Réttur


Réttur - 01.05.1967, Page 13

Réttur - 01.05.1967, Page 13
stjórnleysi, skipulagsleysi og ringulreið, — sem ríkisstjórnin kallar „frelsi og framtak,“ — er slíkt óhugsandi. IJað kostar því harða og vægðarlausa har- áttu fyrir launafólk að halda núverandi lífsaf- komu. 1 þeirri ]>arátlu dugar enginn afsláltur. ffaldi alþýðufjölskyldur ekki núverandi árs- tekjum, vofir yfir þorra þeirra missir eigna sinna, íhúðarhúsnæðis og annars. I^að, sem ekki vannst í þingkosningunum vegna klofnings Alþýðubandalagsins, verður nú að vinnast í hörðum átökum utan þings. Það er höfuðverkefni verklýðshreyfingar- innar að húa sig undir þau átök. Valdhafarnir sýna nú þegar með gerðardómslögunum, hvaða leið þeir hugsa sér. Þeir herrar, er hafa þrælalöggjöf að hugsjón, gerast æ hugrakkari að kosningum loknum. En verkalýður Islands þarf að sýna þeim nú sem í nóvemher 1063 að sú leið er þeim lokuð. Það gelur hann með því að standa allur sem einn í þeirri baráttu fyrir fullri atvinnu, sem framundan er, — allur sem einn maður að þeim kauphækkunarkröfum, sem orðnar eru óhjákvæmilegar, og láta engan klofning, enga undanlátssemi við valdhafana komast þar að. Mótun stórhuga, djarf'rar og róttækrar stjórnmálastefnu til að leiða þjóðina, er hið mikla verkefni, sem bíður. Ef Alþýðuhandalagið eignast þann stórhug, er Sósíalistaflokkurinn hefur sýnl á beztu stundum starfsæfinnar og öðlast þá víðfeðmi úl á við og sveigjanleik samfara stefnufestu inn á við, sem þarf til þess að virkja aðra vinstri flokka tii róttæks þjóðlegs stjórnarsam- starfs, — þá er von til þess að takast megi að brjóta að nýju blað í sögu lslands. — Frum- hlaup Framsóknar, er hún sleit vinstri stjórn- inni 1958, befði þá aðeins kostað alþýðu landsins einsáratugs alturhaldsstjórn — og væri það vel sloppið. En allir sósíalistar og aðrir, sem í Alþýðu- bandalaginu eru, verða að gera sér ljóst, að á þeim hvílir fyrsl og fremst ábyrgðin að hafa framlak og foryslu um að skapa skilyrðin lil umskiptanna miklu: nýrrar sóknar alþýðu fram lil belri. kjara og frelsis, þegar spilaborg braskaravaldsins tekur að hrynja og hnefi er- lenda auðvaldsins að ógna meir en orðið er. Þá reynir á að berjast og sigra. 69

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.