Réttur - 01.01.1963, Qupperneq 56
56
R É T T U R
stað í hvoru landi fyrir sig. Þessi uppástunga ætti að geta leyst mik-
inn vanda fyrir stjórnmálamennina, sem árum saman liafa velt þessu
máli fyrir sér.
Augljóst er, að Pugwash-ráðstefnurnar geta átt mikilsverðu hlut-
verki að gegna í alþjóðastjórnmálum. Þessi hreyfing kemur fram
sem samvizka vísindamanna um allan heirn og segja má, að með
hverri ráðstefnu sé stigið skref að því takmarki að varðveita heims-
friðinn og efla vináttu þjóða í milli.
Sumir vísindamenn, eins og t. d. Bernal og vísindamenn frá sósí-
alísku löndunum skipa sér til vinstri í hreyfingunni, aðrir eru greini-
lega til liægri við miðjuna. En allir mætast í þeirri ósk að koma í
veg fyrir styrjöld og stuðla að vináttu og samkomulagi á milli
vesturs og austurs, hvað sem ólíkum hagkerfum líður.
-----(Hér er sleppt úr greininni all-löngum kafla, þar sem meðal
annars segir frá tveimur vísindamönnum, er heldur kveða við ólík-
an tón, þeim Teller, sem kallaður hefur verið „faðir vetnissprengj-
unnar“ og er höfundur bókarinnar The Legazy of Hiroshima, og
Kahn, sem ritað hefur mikinn doðrant um kjarnorkustyrjöld (On
Thermonuclear War). Síðan víkur Infeld aflur að Pugwash-hreyf-
ingunni).
Sem betur fer eru Teller og Kahn undantekningar. Pugwash-
hreyfingin gefur réttari hugmynd um siðferðileg sjónarmið vísinda-
manna yfirleitt, því enda þótt þeir kunni að hafa mismunandi skoð-
anir á þjóðfélagsmálum, er yfirgnæfandi meirihluti þeirra sammála
þeim viðhorfum, sem fram komu á ráðstefnunni í Lundúnum og
fólgin voru í eftirfarandi yfirlýsingu:
„Vér, vísindamenn tró þrjótíu og fimm löndum, soman komnir ó
tíundu róðstefnu Pugwash-hreyfingarinnar, þar sem fjallað vor um
efnið „Visindi og alþjóðavandamól", erum ó einu móli um það, að
visindabylting nútímans hafi valdið þvi, að veröldin horfist í augu
við aðstæður, sem séu gjörbreyttar i grundvallaratriðum, þar sem
mannkynið hafi nú óður ókunna möguleika hvort heldur til upp-
byggingar eða eyðileggingar. Vér höfum komið saman i Lundúnum
af þeim hvötum, að vér viljum gera allt, sem er í voru valdi, til þcss
að vísindin verði mannkyninu blessun en ekki bölvun."
Þorsteinn Valdimarsson,
íslenzkaði.