Réttur - 01.01.1963, Síða 62
Ritfregnir
„Vandamál jriðarins og sósíal-
ismans“. Tímarit Kommúnista-
og verklýðsflokka um fræði-
kenningu og fréttir. 6. árg.
1963, 1. hefti. Prag.
Fyrsta hefti 6. árgangs þessa tíma-
rits, sem á ensku ber nafnið „World
Marxist Reviev“, er nýkomið út.
Kemur það sem fyrr er sagt á mörg-
um tungumálum.
I þessu hefti ritar Todor Shiwkow,
leiðtogi búlgarskra kommúnista, inn-
gangsgrein um „Einingu sósíalistísku
landanna, úrslitaforsenduna fyrir
uppbyggingu kommúnismans."
Léo Figures ritari í miðstjórn
franska kommúnistaflokksins, ritar
merkilega grein um fræðilega starf-
semi franska Kommúnistaflokksins,
sem eins og kunnugt er, er mjög
sterkur meðal menntamanna, auk
þess að vera forustuflokkur verka-
lýðsins. Ymsir beztu og frægustu
vísinda- og listamenn Frakka til-
heyra flokknum. Það þarf aðeins að
nefna nöfn eins og Langevin, Joliot-
Curie, Picasso, Barbusse, Aragon, til
þess að rifja upp, að blómi fransks
menntalýðs fylgir þeim flokki. Vís-
indatímarit flokksins eru fræg og vís-
indastarfsemi hans mikil og alþjóð-
leg. T. d. undirbjtiggu 60 háskóla-
kennarar og vísindamenn flokksins
að ósk ríkisstjórnarinnar á Kúbu á
örfáum mánuðum allt efni til heim-
spekikennslu í æðri skólum á Kúbu.
Er það sérstök stofnun í flokknum,
sem annast alla marxistiska rann-
sókn: Centre d’Etude et de Recherch-
es Marxistes — CERM. Deild þess-
arar stofnunar fyrir listir og bók-
menntir hefur skrifað „Bókmennta-
sögu Frakklands", stærðfræðideildin
undirbýr „sögu stærðfræðinnar“ o. s.
frv. Þessi stofnun, CERM, hafði for-
göngu ásamt stjórn ofannefnds tíma-
rits um ráðstefnu þá, er haldin var
vorið 1961 í Roaumont um framtíð
mannkynsins. Var áður frá henni sagt
í Rétti og birt tvö merkileg erindi, er
þar voru flutt. Sumarið 1962 var
ásamt vísindarannsólcnarstofnun
franska ríkisins gengist fyrir ráð-
stefnu um Kybernatik, hina nýju vís-
indagrein sjálfstýrivéla og reiknings-
heila. Er grein þessi öll hin fróðleg-
asta.
Masayoshi Oka, einn af forustu-
mönnum japanska kommúnistaflokks-
ins ritar um efnahagstengslin á milli
japönsku og bandarísku einokunar-
hringanna.
Heinrich Bergmann um ástandið
hjá bændum í Vestur-Þýzkalandi og
pólitík Kommúnistaflokks Þýzka-
lands. En þar er þorri smábænda nú
dæmdur til gjaldþrots, því „sérfræð-