Réttur


Réttur - 01.01.1963, Page 58

Réttur - 01.01.1963, Page 58
58 R É T T U R versku ríkja og forustumenn verkalýðssambandsins og bændasam- bandsins Kisan Sabha. Helmingurinn af miðstjórnarmönnum ind- verska Kommúnistaflokksins og 11 af meðlimum framkvæmdanefnd- ar hans eru í fangelsi. Sumstaðar eru allir meðlimir framkvæmda- nefnda flokksins í hinum einstöku ríkjum, og þorri miðstjórnar- meðlima í fangelsum. Kommúnistaflokkurinn er sem kunnugt er sterkasti flokkur í Kerala-ríki, þar sem hann fór með ríkisstjórn 1957—59. Þar eru fimm fyrrverandi ráðherrar flokksins í fangelsi og helmingurinn af meðlimum flokksstjórnarinnar þar. Afturhaldið á Indlandi æsir til þessara ofsókna, heimtar jafnvel bann flokksins. Formaður þingflokks kommúnista, Bhupesli Gupla, brennimerkti þessar lögregluaðgerðir í þingræðu 13. desember sem ofsóknir gegn stærsta stjórnarandstöðuflokki landsins. Fyrir nokkru réðust fasistar í Indlandi á aðalstöðvar Kommún- istaflokksins í Nýju Delhi og kveiktu í þeim. Hvaðanæva að úr heiminum liafa borist mótmæli gegn þessum ofsóknum gegn kommúnistum í Indlandi. Uppreisnin i Angola heldur ófram. Utanríkisráðherra Portúgal reynir að telja heiminum trú um að stjórnin hafi „friðað1 Angola. Það er ekki satt. Uppreisnin í Angola heldur áfram. „Times“ segir að skæruliðarnir hafi 35000 fermílna svæði á valdi sínu. Samkvæmt „Sunday Telegraph“ Jiafa uppreisnar- menn 6000 vel vopnaða hermenn og 40000 Angolabúa, sem kveðja má til vopna hvenær sem er. Þjóðfrelsisherinn er vel vígbúitin með þungum enskum vélbyssum, léttum Bren-vélbyssum, Sten-vélpístol- um og öðrum byssum og sprengjum, sem þjóðfrelsisherinn hefur tekið af Portúgölum. — Portúgalska herstjórnin hefur sjálf, sann- að, að utanríkisráðherrann sagði ósalt. Hún sendi liðstyrk 'iil Angola um nýár, til þess að reyna að bæta upp tapið, sem hún hefur beðið. Lógmarkstekjuþörf bandarískrar fjölskyldu og lífsafkoman. Eftir bandarískum hagskýrslum þarf fjölskylda að hafa 6147 dollara árstekjur, til þess að komast sæmilega af. En eflir hagskýrsl- unum hafa 41 milljón Bandaríkjamanna -—- eða fjórðungur þjóðar- innar — 3000 dollara og þaðan af minna í árstekjur. Þessar stað- reyndir ásamt mörgum öðrum um atvinnuleysið og misskiptingu

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.