Réttur


Réttur - 01.05.1967, Page 3

Réttur - 01.05.1967, Page 3
DUGAR „E Y STEINSKAN44 BJARNA? Alhyf'lisverðasta staðreynd þessara kosninpja er tap Sjálfstæðisflokksins. IJessi stærsti stjórn- málaflokkur landsins heið slíkt afhroff, að hann hefur óklofinn aldrei hlotið lægri hlut- fallstölu síðan hann var stofnaður, — eða 37.5%. Árið 1953 var talan 37.1%, en þá hafði Lýðveldisflokkurinn, sem var beinlínis Muti úr honum, 3.3%. En annars hefur hlut- fallstala Sjálfstæðisflokksins verið á milli 38.5% og 48%. Árið 1963 hefur flokkurinn dl.4%, svo að það er hvorki meira né minna tíundi hluti kjósenda, sem yfirgefur hann ‘l þessum fjórum árum. Ef þannig héldi áfram •'íEst, en verkalýðsflokkarnir héldu í horfinu. Kíetu jieir samanlagt orðið sterkari en Sjálf- stæðisflokkurinn, — en það er aðstaða, sem nokkurn verkalýðssinna hefði vart dreymt um fyrir kosningar. Þetta vaxandi vantraust kjósendanna á flokknum er ekki aðeins uppreisn gegn stefnu l'ans og stjórnarháttum. Eað er og í ríkum mæli vantraust á hinni nýju forystu hans, eink- um hinum volduga, harðgera formanni, sem hirtist hér ótvirætt. Hið undarlega er, að nú- verandi formenn Sjálfstæðis- og Eramsóknar- flokksins hafa háðir sömu höfuðeiginleikana sem sterkasta þátt í persónugerð þeirra: Hörk- una, dugnaðinn og harðfylgina. En svo stórum flokki sem Sjálfstæðisflokkn- um verður ekki haldið saman með harðstjórn eysteinskunnar einni saman, en sú er einmitt aðferð hins nýja leiðtoga. I‘að var pólitískt afrek að halda saman svo sundurleitum flokki sem Sjálfstæðisflokknum eins vel og lengi og Olafi Thors tókst. Slíkt hefur engum ihaldsflokki á Norðurlöndum auðnast. Olafur var upphafinn yfir þann smá- sálarska]) og smásmugulegu kaupmennskuað- stöðu, sem einkennir ýmsa flokksforingja. Hann var i senn djarfur við að taka upp nýja stefnu. ef þess var þörf, og höföinglegur í samningum. Og hann þekkti þær efnahagslegu aðstæður og mótsetningar í þjóðfélaginu. einnig innan yfirstéttarinnar, sem hver íslenzk- ur stjórnmálaleiðtogi þarf að kunna skil á, ef einhver auðna á að fylgja starfi hans. Og lil viðbótar þessum eiginleikum kom svo glettni hans og gamansemi, sem brá ógleymanlegum hlæ á stjórnmálaferil hans. I’ess vegna þótti flokksmönnum hans vænt um hann og dáðust að honum — og þaÖ gerði Olafi auðveldara að halda flokknum saman. En Bjarna óttast þeir, þótl þeir meti mikils dugnað hans og harðfylgi. 59

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.