Réttur


Réttur - 01.01.1963, Side 41

Réttur - 01.01.1963, Side 41
R É T T U R 41 nefnd kommúnistaflokksins, Samtök manna úr alþjóðaherdeildinni og stuðningsmenn lýðveldis á Spáni til þess að bjarga lífi Grimaus. Bertrand Russell hefur einnig kveðið upp fordæmingu á ógnar- stjórninni. I bréfi til spænska sendiherrans í Lundúnum krafðist hann þess, að ofsóknirnar á hendur heiðarlegu fólki yrðu stöðvaðar. „Pyndingar, tugthúsþrælkun, fangasvelti, útlegðardómar og mis- þyrmingar“, skrifaði hann, „eru aðfarir, sem óbrjálaðir menn og viti bornir valdhafar geta ekki leyft sér.“ Listinn yfir fórnarlömb Francos telur nú endalausan fjölda af nöfnum manna, sem barizt hafa fyrir frelsi spönsku þjóðarinnar, manna af ýmsum flokkum og stjórnmálaskoðunum. Nú hefur nafn Grimaus bætzt á þann lista. Aðalritari spænska kommúnistaflokksins, Santiago Carillo, hefur skorað í nafni flokksins á allan verkalýð, menntamenn, klerka og föðurlandsvini í hernum að krefjast þess af dómsvöldunum að öryggi Grimaus og annarra pólitískra fanga verði tryggt. Hann krafðist þess, að hin illræmda „sósíal-pólitíska lögregla“ yrði leyst upp“, hinir sérstöku pólitísku dómstólar afnumdir og föngum gefnar upp sakir. Því fleiri sem taka undir þá kröfu um gjörvallan heim, því meiri vonir eru til að ógnarstjórninni sem þjakar Spán megi nú loksins linna. Þ. V. þýddi og stytti. Til lesenda Réttar I fyrsta hefti siðasta órgangs, 1962, var þess getið, að reynt yrði að koma út 10 heftum á því óri. Þvi miður reyndist þetta ekki unnt, og komu cðeins út 5 hefti, merkt 1.—7., alls 336 lesmólssiður. A þessu óri er ætlunin að út komi eigi færri en 6 hefti, og hvert hefti verði 4—5 arkir eða lesmólssíður olls eitthvað yfir 400. Það er von ritsfjóra og ritnefndar, að nú takist að standa við óætlunina og Réttur komi nokkuð reglulega til óskrifcnda.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.