Réttur - 01.01.1963, Page 53
K E T T U R
53
Blygðunarleysi Bonnstjórnarinnar er slikt, að glæpamenn nazista,
sem komið hafa fyrir dómstólana, þegar ekki varð spornað við kröf-
um almennings, hafa verið sýknaðir, enda þótt þeir hefðu tugi,
hundruð og jafnvel þúsundir mannslífa á samvizkunni. Þrjátíu og
sjö af fimmtíu og sjö Gestapoforingjum, ákærðir síðustu árin fyrir
morð og pyndingar, hafa verið fundnir sýknir saka, og slíkt hið
sama tuttugu og fimm af þrjátíu og sjö fyrrverandi nazistum, sem
ákærðir hafa verið fyrir glæpi gegn mannkyninu.
Ahrifavald fyrrverandi nazista er slíkl að síðastliðið vor var
maður að nafni Frankel, sem hafði það starf hjá Hitler að rannsaka
dóma, sem upp voru kveðnir af dómstólunum, — hann var skipaður
saksóknari ríkisins. Bonn-stjórnin varð þó að hafna þjónustu þessa
manns, þegar austur-þýzkir lögfræðingar höfðu afhjúpað liann; en
jafnvel dagblöðin í Vestur-Þýzkalandi viðurkenna, að „menn á borð
við Frankel séu alls staðar“ í Vestur-Þýzkalandi. Þrír fjórðu af
11.600 dómurum í Vestur-Þýzkalandi voru áður starfandi í dóms-
málakerfi Ilitlers. Nú senda þeir andfasista, kommúnista og frjáls-
lynda aftur í fangelsin, innan tíðar kunna sumir þeirra að taka aftur
til að hálshöggva, hengja og skjóta.
Þýzka Nefndin til verndar mannréttindum hefur snúið sér til
ríkisstjórna allra þeirra landa, sem börðust gegn Ilitler, og heitið á
þær að koma í veg fyrir að hugsjónir samtakanna séu svo blygð-
unarlaust fótum troðnar í vestur-þýzka sambandslýðveldinu. Því
ákalli verður að sinna.
(Þ. V. þýddi lauslega).