færðu Afríku, er mjög tímabært að minna á það, hvaða Jjýðingu Jrrælasalan hafði fyrir kapítalismann. Með frásögn sinni gerir Davidson öllum Jreim rrikinn greiða, sem berjast fyrir fullu sjálfstæði Afríku. Mikill hluti bókarinnar er helgaður rannsókn á afleiðingum þrælasölunnar fyrir Jrjóðfélagshætti Afríku sjálfrar. Höfundur sýnir hvernig hin svarta Afríka þróaðist einangruð frá Miðjarðar- hafslöndunum og nálægum Austurlöndum, hvernig hún var svift beinum og stöðugum áhrifum frá þessum svæðurn. Af því leiddi, að í nokkrum héruðum Afríku varðveittist ættflokkaskipulag. Á öðrum svæðum gerðust breytingar, sem komu Jreim á aðfaraskeið aðalsveldis. Davidson álítur að sérkenni liinna síðarnefndu ]>jóðfélagshátta í Afríku hafi einkum verið fólgin í því, að ]>eir byggðu ekki á vinnu ánauðugra manna, og svo Jjví að ættflokkarnir lögðust ekki af iil

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.