Réttur - 01.01.1963, Qupperneq 35
R E T T U R
35
Suður-Ameríku að samningunum í Punta del este, sem fela í sér
grundvallaratriði „Framfarabandalagsins“, er nú skilyrði fyrir því,
að Bandaríkin styðji með lánveilingum við veikburða bakið á yfir-
ráðastéttunum í Suður-Ameríku.
Valdastéttirnar í Chile reyna að verða við kröfum Framfara-
bandalagsins, hvort sem það stafar nú af tilfinnanlegum dollara-
skorti þeirra eða af því að þær sjái, hve aðstaða þeirra er ella von-
laus, nema bvort tveggja sé. En íhaldssömustu auðstjórnarklíkurnar,
sem bafa úrslilaatkvæði í ríkisstjórn, standa gegn hinum nýju að-
gerðum, að svo miklu leyti sem þeim er ætlað að setja ofan við þær,
bæði fjárhagslega og stjórnmálalega.
Þjóðfélagsþróunin í Chile krefst þess nú framar öllu öðru að
stjórnartaumarnir verði dregnir úr böndum núverandi valdastétta.
Fví benti XII. flokksþing vort, sem haldið var í marz ’62 á það, að
meginverkefni alþýðuhreyfingarinnar væri baráttan fyrir alþýðu-
sljórn. Alþýða manna hefur fagnað því ákaft að breytingunni var
sett þetta mark að stefna að, og aðrir stjórnmálaflokkar sem standa
að Þjóðfylkingunni (Popular Action Front) hafa einnig gert þetta
takmark að sínu. Enda er augljóst, að raunhæft markmið er annars
vegar en enginn óskadraumur. Þjóðfylkingin er í augum alþýðu
það haráttu- og einingarafl, sem fært er um að taka völdin og leiða
þá byltingu til lykta, sem nauðsyn er að gera í Chile. Það munaði
minnstu í forsetakosningunum 1958 að Þjóðfylkingin hæri sigur úr
hýtum, og síðan hefur henni enn vaxið styrkur verulega. Það er
engum efa bundið, að öll skilyrði eru fyrir hendi til þess að brjót-
ast áfram að takmarkinu. Hitt er jafnvíst, að möguleiki og veru-
leiki er sitt hvað. Mörgum hindrunum verður að sigrast á, áður>en
takmarkinu er náð; mörgum alvarlegum hættum verður að lijóða
hyrginn og leiða marga orrustu enn til farsælla lykta og sameina öll
lýðræðisöfl undir fána Þjóðfylkingarinnar.
Heimsvaldasinnar bandarískir og þeirra nótar í landi voru, draga
ekki dul á, að þeir óttist Jrann möguleika, að alþýðulneyfingin verði
sigursæl í Chile. Og Jieir fara ekki heldur í launkofa með hinar
margvíslegu ráðstafanir sínar til að koma í veg fyrir það. I glæfra-
spili sínu hafa Jreir þrjú hátromp á hendinni: andlýðræðislega laga-
setningu, sem myndi neyða kommúnistaflokkinn til að starfa aftur
neðanjarðar og skerða kosningarétt alþýðu enn frekar; stjórnar-
byllingu með hervaldi; og loks að styðja kristilega demokrataflokk-
inn til valda að nokkru eða til fulls,