Réttur


Réttur - 01.05.1967, Page 4

Réttur - 01.05.1967, Page 4
IJað væru því eflir þessar kosningar meiri möguleikar en nokkru sinni fyrr, að Sjálfstæð- isflokkurinn færi hægt og sígandi að tapa, — ef andstæðingar hans kunna að reka skyn- samlega sljórnmálastefnu. En til þess þyrfti vissulega að verða mikil hreyting á pólitik þeirra. Og hægt mun það ganga að rýra fylgi íhaldsins, því hagsmunir fjölmennrar sérrétt- indastéttar halda flokknum saman og sérrélt- indaaðstaða sú, sem flokkurinn hefur skapað sér í þjóðfélaginu, — einkum með gífurlegri áróðursaðstöðu og öflugu fésvsluvaldi, — er mjög rótgróin. FLOKKSHARKA FRAMSÓKNAR Ulkoma Framsóknarflokksins vekur undr- un. Flokkurinn hafði þá ákjósanlegustu að- stöðu, er hugsast gal, eftij- klofninginn í Al- þýiðuhandalaginu. Og áróðurinn var sterkur og vonir flokksins miklar. En þær hrugðust gersamlega. Framsóknarflokkurinn hefur nú staðnað, — að vísu á hæstu hlutfallstölu, sem hann hefur fengið, rúmum 28%, — en staðnað. (1967: 28.1; 1963 28.2). Hann vekur ekki traust kjósenda frekap en orðið er. Máske er hann húinn að kalla of oft „úlfur. úlfur,“ til að hræða fyrir kosningarnar, — og gerast svo úlfur sjálfur að kosningum loknum. Framsóknarflokkurinn þarf að taka alla sína afstöðu og stjórnmálastefnu til endurskoðun- ar, ef hann á að hafa gæfu lil að verða hlut- gengur um mótun vinstri stjórnmálastefnu á Islandi, sem hann vissulega vegna valds síns, stærjðar og sterks skipulags. hefur allar for- sendur til. Flokkurinn þart að gcfa upp sinn forno stór- veldisdraum, að verða aftur EINN hinn voldugi stjórnmólaflokkur ó Islandi, sem hann eitt sinn var. Hann þarf oð gera það upp við sig, að hann ætli héðan af að vera vinstri flokkur, — en ekki tv.istigandi hægri-vinstri valdabraskari. Hann þarf að fara að lita ó sig sem jafningja verkalýðsflokkanna, — þótt stærri sé, — reiðubú- inn til samstarfs en ekki yfirdrottnunar. Þetta þarf ekki að verða eins erfitt fyrir Framsókn, eins og virzt gæli við fyrstu sýn. Meirihlutinn af fylgi Framsóknar er nú orð- ið í bæjum landsins, þar af verulegur hluti launafólks. En margt þeirra bænda, er fylgir flokknum í afskekktum landshlutum, er hins vegar meðal tekjulægsta alþýðufólks i landinu. Uppruni þess hugsjónaarfs, sem hezlu fylgj- endur flokksins enn eiga, er í þjóðernissinn- aðri ungmennafélagshreyfingu lslands og al- þjóðlegri samvinnuhreyfingu gegn ofurvaldi auðdrottna. I>að verður ókleift til lengdar fyrir fésýslu- vald Framsóknarflokksins að halda fylgi flokksins að því hlutverki að vera varaskeifa verzlunarauðvaldsins í Reykjavík til kúgunar- aðgerða gegn verkalýðshreyfingunni. Framsóknarmenn þurfa nú að ákveða sjálfir eftir þessi úrslit, hvort þeir álíta betur hæfa flokki sínum að reyna enn — árangurslaust — að brjótast fram til þess að verða á ný voldug- ur. skeikull og tækifærissinnaður droltnari vinstri hreyfingar á íslandi, eins og fyrir ald- arþriðjung, — eSa reyna að gerast raunsær þátttakandi þjóðlegrar vinstri hreyfingar við hlið jafnrélthárra verkalýðsflokka. I>að ræður örlögum í íslenzkum stjórnmál- um, hvernig þessi endurskoðun Framsóknar- manna á afstöðu og stefnu flokks þeirra tekst. Undir árangri hennar er það komið, hvort aftur tekst, vonum fyrr, að skapa grundvöll þjóðlegrar og róttækrar ríkisstjórnar á Is- landi. Tekst Framsóknarflokknum að vinna bug á þeirri vægðarlausu eiginhagsmunahörku. þeirri flokkslegu þröngsýni og smásmugulegu kaujimennskuaðstöðu, sem einkennt hefur flokkinn í viðskiplum hans við alla aðra flokka og gert hann hverjum samstarfsaðila hvim- leiðan? Oft er þessi afstaða kennd við hinn lnáð- duglega, harðfylgna og heiðarlega fotmanii 60

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.