Réttur - 01.05.1967, Page 1
Það kreppir nú að í íslenzku atvinnulífi. Auðvaldsskipnlagið sýnir enn, að
það er samt við sig. Eftir yfirborðsvelgengni, kemur nú verðhrun og að-
kenning kreppu. Voldugir auðhringar ætla að leysa liana á kostnað hinna
smáu: Alþýðustétta, smárra atvinnurekenda, — eins og flestir íslenzkir eru,
— og smárra þjóðfélaga, er auðhringarnir ætla að nema til arðráns, — eins
liins íslenzka.
Við þurfum nú að ræða vandann, einnig vorra eigin samtaka. Það þarf að
ræða frjálst um leiðir, setjast á rökstóla, kryfja til mergjar. Enn mun skil-
greining Marx á auðvaldsþjóðfélaginu verða oss til nokkurrar leiðbeiningar,
þótt aldargömul sé. „Auðmagnið“ kom út 1867. En á oss sjálfa reynir að
finna þær lausnir við vandamálum vorra tíma, er duga.
Kosningar eru nýafstaðnar, sögulegar og merkilegar. „Réttur“ vill og ræða
þær og aðstoða við að draga af þeim rétta lærdóma. Forn og ný vandamál
krefjast umræðu og lausnar, innlend og erlend.
Látum oss hjálpast að við að ræða þau, leysa þau. Gerum „Rétt“ að góðum
vettvang, vönduðu vopni til slíks. Þær viðtökur, er hann fékk í hinu nýja
formi, vekja bjartsýni. Vestmannaeyjar sendu t. d. 47 nýja áskrifendur í
einu lagi. Hafi þeir þökk og taki aðrir þá sér lil fyrirmyndar. -