Réttur


Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 16

Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 16
hug að þarna væri dansleikur. en svo kom bíl- stjórinn óbeðinn með aðra skýringu. „Það er þetta pakk, sem er að veiðum í ánni hér sunnan við,“ sagði hann. „Það fyllist hér allt af j)ví um helgar.“ Hann hristi höfuðið og pilturinn furðaði sig á hvað hann gæti hafl við það að athuga að fólk renntli fyrir fisk. Hann hafði sjálfur gaman af þessari íþrótt, enda nokkuð laginn við að fiska. „Ætli þau geti holað okkur niður einhvers staðar. Það kalla ég einslakl, ef þau geta það.“ And- skotans rápið á þessu slengi úr hænum.“ Bíl- stjóranum var auðheyrilega mjög uppsigað við laxveiðimennina. Þeir óku í hlað og hinn reiði bilstjóri þeytti flauluna í ákafa. Yfir dyrum hússins voru skrautlcgar gosdrykkjaauglýsingar, og undir glugga stóð gulur stampur, ætlaður fyrir rusl. Að innan barst kórsöngur þar sem bver söng með sínu nefi í þess orðtaks fyllstu merkingu. Einhver lék undir á gítar af umdeilanlega mikilli leikni. Á hlaðinu var ýmiss konar rusl á flækingi, súkkulaðibréf, heil appelsína og forsíða af kunnu sakamálatímariti, sem hét blátt áfram MORfi. Þeir biðu enn drykklanga stund, en ekki varð séð að neinn befði tekið ef'tir komu þeirra. „Hverslags er þetta? Hvað hugsar það?“ Rílstjórinn flautaði á ný. Svo greip hann allt í einu treyjuna sína. sem lá við hlið hans og pílturinn hafði hafl undir höfðinu. þegar hann lagðist til svefns. „Bíddu hérna, — ég kem svo að segja strax aftur.“ Hann snaraðist út, smeygði sér i treyj- una oí> stikaði að skáladyrunum. Hann sveifl- aði höndunum, þegar hann gekk. Um leið og hann kom að dyrunum voru þær opnaðar og maður birtist í gættinni. Pilturinn sá hann aðeins óljóst, en taldi víst að þetta væri veit- ingamaðurinn. Þeir tveir þekktust auðsæilega strax og sá fyrrnefndi lók meira að segja ofan gulu húfuna. Þeir töluðu lengi saman og einu sinni sneri bílstjórinn sér við og benti til bifreiðarinnar. Líklega var hann að segja frá að þeir væru tveir og þyrftu á gistij)lássi að halda. Bak við manninn í dyrunum birtist nú kona í bláum kjól. Það hlaut að vera frammistöðustúlkan. Bílstjórinn kom nú til baka og opnaði bíl- dyrnar. Hynn var léttari á brún en áður, fann eldspýtustokk í vasa sínum og kveikti í síga- rettustubbnum, sem hann var enn með milli varanna. „Komdu út,“ sagði hann og dró annað augað í pung, þar sem honum súrnaði í augum af reyknum. „Þau ætla að hola okk- ur einhvers staðar niður. En liklega fáum við ekki herbergi saman. Það hefur víst fyllt hús- ið að mestu, pakkið úr bænum.“ Síðan gengu þeir báðir í átt lil dyranna. Það var blæja- Iogn og reykurinn frá skorsteini hússins stóð beint upp í sumarnóttina. I sjónhendingu tók pilturinn eftir að svarti fólksbillinn stóð enn við benzíndæluna. Inni í honum mátti greina þrjá menn, sem voru að tala saman. Veitingamaðurinn var nú horfinn inti til gesta sinna, en konan, sem pilturinn sá nú að var aðeins ung stúlka, beið eftir þeim. Hún sneri sér við og ællaði að ganga inn á undan þeim, þegar bílstjórinn greip um mittið á henni og hallaði sér niður að eyranu á henni. „Elskarðu mig enn. Metta?“ sagði hann i stríðnistón, og kitlaði hana um leið. „Þú veizt að ég er alltaf að hugsa um þig.“ Stúlkan hljóðaði og roðnaði upp í hársrætur. Nokkra stund tókust þau á, hún klóraði og gerði sig liklega til að bíta, en hann gnísti tönnum og kitlaði hana í eldmóði. Stúlkan var að kafna úr hlátri. „Ertu villaus, Guji. llvað ertu að hugsa, maður, hí-úúú, — hvað heldurðu að ....“ Um síðir sleppti bílstjórinn takinu og þau gengu inn langan gang að viðamiklum dyr- um úr dýrum viði. Gegn um stóra rúðu á hurðinni með sandblásinni mynd af víkinga- skipi á, mátti sjá hóp af fólki, sem sat í hálf- rökkri kring um stóran arinn. Stúlkan stundi og andvar]>aði, gjörsamlega eftir sig. vegna kerskni bílstjórans, og um leið og hún opnaði dyrnar sendi hún honum þóttafulll augnatil- lit: „Skárri er það nú bölvaður asninn,“ 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.