Réttur - 01.03.1939, Page 22
Af töflu þessari sést að gullforði Þýzkalands, Ítalíu
og Japans er samanlagður minni en gullforði Sviss.
Hér eru nokkrar tölur, er sýna kreppuástandið í auð-
valdslöndunum síðastliðin fimm ár og þróun iðnaðar-
framfara í Sovétríkjunum.
Magn iðnaðarframleiðslu í prósentum miðað við 1929.
(1929 = 100.)
1934 1935 1936 1937 1938
Bandarikin . 66.4 75.6 88.1 92.2 72.0
England . . . 98.8 105.8 115.9 123.7 112.0
Frakkland. . 71.0 67.4 79.3 82.8 70.0
Ítalía 80.0 93.8 87.5 99.6 96.0
Þýzkaland . 79.8 94.0 106.3 117.2 125.0
Japan .... 128.7 141.8 151.1 170.8 165.0
Sovétríkin . . 238.3 293.4 382.3 424.0 477.0
Af töflunni sést að Sovétríkin, ein allra landa í heimi,
eru ósnortin af kreppu og hafa óslitið aukið iðnað sinn.
Af töflunni verður einnig ráðið, að alvarleg atvinnu-
kreppa er þegar byrjuð í Bandaríkjunum, Englandi og
Frakklandi og breiðist út.
Af töflunum sést ennfremur, að iðnaði ftala og Japana
er farið að hraka 1938, en þau ríki tóku upp hernaðar-
þarfabúskap á undan Þýzkalandi. Af töflunni verður
einnig séð, að iðnaðarframleiðsla Þýzkalands er enn stíg-
andi, þó hægt fari, á sama hátt og iðnaðarframleiðsla
ítala og Japana fram að þessu; en Þýzkaland varð
seinna til að umskapa atvinnulíf sitt til hernaðarþarfa.
Það er ekkert vafamál, að iðnaður Þýzkalands hlýtur
að lenda í samskonar afturför og iðnaður Ítalíu og Jap-
ans er kominn í nú þegar, nema eitthvað ófyrirsjáan-
legt gerist. Því hvað þýðir umsköpun á atvinnulífi lands
til hernaðarþarfa ? Það þýðir að iðnaði landsins er beint
í einhæfa styrjaldarhátt, að framleiðslu hluta til stríðs-
þarfa, sem alls eru óskyldar þörfum fólksins, er aukin
22