Réttur - 01.03.1939, Side 6
ingin, flokkur hins sameinaða afturhalds, sem er kom-
inn í andstöðu við allar framfarir og allar almennar
borgaralegar umbætur og borgaralegt frjálslyndi.
Þetta er hið sérkennilega við ástandið á íslandi í dag'.
Menn, sem hingað hafa komið sem gestir úr lýðræðis-
löndum hins engilsaxneska heims, hafa veitt þessu eft-
irtekt og látið þau orð falla, að Sósíalistaflokkurinn liér
svaraði til frjálslyndu flokkanna í þessum löndum í hinu
daglega starfi sínu, en allir hinir flokkarnir svöruðu til
íhalds- og afturhaldsflokkanna meðal lýðræðisþjóða
Vesturlanda. Afturhaldsflokkarnir hér á landi fara að
dæmi Hitlers og skipta þjóðinni í kommúnista og and-
kommúnista, alveg eins og Hitler skiptir mönnum í
flokka um allan heim. Roosevelt Bandaríkjaforseti er
til dæmis bolsjevíki á máli Hitlers, alveg eins og liver
frjálslyndur maður, sem lætur til sín heyra hér á landi
cr kommúnisti á máli Morgunblaðsins, Alþýðublaðsins
og Tímans.
Það er nú okkar verkefni, að sýna þjóðinni fram á,
að því verður ekki lengur skotið á frest, að taka af-
stöðu öðru hvoru megin, með framsókn eða afturhaldi,
með stefnu Sósíalistaflokksins eða stefnu stjórnarflokk-
anna. En til þess að geta tekið afstöðu, þurfa menn að
lesa blöð flokksins. Eins og nú standa sakir, getur eng-
inn frjálslyndur maður unnið þarfara verk fyrir hug-
sjón sína, en að útbreiða blöð Sósíalistaflokksins.
Höfuðviðfangsefni Sósíalistaflokksins á þessu ári, er
sköpun frjáls og óháðs sambands stéttarfélaga launþega
í landinu. Þessu máli hefir miðað vel áfram. Flest
helztu verkalýðs- og iðnfélög í landinu hafa ákveðið að
gerast stofnendur landssambandsins. Þessi félög hafa
nú myndað með sér bráðabyrgðarbandalag og kosið sér
stjórn. Verkamenn úr öllum flokkum hafa tekið hönd-
um saman um þetta mál, ekki aðeins fyrverandi fylgis-
menn Alþýðuflokksins, heldur líka fjölmargir fylgis-
menn Sjálfstæðisflokksins. Fyrir þessar sakir lét for-
6